Fréttablaðið - 31.12.2014, Síða 46
31. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 38TÍMAMÓT
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR GUNNARSSON
frá Steinsstöðum,
Espigrund 9, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi 24. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðríður Guðmundsdóttir Þórir Bergmundsson
Gunnar Guðmundsson Sesselja Ingimundardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Davíð
Ósvaldsson
útfararstjóri
Óli Pétur
Friðþjófsson
útfararstjóri 551 3485 • www.udo.is
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR
Eyjabakka 28, Reykjavík,
lést á heimili sínu annan dag jóla.
Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju
föstudaginn 2. janúar kl. 13.00.
Sigurður Ferdinandsson Guðrún Matthíasdóttir
Reynir Jóhannsson Inga Rún Garðarsdóttir
Óskar B. Hauksson Inga Jóna Friðgeirsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
KARL ELÍAS KARLSSON
lést á Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði
26. desember sl. Útför hans verður gerð
frá Þorlákskirkju laugardaginn 3. janúar
kl. 14.00.
Guðfinnur Karlsson Jóna Kristín Engilbertsdóttir
Jón Karlsson
Karl Sigmar Karlsson Guðrún Sigríks Sigurðardóttir
Erla Karlsdóttir Þórður Eiríksson
Kolbrún Karlsdóttir
Sigríður Karlsdóttir Jóhann Magnússon
Halldóra Ólöf Karlsdóttir Svavar Gíslason
Jóna Svava Karlsdóttir Sveinn Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SOFFÍA ZOPHONÍASDÓTTIR
leikskólakennari,
Sigtúni 37, Reykjavík,
lést 17. desember. Útför fer fram
frá Laugarneskirkju 2. janúar kl. 13.00.
Karl Friðjón Arnarson
Snjólaug G. Kjartansdóttir
Örn Þór Karlsson, Atli Björn Karlsson
Úlfar Snær Arnarson
Gréta V. Guðmundsdóttir
Saga ÚIfarsdóttir, Guðmundur Karl ÚIfarsson
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN BERGSDÓTTIR
á Vestur-Hnappavöllum,
sem lést 26. desember, verður jarðsungin
frá Hofskirkju laugardaginn 3. janúar
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Gigtarfélag Íslands.
Ingibjörg Ingimundardóttir Gunnar Páll Bjarnason
Guðjón Ingimundarson
Sigurður Ingimundarson
Einar Páll Ingimundarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, stjúpi, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
GUÐMUNDUR ÞORLEIFSSON
lést á Hrafnistu Hafnarfirði mánudaginn
22. desember. Útförin fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 6. janúar
kl. 13.00.
Matthildur Guðmundsdóttir Gísli Guðmundsson
Sigríður Matthíasdóttir
Þorleifur Guðmundsson Hrefna Einarsdóttir
Guðmundur Guðmundsson Einína Einarsdóttir
María Jónasdóttir Sverrir Jónsson
og afabörn.
Ástkær faðir okkar,
ÓLAFUR DAVÍÐSSON
Sandgerði,
lést á Þorláksmessu 23. desember á
hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Keflavík.
Útför hans fer fram frá Safnaðarheimilinu í
Sandgerði miðvikudaginn 7. janúar kl. 13.00.
Sævar Ólafsson
Signý Ólafsdóttir
Elín Ólafsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir
Sigurlína Ólafsdóttir
Marteinn Ólafsson
Ingibjörg Þ. Ólafsdóttir
Davíð Þór Ólafsson
Ólafur Þór Ólafsson
og fjölskyldur.
Þennan dag árið 1979 hófust réttarhöld yfir Sid
Vicious, bassaleikara pönkhljómsveitarinnar
Sex Pistols, vegna morðsins á Nancy Spungen,
kærustu hans.
Sid Vicious hét réttu nafni John Simon Ritchie.
Hann fæddist í London og stuttu eftir fæðingu
hans yfirgaf faðirinn fjölskylduna. Sid og móðir
hans fluttust til Ibiza þar sem móðir hans gerðist
eiturlyfjasali og má líta á það sem nokkurs konar
fyrirboða um það sem í vændum var.
Sid og Nancy voru á kafi í eiturlyfjum og voru á
hraðri leið til glötunar. Að morgni 12. október árið
1978 rankaði Sid við sér úr eiturlyfjavímu og fann
Nancy látna á baðherbergisgólfinu í hótelherbergi
númer 100 á Hótel Chelsea í New York. Hún hafði
verið stungin í kviðinn og hafði blætt til dauða.
Sid var handtekinn og ákærður fyrir morðið en
hann hélt því fram að hann myndi ekkert eftir
atvikinu. Trygging var greidd af útgáfufyrirtækinu
Virgin Records svo Sid gæti tekið upp plötu með
hljómsveit sinni til að safna fé fyrir lögfræðikostn-
aði. Þann 2. febrúar árið 1979 var haldin lítil veisla
til að fagna því að Sid hafði fengið tímabundið
frelsi. Veislan var haldin heima hjá nýrri kærustu
hans sem hann hóf samband við daginn sem
hann útskrifaðist af Bellevue-spítala í október árið
áður. Sid hafði verið vaninn af heróíni á meðan á
dvöl hans í fangelsinu stóð. Þetta kvöld fékk hann
hins vegar heróín frá móður sinni og tók inn of
stóran skammt. Kærastan lífgaði hann við og síðar
um nóttina sofnuðu þau. Hann vaknaði hins vegar
aldrei aftur til lífsins.
ÞETTA GERÐIST: 2. JANÚAR 1979
Réttarhöld yfi r Sid Vicious hefj ast
NANCY OG SID VICIOUS
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, umdæmisstjóri
UN Women í Evrópu og Mið-Asíu, fyrrver-
andi utanríkisráðherra, borgarstjóri og for-
maður Samfylkingarinnar, er sextug í dag,
gamlársdag.
„Ég geri ráð fyrir að verja deginum í faðmi
fjölskyldu og vina sem ég hef, marga hverja,
ekki séð í lengri tíma,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Undanfarin sex ár hefur hún verið með annan
fótinn erlendis og báða frá árinu 2011. Þá tók
hún við stöðu yfirmanns jafnréttisstofnunar
UN Women í Kabúl, höfuðborg Afganistans.
Á haustmánuðum í fyrra færði hún sig síðan
um set og tók við stöðu umdæmisstjóra UN
Women í Evrópu og Mið-Asíu. Aðsetur hennar
er nú í Istanbúl í Tyrklandi.
„Þetta er mjög áhugavert og spennandi
starf. Ég hef tekið þátt í uppbyggingu svæðis-
skrifstofunnar og starfsins frá grunni sem er
mjög gefandi. Borgin sjálf er jafnframt mjög
heillandi og með mikla sögu.“
Ingibjörg Sólrún fæddist á gamlársdag
árið 1954. Aðspurð hvort það sé ekki örlítið
undarlegt að eiga afmæli á þeim degi hlær
hún örlítið og segir að þeirri spurningu sé
erfitt að svara þar eð hún hafi engan saman-
burð. Henni hafi ávallt þótt það ágætt að eiga
afmæli á þessum degi. Það séu alltaf allir til-
búnir til að fagna með henni og svo sé frídag-
ur daginn eftir.
„Eftirminnilegasta gamlárskvöldið var
á fertugsafmælinu mínu árið 1994. Það ár
hafði verið mjög sérstakt og viðburðaríkt í
mínu lífi. Ég hafði sest í stól borgarstjóra og
afmælisdagurinn varð nokkurs konar loka-
hnykkur á ótrúlega góðu ári,“ segir Ingibjörg.
Ingibjörg kom hingað til lands skömmu
fyrir jól og hélt þau hátíðleg. Hún hverfur
aftur út til starfa sinna áður en vika er liðin
af nýja árinu. Dvölin hér á landi hafi verið
ánægjuleg og það hafi verið gott að komast
í snjóinn, kuldann og íslenska vetrarveðrið í
smástund.
Líkt og áður segir mun Ingibjörg Sólrún
verja deginum í faðmi fjölskyldu og vina. Milli
klukkan 14 og 16 tekur hún á móti þeim, og
öðrum velunnurum, í Ráðhúsi Reykjavíkur.
johannoli@frettabladid.is
Gamlársdagur verið
ágætur afmælisdagur
Sextíu ár eru liðin frá því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fæddist. Á ævi sinni hefur hún
verið ráðherra, borgarstjóri, formaður stjórnmálafl okks og er nú umdæmisstjóri UN
Women. Ingibjörg heldur upp á daginn með velunnurum í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.
1954 Fæddist í Reykjavík.
Dóttir Gísla Gíslasonar og
Ingibjargar Níelsdóttur
1974 Stúdent frá Mennta-
skólanum við Tjörnina
1977 Formaður Stúdenta-
ráðs HÍ
1979 BA-próf í sagnfræði
og bókmenntum
1982-88 Borgarfulltrúi í
Reykjavík
1991 Þingmaður fyrir
Kvennalistann
1994 Borgarstjóri
Reykjavíkur
2005 Þingmaður og for-
maður Samfylkingarinnar
2007 Utanríkisráðherra
2011 Hefur störf hjá
Sameinuðu þjóðunum
➜ Ingibjörg í 60 ár
AFMÆLISBARN
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir er sextug
í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN