Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.11.2014, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 08.11.2014, Qupperneq 32
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Kristín ræddi í fyrsta skipti við systur sína um kynferðisofbeldi sem þær höfðu báðar verið beittar af manni innan fjölskyldunnar þegar aðrir þolendur höfðu lagt fram kærur á hendur manninum. Tugum ára eftir að brotin voru framin en Kristín hafði bælt niður sársaukann frá því hún var lítið barn. Eftir að systurnar opnuðu sig hvor fyrir annarri nálguðust þær dætur sínar, því þær óttuð- ust að gerandinn hefði einnig náð til þeirra. Þá kom í ljós að dætur Kristínar höfðu allar verið beittar kynferðisofbeldi en ekki af sama manni, heldur öðrum sem er þó einnig innan fjölskyldunnar. „Ég gleymi aldrei þegar elsta dóttir mín sagði mér hver ger- andinn væri. Mér fannst ég bíða heila eilífð þar til hún sagði nafnið. Þegar ég fékk svo að vita að þetta væri náinn fjölskyldumeðlimur sem við höfðum umgengist mikið frá fæðingu barna minna, þá bók- staflega hrundi heimurinn. Ég grét það sem eftir var dagsins og langt fram á nótt. Ég gat ekki sofnað af kvíða fyrir því að spyrja hinar dætur mínar. En svo spurði ég þær og svörin komu. Vonin um að þær hefðu sloppið varð að engu.“ Þegar dætur Kristínar voru að alast upp fór hennar lífsreynsla aldrei úr huga hennar og hún ætlaði að gera allt sem í hennar valdi stæði til að hlífa þeim við þeim sársauka sem hún hafði upp- lifað sjálf. „Ég var svo heppin að vinnan mín var þess eðlis að ég gat haft börnin mikið með mér. Ég var mikið í hestum og reyndi að vekja áhuga þeirra á þeim líka svo að þau væru sem mest í kring- um mig. Ég kenndi í skólanum þeirra, sá um félagsmiðstöðina og fór í flestar skólaferðir. En óttinn fylgdi mér alltaf. Þegar þær fóru í menntaskóla var ég hálfmóðursjúk að kynna mér alla vini þeirra og foreldra og kennara. En það dugði ekki til. Mér líður eins og mér hafi mistekist.“ Uppfull af samviskubiti Kristín segir mun erfiðara að ganga í gegnum þessa reynslu með dætrum sínum en að hafa gengið í gegnum hana sjálf. „Mín reynsla varð að engu um leið og ég vissi þetta. Ég veit hvað þær eiga eftir að ganga í gegnum út ævina því þetta fylgir manni alltaf. Ég upp- lifði gífurlega sorg og samvisku- bitið nagar mig, sem er samt svo skrýtið því ég hef aldrei hugsað að mamma mín hafi ekki passað mig nógu vel eða áfellst hana á nokk- urn hátt. Hún gat ekki heldur vitað hvað var að gerast.“ Kristín segist átta sig á að ef hún hefði talað fyrr um reynslu sína og talað opinskátt um kynferðislegt ofbeldi hefði hún mögulega getað passað enn betur upp á dæturnar. „Ég var margoft búin að reyna að opna mitt mál með viðtölum hjá Stígamótum og sálfræðingum. Ég stoppaði alltaf þegar kom að því Ég gat ekki sofnað af kvíða fyrir því að spyrja hinar dætur mínar. En svo spurði ég þær og svörin komu. Vonin um að þær hefðu sloppið varð að engu. Sumir skilja ekki af hverju er verið að rifja upp svona gömul mál, að þetta komi bara bletti á Þingeyri og sé vont fyrir samfélagið. Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@365.is Ætlaði að vernda dæturnar fyrir helvíti Kristín Auður Elíasdóttir var beitt kynferðisofbeldi af manni innan fjölskyldunnar þegar hún var barn og lofaði sjálfri sér að vernda börnin sín fyrir því að lenda í því sama. Það var henni því mikið áfall þegar hún fékk að vita að þrjár dætur hennar höfðu einnig verið beittar kynferðis- ofbeldi og hefur það tvístrað bæði fjölskyldunni og heilu bæjarfélagi. Á ÞINGEYRI Kristínu þykir afar vænt um heimabæ sinn, Þingeyri, og segir bæinn ekkert hafa með ofbeldið að gera heldur kalli gerendur óhamingjuna yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT REYNISSON að ég yrði að ég segja frá, því ég hræddist afleiðingarnar. Auð vitað vildi ég óska þess að ég hefði verið jafn kjörkuð og dætur mínar og talað um þetta opinskátt. Ég var oft komin mjög nálægt því að segja frá. En þegar ég var lítil þá vissi ég hreinlega ekki hvaða orð ég ætti að nota til að útskýra þetta fyrir mömmu. Mér fannst það allt svo ljótt. Mér finnst ég hafa oft verið grátandi sem barn þó að það hafi kannski ekki verið sýnilegt þar sem ég reyndi að fela það. Dýrin urðu aðalhuggararnir, þeim getur maður sagt allt í trúnaði. Nú sé ég að dætur mínar gerðu nákvæmlega það sama. Þær voru alltaf að biðja mig um að skutla sér í hesthúsið og vildu bara fá að vera einar með hestunum.“ Segja þær vera að skapa leiðindi Síðustu ár hafa einkennst af mikilli baráttu hjá mæðgunum. Fyrir utan djúp sárin sem þær reyna að láta gróa hefur málið tvístrað fjölskyld- unni og bæjarfélaginu. „Það vilja fáir taka afstöðu. Svo heyrir maður út undan sér að fólk segi að þetta geti ekki verið satt, að það trúi þessu ekki upp á manninn. En það er ákveðin afstaða. Það er bara það sama og segja að dætur mínar séu að ljúga, ásamt öðrum konum sem hafa lagt fram kærur, en alls eru þær sex. Í byrjun voru afar fáir sem þorðu að láta okkur finna að þeir legðu trúnað á fram- burð þolenda en þeim hefur fjölgað og faðmlögin sem við fáum verða fleiri með degi hverjum. Þau faðm- lög eru ótrúlega góð.“ Kristín segist halda að það sé margfalt erfiðara þegar svona mál koma upp í svo litlum bæ enda allir tengdir, annaðhvort vinir eða ætt- ingjar. „Sumir vilja ekki láta sjá sig tala við mig því einhver gæti frétt það. Ég fæ ekki ákveðna þjónustu því þjónustuaðilarnir eru tengdir þessum manni. Svo saka sumir bæjarbúar mig um þetta, segja að ég sé að koma öllu í óefni og búa til leiðindi. Fólki finnst við vera til vandræða. Sumir skilja ekki af hverju er verið að rifja upp svona gömul mál, að þetta setji bara blett á Þingeyri og sé vont fyrir samfé- lagið. Þingeyri hefur ekkert með þetta að gera. Það eru gerendu rnir sem kalla þessa óhamingju yfir en ekki þolendur og fjölskyldur þeirra. Gerendur eiga skömmina og enginn annar. Mér þykir óskap- lega vænt um flesta hér í þessum firði og þetta er mitt fólk. Því miður gengur bara ekki nógu vel að láta skömmina fara á sinn stað. Kannski finnst fólki einfaldara að láta okkur sitja uppi með hana.“ Hafa misst marga nákomna Málið er enn til rannsóknar hjá lögreglu og ekki hafa neinar kærur verið birtar. Af sex kærum á enn eftir að ljúka tveimur þeirra, hin fjögur málin voru fyrnd. Kristínu finnst erfitt hve langan tíma málið tekur því biðin geri allar aðstæður helmingi erf- iðari. „Ég veit samt að málið er mjög umfangsmikið og rannsókn öll mikil og erfið nákvæmnis- vinna. En dómsvaldið er að bregð- ast með því að hafa fyrningar- tíma. Svona mál eiga aldrei að fyrnast, fimmtán ár eru ekki lengi að líða og þegar kjarkurinn til að segja frá kemur loksins er við- komandi aðili í mörgum til fellum orðinn það fullorðinn að gerand- inn gengur í burtu án dóms, hvort sem hann játar eða þrætir.“ Þrátt fyrir erfiðleikana síðustu tvö árin segir Kristín að eina rétta leiðin hafi verið að leggja fram kærur og taka þennan slag. „Ég kærði mitt mál jafnvel þótt ég vissi að það væri fyrnt því það bjargar mögulega einhverjum öðrum frá því að lenda í þessu. Svo fær maður réttlætistilfinn- ingu í hjartað sitt alveg sama hvað viðbrögðin eða dóms kerfið eru óréttlátt. Þetta mál hefur gjörbreytt lífi okkar mæðgna en við hugsum aldrei að við hefðum átt að sleppa þessu. Við vissum að þetta yrði hreint helvíti og á margan hátt hefur raunin orðið sú. Við höfum misst nána ætt- ingja, fólk sem okkur þykir vænt um. Það er óskaplega sárt. En ég held að það geti bara ekki horfst í augu við þetta og ætli það sé ekki auðveldara að vera í afneitun- inni.“ Kristín er ekki viss um að fjöl- skyldur geti nokkurn tíma jafnað sig eftir svona harmleik og orðið þær sömu og áður. „Ég vona það, en ég er svolítið hrædd um að það verði aldrei eins. En það bara verður að koma með þessi mál upp á yfirborðið, sama hverjar afleiðingarnar eru. Ég er ekki að saka samfélagið en með breytt- um hugsunarhætti eru mun meiri líkur á að hægt sé að vernda börnin okkar betur. Þöggunin í samfélaginu smitast til barnanna, þau þegja líka. Ég veit um fólk sem segist hafa heyrt sögur, gruna einhvern um græsku, en það þegir. Af hverju ættu börnin þá að tala?“ spyr Kristín að lokum og hvetur foreldra til að ræða á opinskáan hátt við börnin sín um kynferðislegt ofbeldi. Hún vildi af öllu hjarta að hún hefði talað um það við dætur sínar fyrir tugum ára.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.