Fréttablaðið - 08.11.2014, Page 100
8. nóvember 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 56TÍMAMÓT
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
KRISTÍNAR MÖLLER
Kirkjusandi 3.
Kristján Ragnarsson
Margrét Vala Kristjánsdóttir Sæmundur Sæmundsson
Tómas Kristjánsson Þóra Hrólfsdóttir
Hildur R. Kristjánsdóttir Alexander K. Guðmundsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
TEITUR BERGÞÓRSSON
kennari,
lést föstudaginn 31. október á
bráðamóttöku Landspítalans. Útförin fer
fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
11. nóvember klukkan 15.00.
Guðný María Hauksdóttir
María Teitsdóttir
Hulda Teitsdóttir Elís Hólm Þórðarson
Hrund Teitsdóttir Þorvaldur Örn Kristmundsson
Björg Arnþórsdóttir Michael C. Martinsen
og barnabörn.
Elsku móðir okkar, amma og tengdamóðir,
HARPA GUÐMUNDSDÓTTIR
Sóltúni 11, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 1. nóvember.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju,
mánudaginn 10. nóvember klukkan 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi og Karítas.
Guðbjörg Sævarsdóttir Björn G. Straumland
Guðlaugur Maggi Einarsson Þóra Björk Árnadóttir
Harpa, Hera, Einar Elías Hilmir, Sævar, Þórey
Elskulegur faðir okkar, afi og langafi,
THEÓDÓR G. JÓHANNESSON
(DÓDÓ)
frá Nýjabæ í Vestmannaeyjum,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
2. nóvember. Útförin fer fram frá Seljakirkju
miðvikudaginn 12. nóvember kl. 13.00.
Arnar Theódórsson
Sigríður Theódórsdóttir
Sigurður J. Ólafs
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegustu þakkir til allra
sem sýndu okkur samúð
og heiðruðu minningu okkar ástkæra
GUNNARS BJARNASONAR
húsasmíðameistara,
Öldugötu 25, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á 11E,
líknardeildar LSH og Karitasar. Einnig
þökkum við öllum vinunum í KFUM og KFUK
og Gídeon fyrir alla aðstoðina.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Sverrisdóttir
Sverrir Gunnarsson Guðrún Birna Brynjarsdóttir
Jakob Bjarni Sverrisson
Ólafur Bjarnason
Hallfríður Bjarnadóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
SIGMAR HRÓBJARTSSON
múrarameistari,
frá Hamri í Hegranesi,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu við
Boðaþing í Kópavogi miðvikudaginn
5. nóvember. Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju
föstudaginn 14. nóvember klukkan 13.00.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Bergdís Ósk Sigmarsdóttir, Gunnlaugur Gísli Sigmarsson,
Sigurþór Heimir Sigmarsson, Aðalsteinn Sigurgeirsson,
Sigríður Sigurgeirsdóttir, Hansína Sigurgeirsdóttir,
Þorkatla Sigurgeirsdóttir, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir
og fjölskyldur.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Davíð
Ósvaldsson
útfararstjóri
Óli Pétur
Friðþjófsson
útfararstjóri 551 3485 • www.udo.is
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
5 1 3300 t n
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson
STOFNUÐ 1996
STOFNUÐ 1996
„Ég ætla að halda upp á afmælið þegar
kemur fram á vordaga og vonast til að
geta gert það með vinum og kunningj-
um. Það kemur yfir mann þegar tug-
irnir eru orðnir þetta margir að hugsa
aftur í tímann og átta sig á verðmæt-
unum í vináttu þess fólks sem maður
hefur deilt tilverunni með.“ Þetta segir
Jóhanna Bogadóttir þegar hún er innt
eftir áformum sínum í tilefni sjötugsaf-
mælisins sem er í dag.
Jóhanna hefur lengi mundað pensil-
inn og á yfir hundrað sýningar að baki.
„Ég er enn á kafi í myndlistinni, hún
togar í mig endalaust. Mér finnst ég
eiga svo margt ógert,“ segir hún bros-
andi. Þó að margir tali um að hætta að
vinna um sjötugt eða fyrr segir hún það
ekki á dagskrá hjá myndlistar mönnum.
Kveðst líka heppin með heilsuna. „Ég er
farin að skilja betur ömmur mínar sem
töluðu um það þegar ég var lítil hvað
það væri dýrmætt að hafa góða heilsu.“
Sem barn kveðst hún hafa heillast af
fallegum litum og fegurð heimsins og
langað snemma að lýsa þeirri tilfinn-
ingu. „Ég vildi samt fara í „alvöru“
nám og var í stærðfræðideild MA, tók
bara fram vatnslitina á kvöldin á heima-
vistinni og hélt að ég mundi alltaf hafa
myndlistina sem tómstundagaman en
um það leyti sem ég tók stúdentsprófið
var sú ákvörðun tekin að fara í listnám.
Þetta var einhvers konar köllun, ekki
bara val.“
Hún lærði bæði í Frakklandi og Sví-
þjóð og kveðst síðan oft hafa bæði
málað og sýnt erlendis. „Þegar ég dvel
í útlöndum verð ég að taka efni með mér
og hafa smá vinnuaðstöðu. Það eru mín
allra bestu frí. Mig hefur aldrei langað
í baðstrandarfrí en auðvitað get ég þráð
að vera í sólskini og betra og hlýrra
loftslagi, verandi hér í skammdegi og
roki. Ég hef verið á framandi slóðum
eins og Afríku, Mexíkó og Indlandi sem
hafa haft gríðarleg áhrif á mig og mína
vinnu,“ segir hún og kveðst eilíflega
þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til
þess. „Ég hafði alltaf mikla útlandaþrá
og hef í raun búið miklu meira á Íslandi
en ég hugsaði mér þegar ég var ung.“
Jóhanna ólst upp í Vestmannaeyj-
um, meðal annars við rok og brim og
segir baráttu mannsins við höfuðskepn-
urnar hafa verið rauða þráðinn í hennar
myndlist. „Hvar sem ég fer um heiminn
finn ég fyrir sömu tilfinningum sem
færa mig aftur til upprunans.“
gun@frettabladid.is
Skil ömmur mínar núna
Myndlistarkonan Jóhanna Bogadóttir er sjötug í dag en ætlar að fagna þeim áfanga með
vorsól á loft i. Hún er ævintýrakona sem hefur búið meira á Íslandi en hana dreymdi um.
LISTAKONAN „Þetta var einhvers konar köllun. Ekki bara val,“ segir Jóhanna um myndlistina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Lætur kraft
litanna njóta sín
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýnir
í Populus Tremula nú um helgina.
Guðrún Pálína var bæjarlista-
maður Akureyrar 2013 og dvaldi
hálft ár í Berlín. Þar vann hún að
portrett- og landslagsmyndum
sem hún sýnir í Populus Tremula í
Listagilinu í dag og á morgun milli
klukkan 14 og 17. Titill sýningar-
innar er Nóvember. Hún kveðst
reyna að hafa teikningu sem ein-
faldasta í verkum sínum, láta kraft
litanna njóta sín og laða fram til-
finningaþrungið andrúmsloft. - gun