Fréttablaðið - 08.11.2014, Síða 42
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN BÆKUR | 42
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Carl Jóhan Jensen, færeyska skáldið
sem sló í gegn með Ó - Sögum um
djöfulskap í fyrra, ætlar að þýða Jarð-
næði eftir Oddnýju Eiri Ævarsdóttur
á færeysku og Sprotin, hið metnaðar-
fulla færeyska forlag, gefur út. Áhugi
evrópskra útgefenda var vakinn á
bókinni með Bókmenntaverðlaunum
Evrópusambandsins, sem tilkynnt var
um á bókamessunni í Frankfurt og
afhent verða með viðhöfn í Brussel
18. nóvember, en Færeyingar verða
vísast fyrstir til að gefa bókina út á
erlendri grundu, því Carl Jóhan var
langt kominn með að þýða hana
þegar útgefandinn rankaði við sér,
enda er Oddný í miklu uppáhaldi hjá
honum.
Carl Jóhan þýðir JarðnæðiKAMP KNOX TVÖFÖLD Á
TOPP TÍU
Kamp Knox
Arnaldar
Indriðasonar kom
út 1. nóvember og
stökk beint í fyrsta
sæti metsölulista
Eymundsson. Hún
er reyndar tvisvar
á listanum því í 7.
sæti er kiljuútgáfa
bókarinnar.
Unglingasagan Hjálp markar 25 ára
rithöfundarafmæli Þorgríms Þráins-
sonar en hann lætur ekki þar við sitja
og semur líka textann í myndabók Línu
Rutar Wilberg, Núi & Nía. Þetta kallast
að halda upp á afmæli með stæl.
Þorgrímur með tvær
Hluti af rithöfundar-djobbinu er auðvitað að vera í sambandi við hræringar heims-ins og allir sem hafa fylgst með vissu það
að Ísland var að sigla inn í eldgosa-
tímabil eftir tiltöluleg rólegheit
síðustu áratugina,“ segir Steinunn
Sigurðardóttir spurð hvers vegna
hún hafi gert aðalpersónu nýrr-
ar skáldsögu sinnar, Gæðakonur,
að eldfjallafræðingi. „Þar að auki
dreymdi mig um það alveg frá
því ég var að vinna á fréttastofu
útvarps að hafa jarðvísindamann í
aðalhlutverki. Mér þótti alltaf svo
varið í að tala við þá stétt. Og nú er
ég svo heppin að margar konur eru
komnar í þetta karlastarf. Kannski
læðist að einhverjum sá ljóti grunur
að ég hafi gert Maríu að sérfræð-
ingi í Bárðarbungu eftir að eldsum-
brotin hófust, en það var komið inn
í söguna fimm vikum áður. Ekki
skyggnigáfa höfundar, heldur er
Bárðarbunga ein hættulegasta eld-
stöðin okkar, og vísindamenn hafa
líka óttast að Vatnajökull væri að
sigla inn í óróleikatímabil. Svo náði
ég líka orðaleik, uppáhaldsmaður
Maríu Hólm er kollegi hennar sem
heitir Bárður.“
Ómöguleiki þess að vera til
María Hólm er kona á miðjum aldri
sem eftir missi stóru ástarinnar og
lok dauflegs hjónabands tekur upp
ástarsamband við konu. Það hins
vegar gengur lítið betur en sam-
bönd við karlmenn, ertu að segja að
það sé bara vonlaust mál að vera í
ástarsamböndum yfirleitt? „Já, það
er alveg vonlaust mál,“ segir Stein-
unn og skellihlær. „En ég held að
þessi bóki fjalli öðrum þræði um
ómöguleika þess að vera til, sem
er upplifun sem ég veit að fleiri
en María Hólm munu kannast við.
Samt reynir manneskjan nú yfir-
leitt að krafla sig áfram og reyn-
ir að breyta lífi sínu á ýmsan máta
eins og María.“
Steinunn segir að bókin hafi
bókstaflega ruðst fram, sérstak-
lega þær María Hólm og Gemma,
og hún hafi neyðst til að láta undan
þeim þrýstingi. „Það er mjög sér-
stakt og hefur ekki oft komið fyrir
mig. Svo kom bókin mér sjálfri oft
á óvart. Ég var alltaf að henda út
einhverjum leiðarhnoðum sem ég
sá ekki hvert ég var búin að henda.
Í bókarlok þegar María er að velja
kost sem þrengir tilveru hennar
til muna finnur hún samt leið til
að skilja eftir von um nýjan mögu-
leika. Því þótt lífið sé vissulega
Konur eru svo svakalega
mikið upp á karlhöndina
Gæðakonur, ný skáldsaga Steinunnar Sigurðardóttur, fjallar um eldfjallafræðinginn Maríu Hólm Magnadóttur og hvernig
heimsmynd hennar snýst á hvolf við kynni af byltingarkonunni Gemmu sem predikar heimsyfirráð kvenna og lítur á alla
karlmenn sem nauðgara. María er sérfræðingur í náttúruhamförum en hefur ansi litla stjórn á hamförunum í eigin lífi.
SJALDAN BETRI
Steinunn Sig-
urðardóttir er
í essinu sínu í
Gæðakonum.
MYND/ÞORSTEINN
HAUKSSON
grimmt þá er það um leið áskorun
og ég hef yfirleitt látið persónurnar
í bókunum mínum taka því þannig.“
Eftirsjáin eftir því sem ekki varð
er ansi ríkur þáttur í lífi Maríu, rétt
eins og Öldu í Tímaþjófnum, finnst
þér fólk oft eyða lífinu í eftirsjá?
„Ég veit það ekki, en þetta er svo
svakalega gott söguefni. Sorgin er
samt held ég oft ótrúlega stór hluti
af lífi fólks þótt það sjáist ekki á
yfirborðinu. Og glötuð ást er ótrú-
lega sterkur þráður í lífi margra, en
auðvitað ganga bókmenntirnar út á
það að ýkja hlutina upp.“
Konur eiga að styðja hver aðra
Það er óhjákvæmilegt annað en
að lesa Gæðakonur sem innlegg
í umræðuna um femínismann og
sumum mun kannski finnast að þú
sért að gera lítið úr honum. „Það er
sko algjörlega fjarri mér. Gemma
dissar femínisma í smá orðræðu
þar sem henni finnst ekki nógu
langt gengið, af því að það dugi ekk-
ert annað en að konur taki yfir. En
höfundur bókarinnar er náttúru-
lega ekki svo vitlaus að gera lítið
úr kvennabaráttu. Það á að duga
að lesa skáldsögurnar mínar til að
sannfærast um það. Og þannig er að
allt sem ég hef lært um jafnrétti og
óréttlæti milli kynjanna hefur lífið
fært mér. Ég trúi engu sem stend-
ur á bók og ég get ekki verið í hóp.
Það er hins vegar áhætta sem allir
höfundar taka að bækur þeirra séu
ekki bara túlkaðar heldur rangtúlk-
aðar og ef maður ætlaði að forðast
það myndi maður aldrei gefa neitt
út. En Gemma, byltingarkonan sem
vill að konur taki yfir heiminn, vill
líka að konur séu saman sem ást-
konur og predikar þá skoðun fyrir
Maríu sem er í upphafi sögu orðin
dálítið vaklandi og farin að velta
því fyrir sér hvernig væri að búa
með konu. Mér finnst sjálfri að
miðað það hvernig heimurinn velt-
ist sé brýnt að konur reyni að styðja
hver aðra, en það er bara ekki það
sem þær eru að gera. Konur eru
nefnilega svo svakalega upp á
karlhöndina að þegar þær komast
í valdastöðu þá vilja þær hjálpa
drengjunum, stelpurnar sjá um sig
sjálfar. Þær hafa jú alltaf gert það.
Karlmenn standa líka með karl-
mönnum og ofan á þetta bætist, eins
og ég kem inn á í bókinni, að konur
líta verk sín öðrum augum en karl-
menn. Auðvitað má ekki alhæfa um
þetta en mjög oft finnst karlmönn-
um það sem þeir eru að gera miklu
merkilegra en konum finnst það
sem þær gera. Þannig að við höfum
svo margfalda ástæðu til að vera í
liði saman, við kvenfólkið, og mér
finnst við gera miklu minna af því
en haldið er fram.“
Stjórnmál og hefndir
Eru þá allar hörmungar heims-
ins karlmönnum að kenna? „Ja,
Gemma kennir gagnkynhneigðum
karlmönnum um allar ófarir heims-
ins og talar um þá sem eyðileggj-
endur og nauðgara. Og það er auð-
vitað skelfilegt að nauðganir séu
notaðar sem stríðstæki beinlínis.
Ég las einu sinni viðtal við afríska
konu sem lýsti löngum og erfiðum
vinnudegi kvennanna í þorpinu,
sem um leið og þær unnu öll störf-
in voru í stöðugri hættu að vera
nauðgað, á meðan karlarnir sátu
heima og töluðu um stjórnmál og
hefndir. Er það kannski heimurinn
í hnotskurn?“
Samt er eiginlega eina almenni-
lega manneskjan í persónugalleríi
bókarinnar karl … „Góður punktur!
Maður verður auðvitað að afbyggja
aðalkenninguna, það gengur ekki
að hún gangi upp. Ég er reynd-
ar bara svo óskaplega hrifin af
honum Bárði, sem ég endurnýtti
úr Hundrað dyrum í golunni, hann
er svo mikið minn maður. Þetta er
líka óður til vináttusambands fólks
af gagnstæðu kyni. Við höfum svo
gott af því að umgangast hvort
annað.“
Eitt af meginstefjum bókarinnar
er, eins og oft hjá þér, hvað mann-
eskjan veit lítið um sjálfa sig og
hefur af sér falska mynd. „Gæða-
konur er líka bók um það hvað
við vitum lítið um aðra. Hvað veit
María um Gemmu þegar upp er
staðið? Og það er ljóst að hún er
ekki glögg á sjálfa sig, hún María.
En er þetta ekki oft svona? Mjög
fáir ná að virkja vitsmuni sína nógu
vel til að halda utan um eigin til-
finningar. Ég er algjörlega hörð á
því að við sjáum ekki sjálf okkur
eins og við erum. Ég orðaði þessa
skoðun einu sinni við vinkonu mína
sem svaraði þurrlega: „Sem betur
fer.“ Og það er sennilega rétt hjá
henni, okkur myndi ekki endilega
líka mjög vel við þá sýn.“
Í stórskemmtilegu viðtali
við Politiken í vikunni er
Sjón beðinn að ráðleggja
ungu fólki sem langar
að skrifa. Hann bendir
fólki á að vinna með það
sem hafði áhrif á
það sem börn
og unglinga:
„Mundu hvað
það var sem
hreif þig og
komdu hrifn-
ingunni til
skila til nýrra
lesenda.“
Mundu hvað hreif þig
FÆRT TIL
BÓKAR
!
Mér
finnst sjálfri
að miðað það
hvernig
heimurinn
veltist sé
brýnt að
konur reyni
að styðja hver
aðra, en það
er bara ekki
það sem þær
eru að gera.
Konur eru
nefnilega svo
svakalega
upp á karl-
höndina að
þegar þær
komast í
valdastöðu
þá vilja þær
hjálpa drengj-
unum,
stelpurnar sjá
um sig sjálfar.