Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1964, Page 15

Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1964, Page 15
ATVINNUTEKJUR ALÞÝÐUSTÉTTA Mynd 3 til, að þróunin á föstu verðlagi hefur skýrari og ákveðnari þýðingu, og eins hitt, að torvelt er að sjá, við hvaða hugtak þjóðartekna pen- ingatekjurnar eru fyllilega sambærilegar með tilliti til þeirra umfangsmiklu breytinga skatta og tilfærslna, sem átt hafa sér stað á tíma- bilinu. Neyzluverðlagið felur í sér breytilegt hlut- fall óbeinna skatta og styrkja. Afstaða kaup- máttar atvinnutekna miðað við þjóðartekjur á föstu verðlagi sýnir því ekki hreina mynd tekjuskiptingar milli framleiðsluþáttanna. Skipti hins opinbera við þegnana blandast þar inn í. Hins vegar er sú mynd ekki dregin til fulls, fyrr en reiknað hefur verið með bein- um sköttum og þeim bótum, er mjög margir launþegar taka við. Þetta er gert með þeim útreikningum, sem birtir eru í töflu 8. Slíkir útreikningar eru háðir þeim annmarka, að þjónusta hins opinbera við borgarana og framkvæmdir þess í þeirra þágu eru ekki metnar sem framlag til Hfskjaranna. En þar sem það framlag fer hægt vaxandi, skakkar ekki miklu yfir skemmri tímabil. Þannig á samanburðurinn við um hlutskipti hlutfallslega stórs, en þó takmarkaðs hóps launþega, sem slíkra, við ákveðin fjölskyldu- skilyrði, gagnvart þjóðfélaginu öllu á hinn bóginn, þ. e. a. s. gagnvart öllum launþegum, einnig umræddum hópi, fyrirtækjum, fjár- magnseigendum og öllum opinberum aðilum. í eftirfarandi yfirliti er stillt saman nokkrum vísitölum úr meðfylgjandi töflum, ásamt vísi- tölu þjóðartekna á mann. Reiknuð er afstaða heildarmeðaltals atvinnutekna til þjóðartekna á mann, og er þar reiknað bæði með atvinnu- tekjunum, áður en skattar hafa verið greidd- ir og með ráðstöfunartekjunum, eftir að skatt- ar hafa verið greiddir og tekið hefur verið við fjölskyldubótum. Vísitölunum er raðað þannig, að hækkunin fer stígandi frá einni vísitölunni til annarrar. Samanburður vísitalnanna leiðir glöggt í ljós, hversu mishratt þróunin hefur gengið og 13

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.