Víkurfréttir - 15.12.2011, Side 15
15VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 15. dESEMbEr 2011
Umboðs- og dreifingaraðili: optical stUdio
GoGGlur
í jólapakkann
VIÐ ÓSKUM SAMSTARFS-
AÐILUM OKKAR Á
SUÐURNESJUM OG LANDS-
MÖNNUM ÖLLUM
GLEÐILEGRA JÓLA
OG FARSÆLDAR Á NÝJU ÁRI
Óskum
Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali - Hafnargata 27 - 230 Keflavík
s: 421 1420 og 421 4288 - fax 421 5393 - Netfang: asberg@asberg.is
Veitingastaður til sölu
Af sérstökum ástæðum er Dinnerinn til sölu.
Upplýsingar á staðnum eða á skrifstofu
2011
Gleðilega hátíð
Jólalukka
SKAFMIÐA
LEIKUR VÍK
URFRÉTTA
OG VERSL
ANA
Á SUÐURN
ESJUM
Jólalukkan
5000 vinningar
Verslum heima!
Fjöldi fólks var viðstatt form-lega opnun verklegrar að-
stöðu tæknifræðináms Keilis
þann 24. nóvember síðastliðinn.
Meðal gesta voru fulltrúar frá Sam-
tökum iðnaðarins, Tæknifræð-
ingafélagi Íslands, fyrirtækjum og
framhaldsskólum, auk nemenda
og starfsfólk Keilis. Við opnunina
kynnti Dr. Karl Sölvi Guðmunds-
son, forstöðumaður Orku- og
tækniskólans, uppbygginu og
markmið háskólanáms í tækni-
fræði og Daniel Coaten, lektor í
efnafræði hjá Keili, sagði frá orku-
rannsóknum við skólann.
Auk þess voru kynningar á loka-
verkefnum nokkurra nemenda á
þriðja ári í tæknifræði sem tengdust
meðal annars verkferlum og áhrif
hita á næringu og bakteríuvöxt,
notkun tankskipa til vatnsfram-
leiðslu og framleiðslu rafmagns
með efnarafölum í Grímsey.
Verkleg aðstaða og rann-
sóknarstofur
Í tæknifræðinámi Keilis býðst nem-
endum fyrsta flokks smíðaaðstaða
til þess að þróa og smíða ýmisskon-
ar tækjabúnað. Smíðaaðstaðan er
um 80 fm2 og er búin öllum helstu
verkfærum sem þarf til hefðbund-
innar málmvinnslu. Við hönnun
og frágang smiðjuaðstöðunnar var
miðað við að uppfylla allar þær
þarfir sem smíði minni tækjabún-
aðar felur í sér auk þess sem hún
hýsir tvo sjö ása iðnaðarþjarka sem
nýtast nemendum í þjarkatækni,
svo sem sjálfvirkni, stýritækni og
samskiptum iðnaðartækja. Þjark-
ana má einnig nýta við forritun í
framleiðslukerfum og uppsetningu
véla og flæðilína.
Verkleg aðstaða tæknifræðináms
Keilis er staðsett í sömu byggingu
og öll almenn kennsla í Orku- og
tækniskólanum fer fram. Mark-
mið rannsóknaraðstöðunnar er að
halda utan um þjónustu, samskipti
og þekkingarmiðlun, ásamt því að
stuðla að gagnvirkum samskiptum
og verkefnum milli aðila í orku-
rannsóknum, atvinnulífi og mennt-
un. Með smiðjustofunni hafa nú
verið settar upp þrjár sérhæfðar
rannsóknarstofur fyrir nemendur
í tæknifræðinámi Keilis, en hinar
tvær tengjast mekatróník tækni-
fræði og efnafræðirannsóknum.
Háskólanám í tæknifræði
Keilir býður upp á stutt, hagnýtt
og nýstárlegt háskólanám í tækni-
fræði í samstarfi við Háskóla Ís-
lands. Námið er sniðið að þörfum
atvinnulífsins, byggir á raunveru-
legum verkefnum og verkviti nem-
enda. Nemendur ljúka BSc-gráðu
í tæknifræði á þremur árum og
komast því fljótt út á vinnumark-
aðinn, þar sem þeir geta tekið
þátt í uppbyggingu og starfsemi
áhugaverðustu hugverka-, tækni-
og orkufyrirtækja Íslands.
Formleg opnun
Smiðjunnar hjá Keili
›› Ásbrú
Sjáið einnig Viðtal í SjónVarpi Víkurfrétta
Við forStöðumann tæknifræðinámS keiliS.