Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2012, Blaðsíða 15
Neytendur 15Miðvikudagur 4. janúar 2012
Blaðamaður DV og ljósmyndari héldu í Kringluna daginn sem útsölurnar
byrjuðu þar. Óhætt er að segja að margt hafi verið um manninn og minnti
stemningin á síðustu daga fyrir jól. Það var erfitt að finna bílastæði og lands-
menn greinilega staðráðnir í að nýta sér tilboðin. Viðmælendur voru flestir
ánægðir með það sem var í boði og nokkrir búnir að kaupa það sem þeir höfðu
sóst eftir.
Elsa Guðrún og Jón
Kjartan ásamt Láru
Kristínu og Karítas
Elsa Guðrún sagði hún væri
sérstaklega komin á útsölurnar
til að finna á sig skó og útiföt
á börnin. Hún hafi beðið með
þessi kaup fram yfir áramót til
að fá þau á betra verði. Henni líst
vel á útsölurnar, það sé ágætis
afsláttur og möguleiki að gera
góð kaup. „Mér líst bara vel á það sem ég hef séð og ég var líka búin að kynna mér hvar
mestu afslættirnir eru og byrja þar.“
Hildur Ósk og Ingibjörg
„Mér líst bara ágætlega á þetta og
er búin að finna ýmislegt,“ sagði
Hildur Ósk. Hún bætti við að hún
hafi komið til að skoða en maður
endi alltaf á að kaupa meira en
maður ætlar sér. Ingibjörg hafði
ekki keypt neitt á útsölu en að
hennar mati mætti afslátturinn
vera meiri. „Mér finnst 40 prósent
ekki mikill afsláttur. Svo þegar
verðið lækkar enn meira þá eru
bara minnstu stærðirnar eftir.“
Thelma Björk
Magnúsdóttir og Helga
Rún Ingvarsdóttir
Thelma og Helga voru ánægðar
og voru búnar að kaupa nokkra
hluti. „Við biðum með kaupin
fram yfir áramót. Við vorum helst
að leita að gallabuxum og bolum
og fengum það,“ sögðu þær.
Sigríður og Kristín
ásamt Marey, Gísla
Marínó, Eyþóri
Marel, Bríeti Guð-
nýju og Sonju Björk
„Okkur líst mjög vel á
þetta og erum báðar búnar
að eyða smá en gerðum
góð kaup. Okkur finnst
útsölurnar núna mjög
svipaðar og í fyrra enda
fer maður alltaf í sömu búðirnar. Það er að segja, barnabúðir,“ sögðu þær Sigríður og
Kristín. Þær voru einnig sammála um að það skipti mikli máli að bíða með þessi kaup
fram yfir áramót. „Maður verður alltaf jafn vonsvikinn þegar maður sér á útsölu það
sem maður keypti á fullu verði fyrir jól,“ sagði Kristín.
Viðbrögð viðskiptavina
Gerðu góð kaup á útsölunum
Útsala, útsala Verslunarfólk var
í óða önn að setja upp auglýsingar.
M
y
n
d
ir
s
ig
tr
y
g
g
u
r
a
r
i
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað