Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 48

Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 48
KYNNING − AUGLÝSINGRúm & sængurföt LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 20142 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, jonatan@365.is, s .512-5446 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Þetta er fínasta efni til að nota í náttföt, maður sefur alla jafna með rúmfötin yfir sér og náttfötin eru það sama, hlífð- arbúnaður fyrir svefninn. Svo var líka ágætt að slátra þessum bleika Barbíhryllingi í eitthvað minna,“ segir Víðir Guðmundsson leikari, en hann endur nýtti gömul Barbísæng- urföt, sem dætur hans voru hættar að nota, í náttföt. „Ég bara klippti þau niður og saumaði náttbuxur á konuna og eldri dótturina,“ bætir hann við og segist nokkuð lunkinn á saumavél- ina. „Já, já, ég bjarga mér alveg og ef þarf að laga eitthvað eða bæta þá geri ég það. Svo hef ég líka saum- að síðerma tískutopp á konuna og fleira. Ég tek bara eitthvað sem fyrir er í skápnum og blanda nokkrum sniðum saman. Mér finnst fínt að grípa í saumavélina þegar mig vant- ar eitthvað að gera með höndunum. Ég er lærður rennismiður og þegar mig langar að gera eitthvað verk- legt, skiptir engu máli hvort það er járnsmíði eða saumaskapur. Mér finnst þó erfitt að prjóna, ég hef ekki þolinmæði í svo seinlegt verk.“ Náttbuxurnar slógu í gegn og segir Víðir þær nú staðalbúnað eig- endanna á hverju kvöldi. Því sé vel líklegt að hann skelli í náttföt á alla fjölskylduna fyrir jólin. Hann saumi allt á forláta saumavél sem gengið hefur kynslóða á milli í fjölskyld- unni. „Mamma arfleiddi mig að Bern- ina-saumavél sem hún fékk í arf frá mömmu sinni. Þessi vél er frá því um 1940 eða -50. Ég þurfti aðeins að laga hana en það brotnaði í henni hjól sem ég gat bara pantað á net- inu og skipt um. Nú virkar hún fínt. Það væri ánægjulegt ef hún lifði það lengi að ég gæti arfleitt dóttur mína eða son að henni þegar fram líða stundir.“ Endurnýtti sængurver í náttföt Gömul rúmföt má endurnýta í ýmislegt ef hugmyndaflugið fær að ráða. Víðir Guðmundsson leikari sneið til að mynda niður gömul Barbírúmföt dætra sinna og saumaði úr þeim náttbuxur á eiginkonu og dóttur sem slógu í gegn. Rúmföt daga gjarnan uppi inni í skáp þegar munstrin detta úr tísku. Í stað þess að þau taki upp geymslupláss mætti sauma úr þeim náttföt. Víðir Guðmundsson, leikari og rennismiður, grípur í Bernina-saumavélina, sem gengið hefur kynslóða á milli í fjölskyldunni, þegar hann langar að gera eitthvað verklegt. Hann saumaði náttbuxur á konuna sína og eldri dóttur úr gömlum rúmfötum sem slógu í gegn. MYND/VALLI Rúmföt má endurvinna á ýmsan máta. Þau má til dæmis rífa niður í lengjur og flétta, vefa eða hekla úr þeim þykkar gólfmottur og jafnvel körfur. Mikið úrval af púðum Verð frá 3.900 kr. Erum að taka up p jólavörurnar HABITAT | Kauptúni | Sími 564 4400 Opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18 og sunnudaga kl. 13 -18 NÝI BÆKLINGURINN ER KOMINN! KOMDU Í HEIMSÓKN OG FÁÐU EINTAK SÍÐAN 1964 catalogue 201 4 - 2015 KILO innskotsborð Verð 19.800 kr. (3 borð í setti) CONNOR svefnsófi leðuráklæði Verð 195.000 kr. EWALD teppi Verð 8.900 kr. Fullt af fallegum vösum Verð frá 1.950 kr. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.