Fréttablaðið - 31.12.2014, Blaðsíða 12
31. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR |
17. JÚLÍ
Eric Garner,
43 ára, lést í
New York eftir
að lögreglumaður
tók hann haustaki.
5. ÁGÚST
John Crawford,
22 ára, skotinn
í Walmart-verslun
skammt frá
Dayton, Ohio.
9. ÁGÚST
Lögreglumaðurinn
Darren Wilson
skýtur Michael
Brown, 18 ára,
í Ferguson,
St. Louis.
10. ÁGÚST
Fjölmenn mót-
mæli og óeirðir
brjótast út.
16. ÁGÚST
Neyðarástandi lýst
yfir í Ferguson.
25. ÁGÚST
Michael Brown
jarðsunginn.
3. SEPTEMBER
Neyðarástandi
aflétt.
20. NÓVEMBER
Akai Gurley, 28
ára, skotinn í
Brooklyn, New
York.
22. NÓVEMBER
Tamir Rice, 12 ára
piltur, skotinn til
bana í Cleveland,
Ohio.
24. NÓVEMBER
Ákærukviðdómur
ákveður að Wilson
verði ekki sóttur
til saka. Fjölda-
mótmæli hefjast
á ný.
Guðsteinn Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
ÚKRAÍNA BORGARASTRÍÐ
Ebólufaraldurinn, sem braust út í vestanverðri
Afríku fyrir rétt rúmu ári, virðist nú vera á hægu
undanhaldi. Verst urðu íbúar í Gíneu, Líberíu og
Síerra Leóne úti, en þar eru hundruð manna enn
þungt haldin.
Faraldurinn barst alls til átta landa á árinu, þar
á meðal til þriggja Vesturlanda, nefnilega Spánar,
Bandaríkjanna og nú síðast Englands.
Nærri tuttugu þúsund manns hafa smitast og þar
af eru nærri átta þúsund manns látin.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur viður-
kennt að allt of seint hafi verið brugðist við. Með
markvissari viðbrögðum hefði mátt ráða niðurlög-
um faraldursins þegar hann var á frumstigi.
Ebóla skaut heimsbyggðinni skelk í bringu:
Faraldurinn nú á
hægu undanhaldi
FRAMANDLEIKI Heilbrigðisstarfsmaður í vígalegum búningi
hjá harmi slegnum íbúum Monróvíu, höfuðborgar Líberíu.
NORDICPHOTOS/AFP
22. MARS
Gíneustjórn
staðfestir að
ebólu faraldur hafi
brotist út. Nærri
60 manns látnir.
28. MARS
Tveir ebólu-
smitaðir í Líberíu.
26. MAÍ
Ebólan komin til
Síerra Leóne.
7. ÁGÚST
WHO lýsir yfir
alþjóðlegu neyðar-
ástandi. Meira en
1.000 látnir.
27. ÁGÚST
Læknar án
landamæra gagn-
rýna WHO fyrir
ábyrgðarleysi
og hægagang
í viðbrögðum.
14. OKTÓBER
WHO tilkynnir
að dánarhlutfall
sé komið upp í
70 prósent, nærri
4.500 látnir.
EBÓLA ÁTTA ÞÚSUND LÁTNIR
19.500
smitaðir, þar af
nærri 7.600 látnir.
15.000 manns
létust í Gíneu árið
2013 af völdum
malaríu.
BANDARÍKIN LÖGREGLUOFBELDI
Hinn átján ára þeldökki piltur
Darren Brown var óvopnaður
þegar hvítur lögreglumaður
varð honum að bana í Fergu-
son, einu hverfa stórborgar-
innar St. Louis. Atvikið varð
til þess að upp úr sauð víða í
Bandaríkjunum, efnt var til
mótmæla nánast daglega svo
vikum skipti í helstu borg-
um landsins. Þeldökkir íbúar
höfðu fengið nóg af ofbeldi lögreglu og stjórnvalda
í þeirra garð.
Fleiri svipuð dæmi komu upp á árinu og vöktu
ekki síður athygli, ekki síst þegar tólf ára dreng-
ur, Tamir Rice að nafni, einnig dökkur á hörund,
lét lífið í almenningsgarði í Cleveland. Hann hafði
verið að veifa leikfangabyssu. Kallað var á lög-
reglu, sem beið ekki boðanna heldur skaut strákinn
örfáum sekúndum eftir að komið var á vettvang.
Enn á ný sauð upp úr í nóvember eftir að ákæru-
kviðdómur sagðist ekki sjá ástæðu til þess að
draga lögreglumanninn frá Ferguson fyrir dóm
vegna drápsins á Darren Brown.
Ítrekað skotið á óvopnaða blökkumenn:
Upp úr sauð eftir
drápið í Ferguson
ANDSPÆNIS VOPNUÐUM MÖNNUM Þeldökkir íbúar í
Ferguson ætluðu ekki að láta bjóða sér yfirgang hvítra lög-
reglumanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hundarnir,
táragasið. Þetta
hefur ekkert
skánað.
James Cias, 61 árs íbúi
í Ferguson sem ólst
upp í Suðurríkjunum á
tímum borgararéttinda-
baráttu þeldökkra.
Ólgan í Úkraínu hófst í lok
síðasta árs eftir að Viktor
Janúkóvítsj, þáverandi for-
seti, frestaði því að undir-
rita samstarfssamning við
Evrópusambandið. Uppreisn
í höfuðborginni og víðar
lauk með stjórnarbyltingu.
Janúkóvítsj hraktist til Rúss-
lands.
Í framhaldinu hófst ólga í
austurhluta landsins, þar sem
menn vilja almennt styrkja
tengslin við Rússa frekar
en Evrópusambandið. Pútín
Rússlandsforseti kyndir
undir ótta við byltingar-
stjórnina í Kænugarði, inn-
limar Krímskaga og lýsir
með ýmsum hætti yfir sam-
stöðu með aðskilnaðarsinn-
um í Dónetsk og Lúhansk.
Samið var um vopnahlé
í september, en átök hafa
haldið áfram með mislöngum
hléum. Pattstaða ríkir, landið
er klofið og engin lausn í
sjónmáli.
Stjórnarbylting, innlimun Krímskaga og aðskilnaðarstríð:
Engin lausn í sjónmáli
eftir langvarandi átök
UPPREISN Í KÆNUGARÐI Svo fór að Janúkóvítsj forseti flúði land, en í framhaldinu hófst uppreisn í
austurhluta landsins gegn byltingarstjórninni í Kænugarði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
20. FEBRÚAR
Hörð átök hefjast
í Kænugarði,
nærri hundrað
láta lífið næstu
dagana.
22. FEBRÚAR
Janúkóvítsj forseti
flýr land.
16. MARS
Íbúar Krímskaga
samþykkja
sameiningu
við Rússland.
18. MARS
Pútín staðfestir
lög um innlimun
Krímskaga.
7. APRÍL
Aðskilnaðarsinnar
taka stjórnarbygg-
ingar í austurhluta
landsins.
2. MAÍ
Eldsvoði í Odessa
kostar 42 lífið.
11. MAÍ
Aðskilnaðarsinnar
í Dónetsk og
Lúhansk lýsa yfir
sjálfstæði.
25. MAÍ
Auðkýfingurinn
Petro Porosjenkó
kosinn forseti.
27. JÚNÍ
ESB undirritar
samstarfssamning
við Úkraínu.
17. JÚLÍ
Malasísk farþega-
þota skotin niður
yfir austanverðri
Úkraínu.
30. JÚLÍ
ESB og Bandaríkin
tilkynna nýjar
refsiaðgerðir gegn
Rússlandi.
5. SEPTEMBER
Úkraína og upp-
reisnarmenn
undirrita vopna-
hléssamning.
26. OKTÓBER
Þingkosningar í
Úkraínu, flokkar
hliðhollir Vestur-
löndum sigra.
2.-3. NÓVEMBER
Aðskilnaðar-
sinnar kjósa nýja
leiðtoga í austur-
hlutanum.
Krímskagi …
hefur ómetanlegt og
jafnvel heilagt gildi
fyrir Rússland, rétt
eins og musteris-
hæðin í Jerúsalem
fyrir áhangendur
íslams og gyðing-
dóms.
Vladímír Pútín,
Rússlandsforseti.
Ár styrjalda og grimmdarverka
Erlendar fréttir ársins 2014 snerust margar hverjar um grimmdarverk vígasveita Íslamska ríkisins í Sýrlandi og Írak, stjórnarbyltingu og
borgarastríð í Úkraínu og árásir ísraelska hersins á Gasa. Lögregluofbeldi gagnvart þeldökkum íbúum Bandaríkjanna vakti ekki síður
athygli á árinu, auk þess sem ebóluveiran herjaði grimmt á nokkur lönd í vestanverðri Afríku og skaut Vesturlandabúum skelk í bringu.
SKOTLAND KOSIÐ UM SJÁLFSTÆÐI 18. SEPTEMBER
Skotar skiptust í tvær álíka stórar
fylkingar í haust þegar gengið var til
atkvæðagreiðslu um það hvort Skotland
ætti að segja skilið við Stóra-Bretland og
stofna sjálfstætt ríki.
Á síðustu stundu fór þó svo að sam-
bandssinnar höfðu betur þegar talið var
upp úr kjörkössunum, með töluverðum
yfirburðum.
Skotland verður áfram í ríkjasambandi
við England, Wales og Norður-Írland, en
hafði stuttu fyrir kosningarnar fengið lof-
orð frá stjórnvöldum í London um meiri
völd innan sambandsins.
Enn er þó allt óljóst um efndir þeirra
loforða, þótt samningsmarkmið Skota séu
farin að taka á sig einhverja mynd.
Skotar tóku í haust afstöðu til eins helsta hitamáls síðustu ára:
Ekkert varð úr aðskilnaðinum
Við
höfum nú
tækifæri til
þess að þrýsta
á stjórnina í
Westminster
um að efna
heit sín um að
veita Skot-
landi frekari
völd í raun.
Þetta gefur
Skotlandi
mjög sterka
stöðu.
Alex Salmond,
í afsagnarræðu sinni
19. september.
ALEX SALMOND Leiðtogi sjálfstæðissinna bjart-
sýnn fyrir kosningarnar. NORDICPHOTOS/AFP
12
HELSTU ERLENDU FRÉTTIR ÁRSINS 2014