Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2012, Page 22
Saknar Gunnu Dísar
n Svekktur yfir að hafa ekki birst í Skaupinu
E
ins og nafnið gefur til
kynna verða þetta hlut-
ir og fólk sem mér þyk-
ir áhugavert,“ segir út-
varpsmaðurinn Andri Freyr
Viðarsson sem hefur tekið
sér mánaðarfrí frá útvarps-
þættinum vinsæla Virkum
morgnum til að taka upp
nýjan sjónvarpsþátt. Þátt-
urinn er óbeint framhald af
Andra á flandri og ber nafnið
Andraland. „Í þetta skiptið er
ég ekki að ferðast um á hús-
bíl og verð ekki heldur með
hund með mér. Núna verð
ég innan borgarmarkanna
og gef viðmælendum mín-
um lengri tíma. Þetta verður
líka miklu fróðlegra en áður,“
segir Andri og bætir við að
hann muni til dæmis ganga í
starf fangavarðar á Áttunni á
Skólavörðustígnum. „Svo fer
ég að veiða með Geira Sæm
eitíspoppara og heimsæki
mann sem safnar skrítnum
hlutum í plastumbúðum,
sem er alveg magnaður. Svo
er það eitt og annað,“ segir
hann og bætir við að áhuga-
verða karaktera sé ekki að-
eins að finna úti á landi.
Andraland verður sýnt í
lok febrúar og í mars á RÚV.
Meðan á tökum stendur fyllir
Gunna Dís í skarð Andra með
hinum ýmsu staðgenglum en
þessa vikuna er það leikarinn
Gunnar Hansson sem stend-
ur vaktina. Andri mætir þó í
hljóðverið alla föstudaga svo
aðdáendur hans þurfa ekki
að örvænta.
Aðspurður segist Andri
búast við því að Gunna Dís sé
kát með skiptin. „Hún er bara
guðslifandi fegin að losna að-
eins við mig. Ég sakna henn-
ar samt en það er ágætt að
taka sér smáfrí frá hvort öðru.
Ef þetta væri kostur í alvöru
samböndum myndu örugg-
lega allir gera það. Taka sér
frí hvort frá öðru í einn mán-
uð á ári.“
Vísað var til Andra á
flandri í áramótaskaupinu og
Andri var alsáttur við skaup-
ið. „Það er mikill heiður að
vera hluti af skaupinu. Ég
var samt mest svekktur yfir
að það lék mig enginn. Það
hefði verið gaman. Ég veit
ekki hver hefði verið bestur
í hlutverkið, einhver þrek-
lega vaxinn, fallegur íslensk-
ur karlmaður. Ekkert annað
kæmi til greina.“
22 Fólk 4. janúar 2012 Miðvikudagur
Fögnuðu nýju
ári í Ameríku
Fjölmiðlamaðurinn Þór-
hallur Gunnarsson fagn-
aði nýju ári á Times Square
í New York ásamt konunni
sinni glæsilegu, flugfreyj-
unni Brynju Nordquist. Parið
hefur því átt kost á að berja
stórstjörnuna Lady Gaga
augum þar sem söngkonan
var í aðalhlutverki ásamt
borgarstjóranum Michael
Bloomberg þegar talið var
niður í nýja árið. Fjölmiðla-
maðurinn Egill Helgason,
sem einnig starfar hjá Sjón-
varpinu, var einnig staddur
í Ameríku þegar nýja árið
gekk í garð en samkvæmt
fésbókinni var Egill staddur
í Boston.
Heilsan
alltaf í fókus
Nú þegar landsmenn fjöl-
menna í líkamsræktarstöðv-
arnar til að brenna jóla-
syndunum er um fátt annað
rætt en heilsuátak og hollt
mataræði. Líkamsræktar- og
útvarpsmaðurinn Ívar Guð-
mundsson segist hins vegar
vilja eyða orðinu „heilsu-
átak“ úr íslenskri tungu. Að
hans sögn á heilsan ekki
að vera átak heldur ávallt
í fókus. „Þetta er svipað og
ef maður færi í bílaátak. Að
hafa bílinn í lagi í janúar og
september en láta hann svo
grotna niður þess á milli,“
skrifar Ívar á fésbókarsíðu
sína og hefur eflaust rétt fyrir
sér.
Andraland Nýr þáttur Andra Freys heitir Andraland og er óbeint framhald
af Andra á flandri.
U
m fátt annað er rætt
fyrstu daga ársins
en áramótaskaupið
2011 sem þótti óvenju
beitt. Hörðustu skot-
unum var skotið að Bjarna
Benediktssyni.
Þar var flutt lagið Gull af
mönnum og gert grimmt grín
að landsfundi Sjálfstæðis-
manna og Bjarna Benedikts-
syni formanni flokksins. Skop-
ast er að þeirri staðreynd að
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur
mests fylgis í íslenskum stjórn-
málum og að Bjarni Benedikts-
son hafi verið endurkjörinn
formaður.
„Það eru allir búnir að
gleyma Vafningsdrullunni og
Sjóvár-svindlinu og N1-rugl-
inu og fylgistapinu og fjárhag
flokksins og öllu þessu drasli
og bara maka á mig atkvæð-
um!“ segir Bjarni, sigri hrós-
andi eftir kjör sitt, í túlkun
áramótaskaupsins.
Bjarni Benediktsson for-
maður Sjálfstæðisflokksins var
ekki ánægður með atriðið.
„Þetta var háð án ádeilu,“
sagði hann um skaupið í sam-
tali við blaðamann og segist
annars ekkert vilja tjá sig um
þá revíu sem skaupið er.
,,Það var margt skemmti-
legt í áramótaskaupinu enn
annað ekki,“ sagði Tryggvi Þór
Herbertsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, á Facebook-
síðu sinni. „Ég er þeirrar skoð-
unar að: það sé ekki í lagi að
hæða fólk fyrir persónuleg
málefni (eins og hvert sé fað-
erni ófædds barns), ekki sé í
lagi að nota fatlaða einstak-
linga til að gera grín að þjóð-
þekktu fólki undir formerkj-
um kynbótastefnu, ekki sé í
lagi að staðhæfa að menn hafi
framið stórfellt lögbrot án þess
að nokkur fótur sé fyrir því, að
ekki sé í lagi að nota sorgleg-
ustu atburði í sögu Noregs í
einhverju sprelli“
Ánægð með viðbrögðin
Leikstjóri áramótaskaupsins
er Gunnar Björn Guðmunds-
son og handritshöfundar
ásamt honum þau Anna Svava
Knútsdóttir, Sævar Sigurgeirs-
son, Hjálmar Hjálmarsson,
Örn Úlfar Sævarsson og Bald-
vin Z.
Anna Svava Knútsdótt-
ir segir eðlilegt að einhverjir
þeirra sem verða fyrir barðinu
á skaupinu eigi bágt með að
leyna sárindum sínum. Sjálf
segist hún hins vegar lítið
heyra af neikvæðri gagnrýni.
„Ég er reyndar mjög ánægð
með viðbrögð sem ég hef feng-
ið við áramótaskaupinu í ár.
Varðandi atriði með fötluð-
um einstaklingum þá er rétt
að taka það fram að þau voru
fengin sérstaklega til að leika í
skaupinu og það var enginn að
gera grín að þeim. Þau stóðu
sig einna best af öllum leikur-
um í áramótaskaupinu í ár og
áttu stórleik. En svo það sé á
hreinu þá er þetta grín. Þetta
er skemmtiþáttur og þótt við
styðjumst við raunveruleikann
er hann bjagaður til að þjóna
gríni. Jóhanna Sigurðardóttir
segir auðvitað ekki „fokkins“
í öðru hverju orði og þar fram
eftir götunum!“
Karnival okkar tíma
Örn Úlfar Sævarsson tek-
ur undir með Önnu Svövu
og er stoltur af árangrinum.
„Áramótaskaupið svarar al-
gjörlega fyrir sig sjálft,“ seg-
ir hann. „Skaupið er karnival
okkar tíma, tækifæri fyrir al-
þýðuna í landinu til setjast í
öndvegi eina kvöldstund og
hlæja að alls kyns leiðtogum
hvort sem er í stjórnmálum,
listum eða fjölmiðlum. Ég er
bara mjög ánægður og stoltur
af því að hafa fengið að taka
þátt í þessu erfiða en skemmti-
lega verkefni.“
n Beitt áramótaskaup n Hörðustu skotin að Sjálfstæðisflokknum n Bjarna Benediktssyni
fannst grínið innihaldslaust n Tryggvi Þór ósáttur við skaupið n Handritshöfundar ánægðir
Sjálfstæðismenn
sárir yfir skaupinu
Bjarni í pontu á landsfundi Bjarni Benediktsson táraðist meðan hann
flutti eftirminnilega ræðu á landsfundi sjálfstæðismanna árið 2011.
Ekki í lagi Ekki í lagi að nota
fatlaða einstaklinga til að gera grín
að þjóðþekktu fólki, segir Tryggvi Þór
Herbertsson.
Gagnrýni á fatlaða leikara á ekki rétt á sér „Það var enginn að gera grín að þeim. Þau stóðu sig einna best af
öllum leikurum í Áramótaskaupinu í ár,“ segir Anna Svava sem er ánægð með viðtökurnar.
Gull af mönnum Hörðustu skotunum í skaupinu í ár var beint að Bjarna
Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins. Bjarni sagði grínið enga ádeilu.
Ástir aðstoðarmanna:
Eyddu jólun-
um í París
Kristján Guy Burgess, að-
stoðarmaður Össurar
Skarphéðinssonar utan-
ríkisráðherra, og Rósa Björk
Brynjólfsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Steingríms J. Sig-
fússonar atvinnuvegaráð-
herra, eru nýtt og glæsilegt
par í stjórnsýslunni. Ástar-
sambandið sem hófst fyrir
nokkru er hið innilegasta en
parið eyddi jólunum í borg
ástarinnar, París.