Lögmannablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 30

Lögmannablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 30
30 lögmannaBlaðið tBl 04/13 UMfJÖllUn gegn Bretlandi.“ Framkvæmdastjóri Formúlu 1 kappakstursins hafði keypt sér þjónustu fimm vændiskvenna á einu bretti og ein þeirra var með vídeómyndavél þannig að myndir rötuðu á síður slúðurblaðanna í Bret­ landi. mosley taldi þetta brot á friðhelgi einkalífsins sem fallist var á. á hinn bóginn var ekki fallist á að af 8. gr. msE leiddi að ríki væri skylt til að hafa í lögum ákvæði sem skylduðu blaðamenn til þess að vara menn við birtingu á slíku efni svo þeir gætu farið fram á lögbann á birtingu fyrir dómstólum. erfiðir tímar framundan hjá mannréttindadómstól evrópu Nú liggja mörg mál fyrir MDE, ekki satt? jú, það bíða um 120.000 mál hjá dómnum en voru um 160.000 þegar verst lét. Þannig hefur náðst talsverður árangur. meðal annars vísaði ég einn (auðvitað með aðstoð lögfræðinga) sem „single judge“, eins og það er kallað, um fjögur þúsund málum frá gegn Póllandi á árunum 2012 og 2013. Þessi gríðarlegi málafjöldi er þó ekki eini vandinn sem dómstóllinn glímir við þessa dagana en hann sætir vaxandi gagnrýni fyrir að hafa gengið alltof langt í því að skipta sér af innanríkismálum aðildarlandanna. Vaxandi krafa er frá ríkjunum um að virt séu rýmri vikmörk sem kallað er (margin of appreciation) sem og nálægðar­ reglan (subsidiarity) þar sem vernd mannréttinda eigi fyrst og fremst heima í aðildarríkjunum sjálfum. Þá er samsetning dómsins gagnrýnd og að þar séu ungir og reynslulitlir dómarar. gagnrýnin er sérstaklega frá Bretlandi en einnig hefur heyrst að ekki hafi tekist að skipa hann nægilega færum dómurum undanfarin ár. margt er hæft í þessari gagnrýni og annað ekki, eins og gengur. Þá setur strik í reikninginn mannréttindaskrá EsB og vald dómstóls EsB til að túlka hana. með því er viss hætta á að það þrengi að hlutverki mdE þegar til lengri tíma er litið. dómstóllinn á þannig klárlega við visst pólitískt andstreymi að stríða og það verður hlutverk þeirra dómara sem skipaðir hafa verið undanfarið að finna leið til að styrkja hlutverk hans í framtíðinni. Hvað með íslensk mál sem komið hafa fyrir dómstólinn? Ég hef komið að íslenskum málum sem hafa verið tekin fyrir hjá dómstólnum enda er alltaf dómari frá viðkomandi landi í hverju máli. Að vísu koma dómarar ekki að málum á frumstigi, þegar þau fara í það sem kallast „eins manns dóm“ heldur eftir það. Ég var meira að segja í tveimur íslenskum málum áður en ég byrjaði störf mín hjá mdE, sem Ad Hoc dómari, í málum Péturs Þórs sigurðssonar og kjartans ásmundssonar. síðan hafa verið nokkur íslensk mál, mismunandi mikilvæg, en ég get nefnt mál söru Lindar Eggertsdóttur sem var skaðabótamál gegn ríkinu og leiddi til breytinga á ákvæðum laga um hlutverk læknaráðs í slíkum málum. síðan var mál Varðar ólafssonar gegn íslandi. Það fjallar um neikvætt félagafrelsi og var talið að þau ákvæði laga um iðnaðarmálagjald væru í andstöðu við 11. gr. mannréttindasáttmálans. dómar í málum tveggja blaðamanna frá júlí 2012 vöktu síðan talsvert mikla athygli en þau fjölluðu um brot á 10.gr sáttmálans um tjáningarfrelsið eins og margir þekkja. nokkuð þótti skorta á að Hæstiréttur íslands annars vegar og héraðdómur hins vegar hefðu í málum gætt þeirra sjónarmiða sem fram koma í dómaframkvæmd mdE um túlkun 10. gr. vernd mannréttinda á íslandi með því besta sem gerist Þurfa íslensk stjórnvöld eða dómstólar á Íslandi að beina sjónum sínum að einhverju sérstöku þegar kemur að sáttmálanum? nei, ég held ekki, þótt auðvitað almenn vitneskja þeirra og kunnátta í sáttmálanum og dómaframkvæmd mdE mætti stundum vera meiri. Þar er auðvitað líka við lögmannastéttina að sakast, því það er mikilvægt hlutverk lögmanna í réttarríki að leggja upp í hendur dómstóla röksemdir sem sækja í réttindi sem sáttmálinn tryggir og dómaframkvæmd mdE. á hinn bóginn, sé ísland borið saman við önnur lönd, er vernd mannréttinda á íslandi með því besta sem gerist í heiminum. Breytir engu þótt slegið sé á puttana á íslenskum dómstólum í einstökum málum. á íslandi eru engin stórvægileg eða kerfislæg vandamál varðandi mannréttindi, þótt auðvitað megi endalaust fínstilla ákveðna þætti. Vilji til að vernda mannréttindi á íslandi endurspeglast m.a. í þeirri staðreynd að ísland er bundið af sáttmálanum og íslenska ríkið hefur tekið á sig skuldbindingu að þjóðarétti til að framfylgja honum, sem og framfylgja dómum dómstólsins sem falla gegn íslenska ríkinu. sterk samnorræn lagahefð Nú ert þú nýráðinn prófessor við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla, hvernig leggst það í þig? mjög vel. Þessi prófessorstaða er með áherslu á alþjóðleg mannréttindi og það verður gaman að fara kenna við lagadeild skólans þar sem íslenskir lögfræðingar stúderuðu um aldir og allt til ársins 1908 þegar Lagaskólinn var stofnaður og margir eftir það í

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.