Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1964, Blaðsíða 13

Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1964, Blaðsíða 13
ATVINNUTEKJUR ALÞÝÐUSTÉTTA hjónum með 2,24 börn að meðaltali. Með fjölskyldubótum er reiknaður svonefndur „kjötstyrkur“, er var afnuminn árið 1950. Þar sem fjölskyldubætur fyrir hvert barn hafa ver- ið misjafnar eftir fjölda barnanna, er reikn- að með „dreifingu" barnafjöldans, þ. e. með mismörgum börnum í fjölskyldu í þeim hlut- föllum, er gilda við útreikning vísitölu fram- færslukostnaðar. Hins vegar þótti ekki taka því að reikna persónufrádrátt með þeim hætti. Af töflu 8 má sjá, hvernig beina sköttunin þróaðist með árunum, og hver áhrif hún hafði á atvinnutekjurnar. Skattarnir eru færðir til álagningarárs, sem í flestum tilvikum á að falla saman við greiðsluár. Fyrir áhrif „kjöt- styrksins“ var byrðin létt árið 1948, aðeins 5% af meðaltekjum verka-, sjó- og iðnaðarmanna, en árið 1950, er styrkurinn var felldur niður, varð byrðin 7%. Úr því hélzt meðalhlutfallið lítt breytt til ársins 1956, er það hækkaði mjög, og náði síðan hámarki 13% árið 1957. Árið 1959 var beina sköttunin hæst að upp- hæð, 8520 kr. nettó, og var þá 11% af tekj- unum. En með árinu 1960 var beina sköttun- in lækkuð um meira en helming, aðallega með fjölskyldubótunum að því er varðar þá fjöl- skyldustærð, sem hér er stuðst við eða nið- ur í 3478 kr. Hélst sköttunin í svipaðri upp- hæð til ársins 1962 og var þá aðeins 3.7% af tekjunum. Eins og kunnugt er, eru skattar hér á landi greiddir af tekjum ársins á undan. Þau ár, sem sveiflur verða á tekjunum leiðir þetta til þess, að sveiflurnar verða meiri en ella, í stað þess að æskilegt væri, að skattarnir hefðu áhrif í þá átt að jafna sveiflurnar. Einkar skýrt kemur þetta í Ijós af tölum áranna 1957 og 1958. Kaupmáttur atvinnutekna Atvinnutekjurnar hafa verið umreiknaðar til verðlags ársins 1962 eftir vísitölu neyzlu- vöruverðlags. Þessi vísitala er orðin mönnum svo kunn, að ekki ætti að þurfa að skýra hana nánar,, en vísitala þessi er afbrigði af vísitölu framfærslukostnaðar, þar sem húsnæðislið, beinum sköttum, og fjölskyldubótum hinnar síðarnefndu hefur verið sleppt. Svarar vísi- talan þannig aðeins til verðlags þeirra gæða, er keypt verða á markaðnum, að húsnæði undanteknu, en tekur ekki tillit til annarra skatta og styrkja en þeirra, sem koma fram í verði vara eða þjónustu. Notuð er meðal- vísitala hvers árs. Meðalatvinnutekjurnar árið 1962 lágu nærri 100 þúsund krónum. Eru því upphæðirnar á verðlagi þess árs, sbr. töflu 2, mjög handhæg- ar til samanburðar raunverulegra tekna við fyrri ár, en auk þess eru vísitölur rauntekn- anna birtar í töflu 7, í neðri hluta beggja taflnanna. Þeim, sem hafa kynnt sér skýrslur um þró- un þjóðarframleiðslunnar frá stríðslokum, mun koma ferill kaupmáttar atvinnuteknanna kunnuglega fyrir sjónir. Upphafsár skýrslunn- ar, 1948, voru þjóðartekjur á mann 5% lægri en árið áður, en um 1% lægri en árið þar á undan, 1946. Atvinnutekjurnar árið 1948 munu því hafa verið rétt við hámark þess, er þær höfðu náð að kaupmætti fyrstu árin eftir styrjöldina, áður en verulegir erfiðleikar héldu innreið sína. Næstu árin hnignaði kaupmætti atvinnu- teknanna ört og komst hann árið 1952 niður í 75% af kaupmættinum árið 1948. Ekki er fyrir hendi vitneskja um, hve mikið af þeirri hnignun var af völdum atvinnusamdráttar og hve mikið af rýrnun kaupmáttar meðalat- vinnutekna. En leiða má getum að því, að hvor þessara þátta hafi valdið nálægt helm- ingi. Atvinnutekjur verkamanna og sjómanna náðu lágmarki kaupmáttar árið 1952, en iðn- aðarmanna árið áður. En mjög litlu munaði milli þessara ára bæði í heildarmeðaltali og meðaltali einstakra stétta. Hins vegar munaði talsverðu á þróun Reykjavíkur annars vegar og kaupstaða og kauptúna hins vegar, þar sem 3 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Úr þjóðarbúskapnum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.