Fréttatíminn - 30.10.2015, Blaðsíða 44
44 heimili og hönnun Helgin 30. október-1. nóvember 2015
1 Svefnherbergi eru ekki alltaf stærstu herbergin en eitt klassískt ráð til
að stækka lítil herbergi er að mála þau í
ljósum litum.
2 Speglar lífga upp á hvaða rými sem er. Ef þú ert ekki með rúmgafl er
virkilega skemmtilegt að lífga upp á svefn-
herbergið með fallegum spegli. Speglar
stækka líka herbergið og gefa því meiri
birtu. Ef herbergið er stórt og nóg til af
plássi þá er skemmtilegt að raða mál-
verkum, ljósmyndum og teikningum eftir
börnin í kringum spegilinn.
Sköpunargleði í
svefnherberginu
Svefnherbergið er vannýtt rými á mörgum heimilum. Það þarf ekki að vera einsleitur staður sem
býður ekki upp á neitt nema svefn. Af hverju ekki að lífga upp á það með hægindastól, speglum,
púðum, málverkum, bókum og lömpum. Hér á eru nokkur góð ráð fyrir næstu breytingar.
3 Ef svefnherbergið er málað í ljósum litum er skemmtilegt að lífga upp
á það með litríkum púðum og teppum.
Rúmið á að vera girnilegur staður sem gott
er að leggjast í hvenær sem er.
4 Það er algengur misskilningur að náttborðin þurfi að vera í stíl! Endi-
lega notaðu eitthvað sem ekki var upphaf-
lega hugsað sem náttborð til að geyma
lampa, bók og vekjaraklukku. Stólar, kollar,
kistur eða kassar virka vel.
5 Málaðu vegginn, eða settu vegg-fóður, á bak við rúmið í sterkum lit,
það minnkar ekki herbergið og gefur hlýtt
yfirbragð. Sérstaklega sniðugt í mjög
björtum svefnherbergjum.
6 Ef það er mikið veggpláss í svefnher-berginu er huggulegt að setja upp
hillu og fylla hana af kertastjökum.
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
JAVA 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
SKRIFBORÐS- OG
FUNDARSTÓLAR
Í MÖRGUM LITUM
OG GERÐUM
BORÐ
STÓLAR
TÖFLUR
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
KÍKTU Á VEFVERSL
UN
KRUMMA.IS
Bæjarlind 6, 201 Kóp 564-2013
þri-fös 11-18 & lau 11-15