Fréttablaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 28
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28 Þjálfarinn Halldór Kári hét hann heldur betur flottur, hafði fyrir sið að temja rottur. Er þolinmæði þraut þess í staðinn naut að þjálfa út’ á svölum silfurskottur. Í útgáfupartíinu á mánudaginn, sem haldið verður í Eymundsson í Austurstræti klukkan 17, notar Egill tækifærið og styrkir gott málefni. Hann hefur tekið sig til, unnið upp og rammað inn 50 myndir úr bókinni sem verða til sýnis og sölu á staðnum á mjög sanngjörnu verði. Öll innkoma af sölunni mun renna til ABC-barna- hjálpar. eftir að börnin komu heim og ég leiddi ekkert frekar hugann að þeim, en fyrir þremur árum rifj- ast það upp fyrir mér að einhvers staðar séu þessar vísur niðurkomn- ar og ég fer að lesa þær. Þá sé ég þarna eina og eina vísu sem mér finnst ekki svo vitlaus. Ég hef þá samband við mikla og góða vinkonu mína, sem nú er látin, Elínu Snædal, sem var frábær íslenskumanneskja og kunni bragfræði út í æsar, og bið hana að kíkja á vísurnar fyrir mig. Síðan vorum við að henda þessu á milli okkar í tæpt ár, það varð að einhverjum leik hjá okkur, án þess að mér dytti nokkur bók í hug. Elín var mjög hörð við mig þegar kom að bragfræðinni og ég komst ekki upp með nein undanbrögð. Hún nær að fara yfir um hundrað vísur, henti sumum og samþykkti aðrar og ég hlýddi henni auðvitað. Svo ger- ist það fyrir rúmu ári að Ella deyr í bílslysi og upp úr því fer ég að hugsa að ég ætti kannski að gera eitthvað úr þessu. Við höfðum eytt svo miklum tíma í vísurnar og við skemmt okkur svo vel yfir þess- ari vitleysu allri að mér fannst að ég yrði að sýna því einhvern sóma.“ Teiknað á iPad á Indlandi Þótt vísurnar væru tiltækar var þó stærsta verkefnið eftir; að mynd- skreyta þær. Egill hafði reyndar alltaf sent litlar teikningar með þeim til barnanna en þurfti að útfæra þær betur og ákvað að taka sér frí úr vinnu, fara eitthvert til hlýrri landa og teikna eins og óður maður. „Ég hafði nú bara hugsað mér að búa til nokkur eintök af lít- illi bók og gefa börnunum mínum og barnabörnum í jólagjöf, útgáfa var enn ekki inni í myndinni. Það er svo um miðjan desember í fyrra sem ég fæ upphringingu frá Völu Matt vin- konu minni sem segist vera búin að finna stað á Indlandi fyrir mig. Hún var þá stödd á Seyðisfirði hjá henni Þóru sem á og rekur hótel á Indlandi og ég var yfir mig hrifinn af þess- ari hugmynd. Hafði langað til Ind- lands alveg síðan Bítlarnir voru þar í denn og fyrr en varði var ég búinn að bóka herbergi á hótelinu hjá Þóru í fimm vikur. 15. desember er ég svo mættur þar til að stunda hug- leiðslu og teikna, sem ég og gerði. Þetta var þvílíkt upplifelsi, búandi á þessu yndislega hóteli, kynnast Þóru og starfsfólkinu sem allt var dásamlegt. Það endaði með því að ég fór eiginlega ekkert af hótelinu, fékk að borða með starfsfólkinu þótt það væri ekki seldur matur á hótel- inu, labbaði um þennan „litla“ bæ þar sem búa sex til sjö hundruð þús- und manns og teiknaði og teiknaði.“ Ellefu stíflur í hjartanu Afrakstur Indlandsdval arinnar voru hundrað teikningar, allar teiknaðar á iPad, og Egill sá fram á það að sennilega væri þetta bara efni í bók. „Ég banka upp á hjá þeim í Veröld og þeir segjast ætla að kíkja á þetta og ég er sáttur við það. Á meðan ég er að bíða eftir svari frá þeim fæ ég reyndar um nóg annað að hugsa því ég fæ þær óvæntu upplýsingar að hjartað í mér sé allt stíflað. Þetta kom fram við reglubundið eftirlit en ég hafði ekki fundið fyrir neinu nema því að mér fannst ég vera orðinn svo latur. Ég var orðinn allt of feitur og tengdi þessa leti bara því að ég væri að eld- ast. Eftir tólf, fjórtán tíma vinnu- dag hér í sjónvarpinu var ég hætt- ur að nenna að taka upp pensil og vinna næstu sex tímana við að mála í vinnustofunni heima. En, sem sagt, ég fór í hjartaþræðingu og þá kemur í ljós að það eru ellefu stífl- ur í hjartanu. Þremur dögum síðar fór ég í aðgerð og það var skipt um sex æðar í hjartanu í mér. Ég var í fríi í þrjá mánuði, fór í mánuð í endurhæfingu á Reykjalundi og er núna, fimm mánuðum eftir aðgerð- ina í betra formi en nokkru sinni. Það var nákvæmlega ekkert drama í þessu en ég tek þetta mjög alvar- lega. Finnst ég hafa fengið aðvörun um að nýta lífið betur og er bara á fínu flugi.“ Veraldarmenn hrifust af vís- unum og teikningunum og ákveðið var að velja rúmlega þrjátíu þeirra til útgáfu í bókinni Ekki á vísan að róa og Egill segir ferlið hafa verið mjög skemmtilegt. „Ég hafði aldrei kynnst bókaútgáfu fyrr og hafði mjög gaman af því. Þessar vísur, sem voru upphaflega bara sálu- hjálp fyrir sjálfan mig, hafa von- andi eitthvað að segja fleiri krökk- um en mínum. Ég tileinka bókina börnunum mínum sex og barna- börnunum fjórum og svo eru auð- vitað í henni kærar þakkir til Ellu vinkonu minnar.“ Verður aldrei neitt úr mér Egill varð 67 ára fyrir stuttu en það hvarflar ekki að honum að draga sig í hlé. „Ég sagði nú við útvarps- stjóra að ég hefði átt von á því að þeir ætluðu ekki að losa sig við mig á þeim tímamótum og senda mig á stofnun. Hann sagði mér að hafa ekki áhyggjur af því, það væri nóg fyrir svona reynslubolta að gera. Ég hef heldur aldrei hugsað þá hugsun að hætta að vinna en það kemur auðvitað að því með mig eins og aðra og þá bara tekur maður því. Ég hef reynt í gegnum tíðina að líkjast föður mínum sem var ein- stakur maður og ég mun aldrei ná að líkjast honum nægilega. Hann var svo yndislega ljúfur og góður og sá alltaf eitthvað gott við allt. Honum fannst lífið bara geggjað. Hann dó níutíu og þriggja ára eftir að hafa verið rúmliggjandi heima í tvö ár en það var alveg sama hvenær maður heimsótti hann og spurði hvernig hann hefði það þá sagði hann alltaf: „Ég hef það virki- lega gott, vinurinn minn.“ Þetta við- horf hef ég reynt að temja mér, ég er ekki að segja að mér hafi tek- ist það, en mér finnst þessi tilvera bjóða upp á tækifæri til að gera svo ótrúlega hluti. Ég hef alltaf reynt að gera það sem ég hef tekið að mér vel og búa til eitthvað sérstakt. Ég er svo heppinn maður, mér þykir óskaplega vænt um börnin mín öll, tengdadætur, barnabörn, alla mína góðu vini og reyndar allt fólk – nema leiðinlegt fólk, ég þoli það ekki. Mér finnst gaman að vinna með ungu fólki, eins og þeim Hrað- fréttavitleysingum, og bý örugglega yfir þó nokkurri reynslu sem getur komið að gagni. Það verður nátt- úrulega aldrei neitt úr mér, eins og Hörður sagði, en ég hef örugglega meira gaman af lífinu en margir sem ná miklum árangri á einhverju einu sviði. Mér tekst að njóta þess sem ég hef á hverjum tíma og finnst þessi tilvera meiriháttar.“ Egill er hafsjór af skemmtilegum sögum eins og meðfylgjandi saga ber með sér. Hér segir af því þegar hann, alls óvænt, varð fylgdarmaður Ringos Starr þegar hann spilaði með Stuðmönnum í Atlavík um árið. „Þegar Ringo var væntanlegur til landsins voru Stuðmenn flognir austur í Atlavík og báðu Jónas R. Jónsson að taka á móti honum þegar flugvélin lenti, koma honum í koju og fljúga svo með honum austur daginn eftir. Þetta var seinnipartinn á föstudeginum fyrir verslunarmannahelgi og ég var á leið í sumarbústað með mína fjölskyldu þegar Jónas hringir og segir að Ringo vilji endilega fara út að borða og við hjónin verðum að koma með. Við erum mætt hálftíma síðar á veitingahúsið Arnarhól og erum kynnt fyrir Ringo og Barböru konu hans. Jónas hafði fengið allar upp- lýsingar um þarfir stjörnunnar, meðal annars það að hann notaði ekkert krydd á matinn og gekk í það að verða við öllum þörfum Bítilsins. Við Jónas náttúrlega þóttumst það miklir heimsborgarar að það hvarflaði ekki að okkur að minnast á Bítlana en það fóru að renna á okkur tvær grímur þegar Ringo var sí og æ að vísa til einhvers frá Bítlatímanum. Fljótlega bætast Sigurjón Sighvatsson og Gunni Þórðar í hópinn og við setjumst að snæðingi. Það er mikið borðað og mikið, mikið drukkið og alltaf heldur Ringo áfram að tala um Bítlana. Það endar með því að ég get ekki stillt mig eftir að hafa horft á allar serímóníurnar í kringum mat trommarans og spyr hvernig í ósköpunum hann hafi eiginlega farið að á Indlandi þar sem allur matur er hressilega kryddaður. „Það var nú ekki flókið,“ sagði Ringo. „Ég pakkaði niður í tvær töskur. Í annarri var enskt kex og í hinni ensk sulta og þegar ég var búinn úr báðum töskunum þá pakkaði ég niður og fór heim.“ Eftir máltíðina var haldið í áframhaldandi gleðskap heima hjá Agli og þar var setið og spilað og drukkið fram á morgun. Egill segir það reyndar lygi sem haldið hefur verið fram að Bítillinn hafi viljað kók í koníakið. Hann hafi drukkið koníak í íslensku appelsíni, sem hafi verið eina blandið sem til var í ísskápnum. „Þarna erum við til klukkan sjö um morguninn við drykkju og spilerí, við Ringo spiluðum til dæmis fjórhent á píanóið og hann söng Yesterday. Gunni Þórðar lét senda eftir gítarnum sínum og spilaði með og þetta var hressandi. Þegar komið er að kveðjustund heimtar Ringo að við Gunni komum með austur í Atlavík, því þetta hafi verið svo gaman. Og það verður úr að við förum austur með honum, ég, Jónas og Gunni, og vorum upp frá því kallaðir bítla- gæslumennirnir eins og Stuðmenn sungu síðar um í laginu Hringur og bítlagæslumennirnir.“ Hringur og bítlagæslu mennirnir STYRKIR ABC-BARNAHJÁLP LISTAMAÐURINN Egill er með vinnu- stofu heima og málar flesta daga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fljótlega eftir að hún fór út varð það úr að við ákváðum að skilja og mikið tóma- rúm myndað- ist í lífi mínu. Þetta var þriðja hjóna- bandið mitt, þriðja fjöl- skyldan mín og ég hafði ekki séð annað fyrir en að loks væri ég kominn heill í höfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.