Fréttablaðið - 08.11.2014, Qupperneq 24
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
NÚA OG NÍU, fallega barna-
bók sem Þorgrímur Þráinsson
skrifar og Lína Rut Wilberg
myndskreytir.
Af tilefni útgáfu bók-anna Bassbar munu einir fremstu bassbarí-tónar Íslands standa saman á sviði annað kvöld í Salnum og
flytja sönglög sem sérstaklega
eru útfærð fyrir þeirra raddir.
„Bassbarítónar eru neðri radd-
ir karlmanna og ég ákvað að gefa
út bækur fyrir þessa rödd vegna
vöntunar á slíku,“ segir Jón
Kristinn Cortez, tónlistarkennari
og útgefandi bókanna tveggja,
en hann er langt kominn með
þriðju og fjórðu bókina í flokkn-
um. „Fyrir mörgum árum bað
einn af þessum bass barítónum
mig um að lækka fyrir sig lag
og tautaði um leið að það væru
aldrei skrifuð lög fyrir hans líka.
Þegar tónskáld skrifa lög hafa
þau ákveðna raddgerð í huga og
það vill verða þannig að bass-
barítónar ná ekki nógu hátt til að
syngja lögin.“
Í framhaldi af þessu samtali
einsetti Jón Kristinn sér að leita
uppi þau lög sem eru til fyrir
röddina og bæta við fleiri lögum
sem hann hefur lækkað um einn
tón eða einn og hálfan. Lögin eru
samtals þrjátíu og tvö og hefur
Jón Kristinn fengið fríðan flokk
til að flytja lög úr bókinni fyrir
sig á útgáfutónleikum.
„Þessir góðu söngvarar hafa
aldrei staðið allir fimm saman á
sviði og verður gaman að fylgj-
ast með þeim flytja þessi karl-
mannlegu sönglög íslenskra
tónskálda,“ segir Jón Kristinn,
en segir fólk þurfa að meta það
sjálft hvort bassbarítónar séu
ímynd karlmennskunnar. „Inn
á milli er viðkvæmni sem sýnir
mjúku hliðina líka,“ bætir hann
við hlæjandi.
Það eru ekki margir sem
gefa út tónbækur á Íslandi en
nýlega var þó stofnað Samband
íslenskra tónbókaútgefenda, og
er útgáfa Jóns Kristins hluti af
því. Jón Kristinn hefur þó lengi
verið í bransanum og hóf útgáfu
í kringum 1970 en af illri nauð-
syn. „Kennararnir í tónskól-
anum voru með mjög misgóða
handskrift og maður eyddi oft
dágóðum tíma í að ráða í skrift-
ina. Það varð til þess að ég fór
að leita ýmissa ráða til að skrifa
greinilega en það er ekki fyrr en
tölvutæknin kom til sögunnar að
skurkur verður í þessu.“
Meðal vinsælla laga sem
samin eru fyrir bassbarítóna
eru Sverrir konungur og Nótt en
Jón Kristinn segist ekki ætla að
bera þau á borð á tónleikunum.
„Ég reyni frekar að leyfa fólki
að heyra í lögunum sem eru ekki
eins mikið sungin til þess að
vekja athygli á þeim. Enda alveg
þess virði að syngja og hlusta á.“
Þessir
góðu söngv-
arar hafa
aldrei staðið
allir fimm
saman á sviði
og verður
gaman að fylgjast með
þeim flytja þessi karl-
mannlegu sönglög ís-
lenskra tónskálda.
Jón Kristinn Cortez
Á TÓNLEIKA með franskri
saxófóntónlist í Hannesarholti
á sunnudag með saxófón-
leikaranum Guido Bäumer og píanó-
leikaranum Aladár Rácz.
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@365.is
Sykurpúðasúkkulaði
450 ml mjólk
100 g dökkt súkkulaði
8 sykurpúðar (og einn í
hvern bolla)
Settu mjólkina í pott,
brjóttu súkkulaðið í
bita og settu þá út í
ásamt sykurpúðanum,
hitaðu og hrærðu stöð-
ugt þar til súkkulaðið er
bráðnað og sykurpúð-
arnir líka. Helltu í bolla,
settu sykurpúða út í
hvern bolla og berðu
fram.
Heitt súkkulaði sem yljar og gælir við bragðlaukana
Nanna Rögnvaldardóttir gefur tvær góðar uppskrift ir að súkkulaðidrykkjum sem henta vel í nóvemberkulda.
Kryddað koníakssúkkulaði
300 ml vatn
2 msk. kakóduft
2-3 msk. hrásykur (eða hvítur sykur)
Cayennepipar á hnífsoddi
Negull og salt á hnífsoddi
300 ml mjólk
2 msk. koníak (eða calvados eða romm)
Þeyttur rjómi
Settu vatn í pott og hitaðu að suðu.
Blandaðu kakódufti, sykri, cayenne-
pipar, negul og salti saman í lítilli skál
og hrærðu saman við þegar sýður.
Hrærðu svo mjólkinni saman við,
hitaðu og láttu suðuna koma vel upp.
Taktu þá pottinn af hitanum og hrærðu
koníakinu saman við. Gott að bera fram
með rjóma og chili-súkkulaðiflögum.
Á LJÚFA TÓNA af nýrri plötu
hljómsveitarinnar Valdimar
sem ber nafnið Batnar
útsýnið.
Á KONUNA Í BÚRINU á RÚV
í kvöld en myndin er byggð á
bók hins vinsæla glæpasagna-
höfundar Jussi Adler-Olsen.
Bassbarítónar flytja
karlmannleg sönglög
Jón Kristinn Cortez ákvað að safna saman íslenskum sönglögum fyrir bassbarítóna sem eru
neðri raddir karlmanna. Af því tilefni koma fimm fremstu bassbarítónar landsins saman fram.
BASSBARÍTÓNAR Jóhann Smári Sævarsson, Davíð Ólafsson, Bergþór Pálsson, Viðar Gunnarsson og Kristinn Sigmundsson
voru reffilegir á æfingu fyrir tónleikana. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Jónína Leósdóttir rithöfundur
Knús og lestur
Ég ætla að vakna snemma og skunda í Norræna
húsið og hlusta á Ágúst Einarsson prófessor segja
frá hagrænum áhrifum ritlistar. Það sem eftir er
helgarinnar ætla ég svo að njóta þess að knúsa
mína nánustu, en ég hef ekkert getað knúsað
þau vegna veikinda síðustu tvær vikurnar. Svo
mun ég lesa bækur, kíkja á kaffihús og borða
brakandi ferskt grænmeti.
Orri Huginn Ágústsson
leikari
Leikhúshelgi
Ég ætla að sýna Línu Lang-
sokk tvisvar í dag og tvisvar
á morgun. Sá litli tími sem
ég hef aflögu eftir það fer
í að rækta fjölskylduna og
líkamann.
Áslaug María Friðriksdóttir
borgarfulltrúi
Vinna og kaffi drykkja
Í dag fer ég í fjölskylduafmæli
og strax í kjölfarið hitti ég
hressar konur í borgarstjórn. Á
morgun mun ég sjá sýninguna
Vara-litir og drekka kaffi
með einhverjum sem nennir.
Bryndís Björgvinsdóttir
rithöfundur
Nirvana-tónleikar
Ég verð að fara á Nirvana
þar sem ég búin að vera með
hljómsveitina á heilanum
síðustu tvö ár, því í bókinni
Hafnarfjarðarbrandarinn er
ein persónan mikill aðdáandi.
HELGIN
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...