Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 36

Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 36
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36 Besti markvörður Pepsi-deildarinnar og leikmaður ársins að mati leik- manna hennar. Átti frábært tímabil og ein af ástæðunum fyrir því að Stjarnan vann Íslandsmeistaratitilinn. Hefur spilað á Ítalíu undanfarin ár og er í „eigu“ ítölsku meistaranna í Juv- entus en í láni hjá Cesena. Efnilegur strákur (21 árs) sem getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður. Markakóngur norsku úrvalsdeildarinnar. Náði ekki að nýta tækifæri sitt í haust og hefur aðeins kólnað niður á lokakafl- anum (1 mark í 6 leikjum) eftir að hafa skorað 24 mörk í fyrstu 22 leikjunum. Er og verður traustur varamaður í ís- lenska liðinu. Getur leyst fleiri en eina stöðu og hefur reynslu til að ráða við erfiðar kringumstæður. Fastamaður í belgísku úrvalsdeildarliði. Leiðtogi 21 árs landsliðsins og fastamaður í miðri vörn norska úrvalsdeildarliðsins Viking. Fram- tíðarmiðvörður íslenska landsliðsins en bíður enn eftir tækifærinu. HVERSU FAST BANKA ÞESSIR FIMM LANDSLIÐSMENN Á DYRNAR HJÁ LARS OG HEIMI Í LANDSLEIKNUM VIÐ BELGA? BIRKIR MÁR SÆVARSSON Hann hefur verið inni og úti í liði sínu í Noregi sem hefur þar að auki gengið illa. En með landsliðinu hefur hann staðið sig mjög vel líkt og hann gerði gegn Hollandi og það sýnir ef til vill viðhorfið í landsliðinu – menn eru tilbúnir að taka þær mínútur sem þeir fá og leggja sig alla fram. Ég á von á að það verði hans hlutverk áfram. Við erum með bakverði sem hafa staðið sig virkilega vel en menn hafa oft haft áhyggjur af þeirri stöðu. Það er því ekki verra að hafa aðra leikmenn til taks fyrir hana. Staða Hægri bakvörður Félag Brann í Noregi Aldur 29 Landsleikir/mörk 43/0 Undankeppni HM 2014 9 leikir, 728 mínútur, 0 mörk (67%) Undankeppni EM 2016 1 leikur, 45 mínútur, 0 mörk (25%) RÚRIK GÍSLASON Rúrik spilar hjá stóru liði á Norðurlöndunum sem gengur þar að auki vel. Hann þarf að vinna fyrir sæti sínu þar, rétt eins og í landsliðinu þar sem hann hefur verið í fremur litlu hlutverki. Ég held að hann þurfi að sætta sig áfram við að fá fáar mínútur með landsliðinu en það er einkar mikilvægt að menn sem eru fyrir utan nýtist liðinu vel og séu með rétt hugarfar. Það á sérstaklega við um Rúrik– hann þarf að koma inn og gera sitt, fremur en að reyna of mikið. Staða Hægri kantur Félag FCK í Danmörku Aldur 26 Landsleikir/mörk 31/2 Undankeppni HM 2014 9 leikir, 386 mínútur, 0 mörk (36%) Undankeppni EM 2016 3 leikir, 24 mínútur, 1 mark (13%) ALFREÐ FINNBOGASON Hann hefur ekki verið mikið inni á vellinum í upp- hafi tímabilsins. Þar að auki gengur liðinu hans illa og það er að ganga í gegnum þjálfaraskipti. Alfreð hefur ekki náð að sýna sitt besta enda hjá nýju liði, í nýju landi og annarri menningu. Landsliðið þarf þó á því að halda að hafa Alfreð tilbúinn því hann getur gefið okkur aðra möguleika í framherjastöðunni. Hann hefði nýst liðinu vel gegn Lett- landi þar sem framherjarnir okkar höfðu lítið pláss en ég tel hann þurfa fleiri leiki til að koma sér á fullan skrið. Staða Framherji Félag Real Sociedad á Spáni Aldur 25 Landsleikir/mörk 22/4 Undankeppni HM 2014 10 leikir, 586 mínútur, 2 mörk (54%) Undankeppni EM 2016 1 leikur, 13 mínútur, 0 mörk (7%) JÓHANN BERG GUÐMUNDSS. Hann hefur staðið sig vel hjá Charlton í Englandi og kannski betur en menn þorðu að vona, miðað við að þetta er hans fyrsta tímabil í nýrri deild og í nýju landi. Hann er leikmaður sem þarf ekki nema nokkrar mínútur til að breyta heilu leikjunum. Jóhann var óheppinn að meiðast skömmu fyrir lands- leikina í haust en hann gæti reynst liðinu afar mikilvægur gerist þess þörf að kalla hann inn. Það er gott að hafa góða menn tilbúna fyrir utan, sérstaklega menn eins og Jóhann Berg. Staða Vinstri kantur Félag Charlton í Englandi Aldur 24 Landsleikir/mörk 32/5 Undankeppni HM 2014 10 leikir, 622 mínútur, 3 mörk (58%) Undankeppni EM 2016 0 leikir SÖLVI GEIR OTTESEN Ragnar Sigurðsson og Kári Árnason hafa einfald- lega staðið sig mjög vel í íslensku vörninni, enda góðir varnarmenn sem hafa náð vel saman. En það má lítið út af bera. Ein meiðsli gætu breytt miklu og við vitum líka að þegar fram líða stundir munu varnarmenn fá spjöld og leikbönn. Við þurfum því að halda mönnum eins og Sölva, sem er ekki síðri varnar- maður en Ragnar og Kári, gangandi. Það mun koma að því að hans verður þörf í íslenska landsliðinu. Staða Miðvörður Félag Ural í Rússlandi Aldur 30 Landsleikir/mörk 25/0 Undankeppni HM 2014 3 leikir, 217 mínútur, 0 mörk (20%) Undankeppni EM 2016 0 leikir Ingvar Jónsson Hörður Björgvin Magnúss. Viðar Örn Kjartansson Ólafur Ingi Skúlason Sverrir Ingi Ingason FIMM LEIKMENN TIL VIÐBÓTAR SEM HAFA VERIÐ AÐ MINNA Á SIG Á SÍÐUSTU MÁNUÐUM Þrír sigrar í þremur leikjum og tandurhreint mark. Jú, það er auð-vitað engin ástæða til að breyta byrjunarliði íslenska landsliðs-ins sem hefur spilað frábærlega í upphafi undankeppni EM 2016 en það eru þó til metnaðarfullir leikmenn utan liðsins sem vilja og ætla sér að vera „með“ í ævintýrinu. Ísland mætir Belgíu í vináttulandsleik á miðvikudaginn aðeins fjórum dögum fyrir toppleik riðilsins við Tékka. Lars Lagerbäck hefur talað um að gefa leikmönnum tæki- færi í leiknum og hvíla lykilmenn liðsins sem eru flestir undir miklu álagi með félags- liðum sínum. Fréttablaðið hefur litið yfir hópinn og fundið til þá leikmenn sem eru næstir byrj- unarliði íslenska liðsins í dag. Þorvaldur Örlygsson, þjálfari HK, gefur umsögn sína um þá fimm leikmenn sem Fréttablaðið telur mikilvægast að fái mínútur í vináttulands- leiknum á miðvikudag. „Auðvitað er það svo að menn einbeita sér fyrst og fremst að leiknum gegn Tékklandi, óháð því hverjir spila gegn Belgíu. Hugurinn verður við síðari leikinn,“ bendir Þorvaldur á en á ekki von á að leikurinn gegn Belgíu muni breyta miklu nema meiðsli setji strik í reikninginn. „Leikmenn sem hafa staðið fyrir utan eru auðvitað spenntir fyrir því að fá tæki- færi til að sýna sig og sanna fyrir leikinn gegn Tékkum ef einhver byrjunarliðsmaður skyldi meiðast,“ segir hann. „Við vitum það innst inni að ef allir eru heilir þá munum við sjá sama byrjunarlið gegn Tékklandi og í hinum leikjunum þremur í undankeppninni.“ Þeir Lagerbäck og Heimir hafa stillt upp sama byrjunarliðinu í öllum þremur leikj- unum til þessa en eins og Þorvaldur bendir á snýst landsliðið um fleiri menn en aðeins þá. „Gott byrjunarlið myndast aðeins af því að það eru góðir leikmenn sem standa fyrir utan,“ segir Þorvaldur. Leikur Belgíu og Íslands fer fram á kon- unglega Baudouin-leikvanginum í Brussel sem áður hét Heysel-leikvangurinn. Fjórum dögum síðar, sunnudaginn 16. nóvember, mæta strákarnir okkar Tékkum í Plzen í toppslag A-riðils enda bæði lið með fullt hús stiga. Belgía og Tékkland eru bæði fyrir ofan Ísland á styrkleikalista FIFA, Belgía er í fjórða sæti og Tékkland í 22. sæti. Ísland er í 28. sæti og hefur aldrei verið ofar. Bankað á dyrnar í Belgíu Íslenska fótboltalandsliðið er komið upp í 28. sæti á FIFA-listanum og það er allt annað en auðvelt að vinna sér sæti í byrj- unarliði Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar. Fréttablaðið skoðar í dag hvaða leikmenn eiga möguleika á sæti í liðinu. Óskar Ó. Jónsson ooj@frettabladid.is Eiríkur St. Ásgeirsson eiríkur@365.is NÚLL MÍNÚTUR Jóhann Berg Guð- mundsson sló í gegn í síðustu undankeppni en hefur ekkert getað spilað með í fyrstu þremur leikjunum nú vegna meiðsla. N O RD ICPH O TO S/G ETTY Kári Árnason Aron E. Gunnarsson Jón D. Böðvarsson Hannes Þ. Halldórsson Theódór E. Bjarnason Birkir Bjarnason Ragnar Sigurðsson Gylfi Sigurðsson Kolbeinn Sigþórsson Ari F. Skúlason Emil Hallfreðsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.