Fréttablaðið - 31.12.2014, Side 62
31. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 54
„Okkur fannst þetta bara eitthvað
svo skrýtið og skemmtilegt. Við
erum voða hrifin af því að bjóða
fólki úr alls konar áttum hingað
í veislur,“ segir Einar Óskar Sig-
urðsson sem ásamt kærustu sinni,
Heiðrúnu Örnu Friðriksdóttur,
heldur óvenjulega áramótaveislu
í ár.
Einar og Heiðrún voru ekki
komin með áramótaplön og ákváðu
að bjóða ferðamönnum sem eyða
gamlárskvöldi á Íslandi í áramóta-
veislu í gegnum vefsíðuna Couch-
surfing.org.
„Við höfum einu sinni gist í
gegnum Couchsurfing og tókum
eftir því að fólk er oft að leita sér
að einhverju að gera og ákváðum
bara að bjóða svona „random“ fólki
héðan og þaðan úr heiminum.“
Hann segist engar áhyggjur
hafa af því að vandræðalegt verði
að halda upp á áramótin með
ókunnugu fólki. „Við hugsuðum
þetta bara þannig að ef þetta verð-
ur eitthvað vandræðalegt þá verð-
ur sagan bara enn þá betri. Þetta
getur ekki klikkað.“
Einar segir þau hafa fengið
góðar viðtökur og að komnir séu
sjö staðfestir gestir víðs vegar
að úr heiminum, meðal annars
frá Bandaríkjunum, Sviss og Sví-
þjóð. „Það verður fólk frá öllum
heimshornum í staupi og skaupi
hjá okkur,“ segir Einar glaður í
bragði. - gló
Við hugsuðum þetta
bara þannig að ef þetta
verður eitthvað vand-
ræðalegt þá verður
sagan bara enn þá betri.
Þetta getur ekki klikkað.
„Ég ætlaði upphaflega að halda
þetta partí á gamlárskvöld en átt-
aði mig svo á því að á Íslandi er
fólk frekar með fjölskyldunni sinni
á þessu kvöldi. Þess vegna færði
ég það yfir á 1. janúar,“ segir
bandaríski auðmaðurinn og sam-
félagsmiðlagúrúinn Oliver Luck-
ett.
Hann ætlar að halda heljarinnar
gleðskap á Lavabarnum á nýárs-
dagskvöld en hann hélt einmitt upp
á afmælið sitt hér á landi síðastlið-
ið sumar með miklum glæsibrag.
„Afmælisveislan mín heppnaðist
rosalega vel og þeir félagar mínir
sem komust ekki þá vildu koma
til Íslands að vetrarlagi. Ísland
er einstaklega fallegt land og sér-
staklega á veturnar,“ segir Luckett
sem kann vel við sig á Fróni.
Luckett er stofn andi theAudi-
ence, sem er eins konar miðlun-
ar- og dreif ing ar net fyr ir afþrey-
ingar fyr ir tæki sem vilja ná
ár angri í notkun sam fé lags miðla.
Á meðal viðskipta vina hans eru
Barack Obama, forseti Banda ríkj-
anna, og bandaríska tónlistarkon-
an Azealia Banks.
Það verður þó ekki eingöngu
gleðskapur um kvöldið sem Luck-
ett stendur á bak við því hann verð-
ur einnig með kvöldverðarboð á
sinni könnu. „Þetta er eins og risa-
stór fjölskyldukvöldverður sem
endar með partíi,“ segir Luckett.
Boðið verður á Sakebarnum og
Veiðikofanum og þaðan verður
farið á Lavabarinn.
Þá ætlar Luckett einnig að
flytja inn sína uppáhaldsplötu-
snúða, Wonkers, alla leið frá Berl-
ín. Einnig munu fleiri listamenn
koma fram í partíinu.
Hann er einstaklega hrifinn
af Íslendingum og íslenskri tón-
list. „Ég elska að leiða hina ýmsu
listamenn saman og uppgötva
nýja íslenska tónlistarmenn,“
segir Luck ett. Hann lítur á Ísland
sem sitt annað heimili. „Þetta er
í fimmta skiptið sem ég kem til
Íslands á einu ári,“ segir Luckett
og hlær.
Gera má ráð fyrir að ýmsir
þekktir Íslendingar muni láta sjá
sig í partíinu en auðmaðurinn vildi
ekkert tjá sig um hverjir væru á
gestalistanum. Á meðal þeirra sem
mættu í afmælisveislu Lucketts
voru tónlistarmaðurinn Zebra
Katz, Ghostigital, Jakob Frímann
Magnússon, Ásdís Rán, Daniel Lis-
more, Ragnar Kjartansson, Högni
Egilsson, Hrafnhildur Arnardóttir,
Erpur Eyvindarson og Gísli Pálmi.
Miðasala á viðburðinn er á midi.is
gunnarleo@frettabladid.is
Risavaxið fj ölskylduboð
haldið á nýárskvöld
Bandaríski samfélagsmiðlagúrúinn Oliver Luckett ætlar að fagna nýju ári á Íslandi.
ÍSLANDSVINUR Oliver Luckett hefur fimm sinnum komið til Íslands á árinu.
NORDICPHOTOS/GETTY
Einar Örn Benediktsson tónlistarmaður hefur þekkt Luckett í fimm ár og
kann vel við hann. „Hann er svona samfélagsmiðlagúrú og kom með
nýja hugsun um hvernig nýta megi samfélagsmiðlana á góðan hátt og
hvernig hægt sé að byggja upp tengslanet og annað. Við erum ágætis-
félagar og kynntumst þegar ég tók hann í heimsókn hingað til lands
fyrir um fimm árum. Hann safnaði íslenskri list og ég fór með hann
í heimsóknir til íslenskra listamanna og kynnti hann fyrir íslenskri
list,“ útskýrir Einar Örn. Hann kom fram í afmælisveislunni
hans sem haldin var í Gamla bíói síðastliðið sumar. „Þetta var
skemmtilegt afmæli, stemningin var orðin sérstaklega góð
þegar ég var búinn að að spila,“ segir Einar Örn og hlær.
Kom fram í afmælisveislu Lucketts
Halda skrýtin og
skemmtileg áramót
Einar Óskar Sigurðsson og Heiðrún Arna Friðriksdótt-
ir halda upp á áramótin með ókunnugum túristum.
SKEMMTILEG ÁRAMÓT Einar og Heiðrún hafa gaman af því að bjóða fólki úr
ólíkum áttum í veislur. MYND/EINKASAFN
Bandaríska Disney-myndin Frosinn var mest seldi
DVD-diskur á landinu í ár, samkvæmt FRÍSK,
Félagi rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði.
Hann seldist í 13.199 eintökum en sá mynddiskur
sem lenti í öðru sæti var hin íslenska Hross í oss,
sem seldist í 5.161 eintaki.
Íslenskar kvikmyndir voru um helmingur þeirra
mynddiska sem seldust best á árinu en Laddinn,
Vonarstræti og Eldurinn með Ómari Ragnarssyni
eru í þriðja til fimmta sæti með 4.830, 4.246 og
3.837 seld eintök. Á eftir eru bandarísku myndirn-
ar How to Train Your Dragon 2 og The Lego Movie
með 3.388 og 3.256 seld eintök.
Myndirnar þrjár í sætum 8 til 10 eru Harrý og
Heimir: Morð eru til alls fyrst, The Hobbit: The
Desolation of Smaug og Guardians of the Galaxy,
sem seldust allar í næstum 3.000 eintökum.
- þij
Frosinn seldist í þrettán þúsund eintökum
Disney-myndin var vinsælust á mynddiski hérlendis árinu. Margar íslenskar myndir seldust vel.
FROSINN/FROZEN er gríðarlega vinsæl
kvikmynd.
MEST
SELDU
mynd-
diskar
ársins
2014.
MYND/FRÍSKÁramótasteikin
„Það er orðið að hefð að borða
kalkún á gamlárskvöld. Það verður
svo humar í forrétt. Annars ætla ég
að hafa róleg og þægileg áramót á
Hólmavík.“
Heiða Ólafsdóttir tónlistarkona.