Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1964, Page 31
Fjármunamyndunin 1962
Skýrslugerð á vegum Efnahagsstofnunarinnar um ffármunamyndun
hefur Haraldur Ellingsen, viðskiptafræðingur, annazt.
Inngangur
Hér fer á eftir skýrsla um fjármunamynd-
unina árið 1962, sem Efnahagsstofnunin hefur
unnið í umboði Framkvæmdabankans. Jafn-
framt eru í skýrslunni birtar endurskoðaðar
tölur um fjármunamyndun áranna 1957—1961.
Þessar tölur höfðu áður verið birtar í þjóð-
hags- og framkvæmdaáætlun ríkisstjómarinn-
ar, er var lögð fram í apríl sl. Hefur þeim ekki
verið breytt hér að öðru leyti en því, að nokkr-
um smærri liðum, er heimildir voru ekki nær-
tækar um, hefur nú verið bætt við, auk þess
sem lítils háttar breytingar hafa verið gerð-
ar á reikningshætti sumra liða. Hefur sú end-
urskoðun verið gerð fyrir öll árin 1957—1961.
Ekki er ástæða til að gera hliðstæða leiðrétt-
ingu á tölum ára fram að 1957 vegna þess um
hversu smáa liði er hér að ræða.
Fram til þessa hefur yfirleitt verið talað
um fjárfestingu og fjármunamyndun í sömu
merkingu. I þjóðhags- og framkvæmdaáætl-
uninni hafa þessi hugtök hins vegar verið skil-
greind á þann veg, að fjármunamyndun nái
til varanlegra fjármuna, en fjárfesting geti
bæði náð til varanlegra fjármuna og breytinga
birgða og bústofns. Mun þessari skilgreiningu
einnig verða fylgt hér og aðeins fjallað um
fjármunamyndunina, enda liggja ekki fyrir
heimildir um heildarbreytingu birgða.
Heildar fj ármunamy ndunin
Fjármunamyndunin í þjóðarbúskapnum í
heild á verðlagi hvers árs, er sýnd í 1. töflu.
Einnig sýnir sú tafla skiptingu í meginflokka
eftir atvinnugreinum eða fjármunaflokkum.
Með tilliti til þeirra verðbreytinga, sem átt
hafa sér stað á tímabilinu, er samanburður
milli ára á verðlagi hvers árs ekki markverður.
Þess vegna hefur fjármunamyndunin verið
umreiknuð til verðlags ársins 1960 eftir þeim
verðbreytingum, sem við eiga um hverja teg-
und fjármuna um sig. Er sú niðurstaða einn-
ig sýnd í töflunni.
Það kemur í ljós, að heildarfjármunamynd-
un var að magni til mjög svipuð á árinu 1962
eins og hún var á árunum 1957—1959, en þau
ár var fjármunamyndunin tiltölulega mjög
jöfn frá ári til árs. Á hinn bóginn varð mikil
sveifla í fjármunamynduninni árin 1960—1961,
fyrst til hækkunar, en síðan lækkunar. Árið
1960 var langmesta fjármunamyndun, sem
orðið hefur hér á landi fram til ársins 1963,
en ekki er enn sýnt, hve miklu það ár muni
skila umfram árið 1960. Fjármunamyndunin
árið 1960 var 9% meiri en árið áður. Meira
en öll hækkunin stafaði af auknum kaupum
fiskiskipa, þannig að fjármunamyndun af inn-
lendum uppruna mun fremur hafa dregizt
saman en aukizt. Fjármunamyndun ársins
29