Víkurfréttir - 15.12.2011, Síða 2
2 FIMMTudagurInn 15. dESEMbEr 2011 • VÍKURFRÉTTIR
TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR
JÓLATÓNLEIKAR
STRENGJASVEITA
Jólatónleikar strengjasveita skólans verða í
Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 16. desember
kl.17.30. Fram koma yngsta-, mið- og elsta sveit.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Skólastjóri
FRÍSTUND
MYLLUBAKKASKÓLA
Starfsmann vantar í Frístund í Myllubakkaskóla frá og
með áramótum.
Starfið felst í gæslu með yngstu nemendunum.
Vinnutími er frá kl. 13:00 - 16:00
Upplýsingar eru veittar hjá skólastjóra í síma 420 1450.
Einnig eru veittar upplýsingar hjá Fræðsluskrifstofu
Reykjanesbæjar í síma 421 6700
Umsóknir skulu berast starfsmannaþjónustu
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, fyrir 27. desember
nk. eða á mittreykjanes.is.
ÞROSKAÞJÁLFI
ÓSKAST Í AKURSKÓLA
Akurskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa frá 1. janúar í
fullt starf.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 420 4550,
einnig er hægt að fá upplýsingar á Fræðsluskrifstofu
Reykjanesbæjar í síma 421 6700.
Umsóknir skulu berast starfsmannaþjónustu,
Tjarnargötu 12, fyrir 27. desember nk. eða á
mittreykjanes.is.
TJARNARSEL ATVINNA
Leikskólinn Tjarnarsel auglýsir eftir leikskólakennara
og eða þroskaþjálfa í 100% störf. Viðkomandi þarf að
geta hafið starf eigi síðar en 15. janúar nk. Einnig kemur
til greina að ráð starfsmann með aðra menntun eða
með reynslu af að starfa í leikskóla.
Lögð er áhersla á fjölbreytta starfs- og kennsluhætti í
Tjarnarseli og megin áherslur eru á mál og læsi,
umhverfismennt og útinám.
Umsóknarfrestur er til 29. des. nk. og skal umsóknum
skilað til starfsmannaþjónustu, Tjarnargötu 12,
eða mittreykjanes.is.
Nánari upplýsingar veitir leikskóla- og aðstoðar-
leikskólastjóri Tjarnarsels og einnig má nálgast
upplýsingar um leikskólann, á vefsíðunni,
www.tjarnarsel.is.
›› FRÉTTIR ‹‹
Vetrarríki á forsíðu
jólablaðsins
Að þessu sinni prýðir ljós-mynd af vetrarríki á Suður-
nesjum forsíðu jólablaðs Víkur-
frétta. Myndina tók náttúruljós-
myndarinn Ellert Grétarsson í
Vatnsholtinu í Keflavík dag einn
í síðustu viku. Á öðrum stað í
blaðinu í dag eru þrjár myndasíð-
ur með myndum Ellerts sem hann
hefur tekið í stórfenglegri náttúru
Reykjanesskagans. Ellert fer mik-
ið í gönguferðir um Reykjanes
og framleiddi í sumar fjögur ný
gönguleiðamyndbönd um áhuga-
verða staði í náttúru Reykjaness
sem vert er að skoða. Myndbönd-
in má sjá á vef Víkurfrétta.
7. sýning föstudaginn 16.des kl. 20.00
8. sýning laugardaginn 17. des kl. 17.00
9. sýning miðvikudaginn 28. des kl. 20.00
Ath. Lokasýningar
Leikfélag Keflavíkur sýnir
"Jólasögu Charles Dickens"
Leikstjóri: Jón Stefán Kristjánsson
Sýnt er í Frumleikhúsinu
Miðasala opnuð klukkutíma fyrir sýningu.
Miðapantanir í síma 4212540
Sýningin er styrkt af Menningarráði Suðurnesja
Jón Wheat,
Jón Óskar Jónsson Wheat, María Kristinsdóttir,
Benjamín Jónsson Wheat, Elva Dögg Guðbjörnsdóttir
og barnabörn.
Þökkum auðsýndan stuðning.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
Guðbjörg Sigrún Guðmundsdóttir,
Bjarnarvöllum 8, Keflavík,
lést þann 9. nóvember síðastliðinn.
Útförin fór fram þann 22. nóvember í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Maríanna Sif Jónsdóttir,
Kristín Ögmundsdóttir, Sigurjón Kristinsson,
Ásmundur Leifsson, Petra Stefánsdóttir,
Pálína Ásmundsdóttir, Jón Ásmundur Pálmason,
Bára Inga Ásmundsdóttir, Jón Sveinn Björgvinsson,
Kristinn Þór Sigurjónsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir.
Elskuleg móðir mín, dóttir okkar, systir og mágkona,
Jónína Ásmundsdóttir,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn
6. desember. Jarðarförin mun fara fram frá Útskálakirkju
mánudaginn 19. desember kl. 11:00.
Bestu þakkir eiga umönnunarstarfsmenn D-deildar.
Næsta blað
21. desember
Víkurfréttir eiga eftir að koma einu sinni áður en jólin
bresta á. Næsta blað kemur út á
miðvikudaginn, 21. desember
nk., en ekki á fimmtudegi eins og
vanalega.
Þar verður einnig fullt af skemmti-
legu jólaefni, viðtölum og myndum.
Þeir sem vilja koma að auglýsingu
í því blaði eru hvattir til að bóka
pláss sem fyrst hjá auglýsingadeild
í síma 421 0001 eða með pósti á
gunnar@vf.is.
Þá verður einnig áramótablað Vík-
urfrétta þann 29. desember.
Allir starfsmenn Gerðaskóla gengu á fund Ásmundar
Friðrikssonar bæjarstóra í Garði
á þriðjudag og lýstu yfir eindregn-
um stuðningi við Pétur Brynj-
arsson skólastjóra, en meirihluti
bæjarstjórnar Garðs áætlaði að
segja honum upp störfum á bæj-
arstjórnarfundi, sem fram fór í
gær.
Einnig afhenti hópurinn bæj-
arstjóra ýmis gögn tengd einelti og
báðu hann að skoða hvort hann
og meirihluti bæjarstjórnar gætu
hugsanlega verið í hlutverki ger-
enda eineltis í aðför sinni og fram-
komu gagnvart Pétri skólastjóra og
öðru starfsfólki skólans undanfarna
mánuði, segir í fréttatilkynningu
frá Gerðaskóla.
Víkurfréttir voru farnar í prentun
áður en bæjarstjórnarfundurinn
í Garði fór fram síðdegis í gær.
Fjallað er um fundinn á vf.is í dag.
Á myndinni má sjá kennarana arka
á fund til bæjarstjóra sem tók við
mótmælum þeirra á skrifstofu bæj-
arins.
Allir starfsmenn Gerðaskóla lýsa
yfir stuðningi við skólastjóra