Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2012, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2012, Blaðsíða 15
„Gengislækkun framkallar m.ö.o. „launalækkun án blóðsúthellinga“ „Við erum ríkið“ Lilja Mósesdóttir og Samstaða vilja taka upp nýkrónu. – DV.is Gunnar Sverrisson vill söfnun fyrir nýjum tækjum á Landspítalann. – DV.is Spurningin „Nei. Hvers konar samsæris­ kenning er það?“ Þorgeir Helgason 20 ára flugþjónn „Það er hugsanlegt að einhverjir hafi haft óbein áhrif á gang mála, en ég trúi því ekki að þeir hafi stýrt henni.“ Hólmdís Sigurðardóttir 52 ára hjúkrunarfræðingur „Nei.“ Fríða Halldórsdóttir 18 ára nemi „Nei, því trúi ég ekki.“ Guðmundur Kjartansson 54 ára listaverkasali „Nei, það held ég ekki.“ Hákon Örn Kaaber 29 ára starfsmaður á Hrafnistu Stýrðu þingmenn búsáhalda- byltingunni? 1 Barn fékk viskí í stað ávaxtasafa Tveggja ára drengur var fluttur á sjúkrahús í Swansea í Wales eftir að hafa drukkið ótæpilegt magn af viskíi sem hann fékk fyrir mistök starfsmanna. 2 Lögreglan á að rannsaka lækni Ríkissaksóknari hefur sent kæru Páls Sverrissonar aftur til rannsóknar hjá lögreglunni eftir að henni hafði verið vísað frá. 3 Stærstu mistökin í megrun DV tók saman sextán gildrur sem algengt er að þeir sem glíma við aukakílóin falli í. 4 Nafn mannsins sem fannst látinn í Reykjanesbæ Maðurinn sem fannst látinn í fjörunni neðan við Ægisgötu í Reykjanesbæ að morgni 12. október síðastliðinn hét Jaroslaw Olejniczko. 5 Sunndal vill fá Íslendinga til starfa Sunndal Næringssel­ skap og atvinnuþróunarfélagið Industriinkubatoren PiFF Sunndal stóðu á þriðjudag fyrir sameig­ inlegum kynningarfundi í Hörpu. Þar voru atvinnutækifæri í norska sveitarfélaginu Sunndal kynnt áhugasömum. Mest lesið á DV.is Landsleikur Nokkur fjöldi stuðningsmanna svissneska landsliðsins í knattspyrnu var samankominn í miðborginni á mánudag og væsti ekki um þá. mynd sigtryggur ariMyndin Umræða 15miðvikudagur 17. október 2012 N ýtt frumvarp um breytta skip- an strandveiða hefur nú verið lagt fram á Alþingi af þremur þingmönnum. Markmið frum- varpsins er að jafna aðstöðu þeirra sem stunda strandveiðar, auka ör- yggi í veiðunum, stuðla að sjálfbær- um og vistvænum fiskveiðum með hóflegri sókn á fiskimiðin, efla at- vinnu og byggð í landinu og stuðla að jákvæðri samfélagsþróun. Flutn- ingsmenn eru Ólína Þorvarðardótt- ir (1. flm.), Mörður Árnason og Skúli Helgason. reynslan sýnir vankanta Þegar strandveiðunum var komið á 2009 var boðað að fyrirkomulag þeirra yrði endurmetið síðar í ljósi reynsl- unnar. Í þessum tilgangi hafa verið gerðar úttektir á strandveiðunum, samfélagslegum áhrifum þeirra og aflagæðum, sem sýna að strandveiðar eigi fullan rétt á sér sem valkostur við aðra útgerð. Frá upphafi hefur engu að síður gætt óánægju með áhrifin af svæða- skiptingu strandveiðanna sem leitt hefur til ójafnvægis og mismunun- ar. Þegar við fyrstu umræðu um málið sumarið 2009 var varað við svokölluð- um „ólympískum veiðum“ sem beinni afleiðingu af þeirri ójöfnu aðstöðu sem bátar hafa til að sækja strand- veiðiafla í hinum fjórum landshluta- bundnu hafsvæðum sem lögin kveða á um. Svæðin fjögur henta misvel til strandveiða. Á svæði A eru gjöfulu- stu og nálægustu miðin. Flestir bátar sækja því um strandveiðileyfi á svæði A og þar er mesta sóknin, kappið og veiðiharkan, þá fáu daga sem smá- bátarnir geta sótt strandveiðiafla á því svæði. Þetta hefur valdið vaxandi áhyggjum af öryggi smábátasjómanna vegna stífrar sóknar í misjöfnum veðr- um, einkanlega út af norðvesturhorni landsins. Bátar á öðrum svæðum eru mun færri, hafa rýmra svigrúm til þess að sækja sinn afla og fá auk þess meira í sinn hlut. aukið jafnræði Strandveiðar eru hugsaðar sem jákvæð- ur valkostur við aðra útgerð og atvinnu yfir sumartímann. Þeim er ætlað að auka jafnræði og nýliðun í sjávarútvegi á sjálfbærum og vistvænum forsendum. Þeim er ekki ætlað að ógna öryggi þeirra sem veiðarnar stunda, eða stuðla að misskiptingu með tilheyrandi hættu á slælegri aflameðferð eða hroðvirknisleg- um veiðiaðferðum. Vegna þessa leggjum við til að fyr- ir upphaf hvers strandveiðitímabilsins verði opnað fyrir umsóknir um strand- veiðileyfi í tvær vikur. Þegar fyrir liggur hversu margir hafa sótt um og fengið strandveiðileyfi, verði heildaraflamagn- inu skipt jafnt á milli þeirra báta. Magn- ið getur verið breytilegt milli ára, eftir fjöldanum sem sækir um hverju sinni, enda ekki um varanlega úthlutun að ræða, eða hlutdeild sem veitir hefðarrétt af neinu tagi og ekki má veðsetja, leigja eða selja þessar aflaheimildir. Ráðherra er hvenær sem er heimilt að stöðva veiðarnar eða færa báta til milli svæða eftir veiðiþoli svæða – enda gerir frum- varpið ráð fyrir að hvergi verði hvikað frá markmiðum umhverfis- og sjálfbærni- sjónarmiða við framkvæmdina. Eignarhaldið Í gildandi lögum er kveðið á um að þeim bátum sem nýttir eru til strandveiða sé ekki haldið að öðrum veiðum, enda er það yfirlýst markmið með strandveiðun- um að „sem flestum sé gert mögulegt að stunda frjálsar handfæraveiðar með ströndinni á sjálfbæran hátt.“ Reynslan sýnir þó að sterkir útgerðar- aðilar hafa verið að gera út fjölda strand- veiðibáta í samkeppni við smábátasjó- menn sem eru einir að sínum veiðum, og sé jafnvel látið nægja að sýna fram á 1% eignarhald á báti til þess að uppfylla ákvæði laganna um að eigandi sé lög- skráður á strandveiðibát. Þetta samræm- ist heldur ekki upphaflegum tilgangi laganna um strandveiðar og því leggjum við til að um raunverulegt eignarhald sé að ræða, þ.e. 51% eignarhlut. reynslan af strandveiðunum Háskólasetur Vestfjarða var fengið til þess að gera úttekt á framgangi og áhrif- um strandveiðanna eftir fyrsta sumarið 2009. Úttektin sýndi að almenn ánægja var með samfélagsleg áhrif veiðanna og almennt fyrirkomulag þeirra ef undan er skilin gagnrýni sem fram kom á svæða- skiptinguna og áhrif hennar fyrir öryggi sjómanna, m.a. hjá Vaktstöð siglinga. Úttektin leiddi í ljós að byggðasjónar- mið hefðu náð fram. Úttektin sýndi að 2/3 hlutar þeirra sem stunduðu strand- veiðarnar voru sjómenn að atvinnu, 40% höfðu yfir aflahlutdeild að ráða, nýliðar voru 20% útgerðaraðila á strandveiðum og 60% aðspurðra töldu veiðarnar hafa fært þeim mikilvæga þekkingu og reynslu. Þá gerði Fiskistofa úttekt á gæðum strandveiðiafla sumarið 2011. Sú út- tekt leiddi í ljós að strandveiðiflotinn kæmi vel út í samanburði við hina hefðbundnu dagróðrabáta og að ekki væri greinanlegur marktækur munur á milli þessara útgerðarflokka. Fram kom einnig að meðferð strandveiðiafla færi batnandi með aukinni reynslu þeirra sem veiðarnar stunda og gert var ráð fyrir að svo yrði enn frekar fyrir áhrif markaðarins vegna samhengis verðs og gæða. Þá var átak gert í fræðslu, mælingum og eftirliti hjá dagróðrabát- um sumarið 2011 sem Fiskistofa telur mikil vægt að stjórnvöld tryggi að haldið verði áfram með. Í hnotskurn Strandveiðar hafa sannað gildi sitt sem viðbót og valkostur í atvinnuflórunni. Þær hafa nú verið stundaðar í fjög- ur sumur, og á þeim tíma hefur gefist ráðrúm til þess að meta kosti og ágalla við framkvæmd veiðanna. En þó að veiðarnar hafi sannanlega stuðlað að jákvæðri samfélagsþróun í dreifðari byggðum sem hafa átt undir högg að sækja undanfarna áratugi er hverjum manni ljóst að framkvæmdina má bæta með því að draga úr áhættusókn og mis- munun innan kerfisins og uppfylla þar með enn betur markmið löggjafans með þessum veiðum. Í þeim tilgangi er frumvarp þetta nú lagt fyrir Alþingi. Kjallari Ólína Þorvarðardóttir „Strandveiðar eru hugsaðar sem já- kvæður valkostur við aðra útgerð og atvinnu yfir sumartímann. Betri skipan strandveiða „Ég tapaði peningunum“ Rúmenskur viðskiptajöfur felur sig í Reykjavík. – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.