Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 82

Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 82
FÓLK|HELGIN JÓLIN HEIMA „Við ætlum að halda íslensk jól. Dóttir mín verður fjögurra ára 1. janú- ar svo við höldum afmælisveislu fyrir hana á Íslandi. Það verður skemmti- legt að vera með fjölskyldunni um jólin.“ Sigurður var á leið til Mílanó frá Bologna á Ítalíu þegar blaðamaður náði tali af honum. Hann er þar á tón- leikaferðalagi með Norðmanninum, Erlend Öye, en þeir vinna mikið saman, Guð- mundi Péturssyni gítarleikara og Victor Abrahamsson. Erlend hefur unnið talsvert með hljómsveitinni Hjálmum sem heldur upp á tíu ára afmæli sitt á þessu ári. „Ferð- in hófst í London en þaðan flugum við til Rómar, síðan var lestarferð til Bologna og loks til Mílanó. Við spilum aðallega í leik- húsum, flytjum meðal annars lög af nýrri plötu Hjálma og Erlends. Frá Mílanó höld- um við síðan til Zagreb í Króatíu,“ segir Sigurður. Í næstu viku er ferðinni heitið til Síle, Argentínu og Mexíkó í áframhaldandi tónleikaferð. „Við verðum á ferðinni þar í tæpar tvær vikur,“ útskýrir Sigurður sem er einn ástsælasti söngvari landsins, hvort sem hann syngur með Hjálmum, Memphis- mafíunni, Baggalúti eða bara einn með sjálfum sér. Erlend er þekktur norskur tónlistarmað- ur, var meðal annars í dúettinum Kings of Convenience og hljómsveitinni Whitest Boy Alive. Strákarnir í Hjálmum sendu tvöfalda safnskífu frá sér fyrir skömmu sem nefnist Skýjaborgin en hana unnu þeir með Erlend. MEÐ BAGGALÚTI OG SIGRÍÐI Það má með sanni segja að Sigurður sé á flakki um heiminn en í byrjun desember kemur hann til Íslands. Þá mun hann taka lagið á jólatónleikum Baggalúts. „Það er ómissandi að syngja með þeim á tónleik- um fyrir jólin,“ segir Sigurður og hlakkar mikið til. „Mér finnst alltaf jólin koma með Baggalútstónleikunum. Ætli ég sé ekki mátulega mikið jólabarn,“ bætir Sigurður við en hann gaf út jólaplötuna Nú stendur mikið til árið 2010 sem fékk frábæra dóma og lifir enn góðu lífi. Lögin eru flest samin af honum og Braga Valdimari en sá síðar- nefndi samdi jafnframt textana við öll lögin á plötunni fyrir utan eitt sem er við ljóð Steins Steinars. Þann 17. desember verður Sigurður síðan með tvenna jólatónleika með Sigríði Thorlacius í Eldborgarsal Hörpu. Þar ætla þau að syngja ný og eldri jólalög í sannkallaðri hátíðardagskrá. „Við munum einnig flytja nýtt lag, Freistingar, sem ég samdi en Bragi Valdimar gerði texta.“ Þá syngja þau einnig lög af plötunni Jólakveðju. Þetta er í fyrsta sinn sem þau Sigríður og Sigurður standa fyrir svo veigamiklum jólatónleikum. „Við höfum verið með litla tónleika á Café Rosenberg,“ segir hann. Sigurður og Sigríður sungu síðast saman í Hörpu á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sumarið 2011. FJÖLSKYLDUJÓL Tinna, kona Sigurðar, og dóttir koma til Ís- lands sama dag og jólatónleikarnir verða í Hörpu. „Við ætlum að halda íslensk jól. Dóttir mín verður fjögurra ára 1. janúar svo við höldum afmælisveislu fyrir hana á Íslandi. Það verður skemmtilegt að vera með fjölskyldunni um jólin.“ En af hverju fluttuð þið til Noregs? „Okkur langaði að breyta til. Komast úr rokinu heima. Blessunarlega hef ég haft nóg að gera og verið á ferðalögum um heiminn. Þess á milli er ég heima og baka brauð. Ég sé um eldhúsverkin þegar ég er heima,“ segir hann. „Konan mín er kennari en hún hefur áður búið í Noregi og er öllu vön þar í landi. Hún er vel norskumælandi og miklu betri en ég. Við kunnum ágætlega við okkur í Ósló og erum ekki á heimleið. Mér finnst ágætt að koma heim til Íslands í hálfan mánuð en þá er ég venjulega tilbúinn að yfirgefa landið aftur. Maður á auðvitað sínar rætur heima og það er alltaf gaman að hitta fjölskylduna,“ segir Sigurður, sem er alinn upp í Njarðvík. MARGT Í GANGI En hvað er fleira á döfinni? „Þorsteinn Einarsson, vinur minn úr Hjálmum, er að gefa út nýja plötu á næstu vikum með hljómsveitinni Uniimog og þar kem ég við sögu. Mér finnst gaman og gefandi að stökkva á milli verkefna. Það er margt í gangi hjá mér á næst- unni og ég vona að við getum fylgt plötu Uniimog eftir. Annars eru flestir vinir mínir núna á ferðalagi um heiminn með Ásgeiri Trausta.“ Sigurður segist kunna virkilega vel við sig á Ítalíu en fyrir nokkrum árum var hann í ljósmyndanámi í Flórens. Ég er búinn að vera þó nokkuð í Róm og í sumar var ég á Sikiley. Mér finnst notalegt að vera svona sunnarlega á hnettinum. Það er ofboðs- lega góður matur á Ítalíu en ég er mikill matmaður,“ segir hann. „Annars er ég bara sáttur, það er gaman að lifa.“ ■ elin@365.is FER SYNGJANDI UM ALLAN HEIM FLAKKARI Sigurður Guðmundsson söngvari flutti til Noregs fyrir rúmu ári með konu sinni, Tinnu Ingvarsdóttur, og dóttur, Ástríði Ösp. Hann hefur nóg að gera við tónlistarflutning og er á sífelldum ferðalögum um heiminn. SÁTTUR Sigurður seg- ist vera sáttur við lífið og tilveruna, enda hefur hann nóg að gera. Á ÍTALÍU „Þarna erum við að borða tagliatelle al ragù, hið eiginlega Bolognese, á veitingahúsinu Osteria del‘ Orsa í Bologna,“ segir Sigurður sem er þarna til borðs með Victor Abrahamsson, Erlend Öye og Guðmundi Péturssyni. Laugavegi 63 • S: 551 4422 laxdal.is Skoðið MARS TILBOÐ BASIC DRAGTIN ALLTAF KLASSÍK ALLTAF FLOTT FRÁBÆR GLÆSIDRAGT JAFNT Í VEISLUNA SEM VINNUNA MÖRG SNIÐ STÆRÐIR 36-48 laxdal.is 20% AFSLÁTTUR BACIC- TI Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.