Víkurfréttir - 15.12.2011, Blaðsíða 30
30 FIMMTudagurInn 15. dESEMbEr 2011 • VÍKURFRÉTTIR2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
TIL LEIGU
Ýmsar stærðir og gerðir af her-
bergjum, með eða án húsgagna,
með sameiginlegu eldhúsi og bað-
herbergi eða sér eldhús og bað,
með eða án húsgagna. Aðgangur
að gufubaði og borðtennisborði.
Internet og orka innifalin og all-
ur sameiginlegur kostnaður. Góð
staðsetning og hagstætt leigu-
verð. Uppl. í síma 895 8230 og
860 8909.
Gisting Amaró.
Gisting í skemmtilegum íbúðum
við göngugötuna Akureyri. Gott
verð. Sjá www.gistingamaro.is
S: 461 5403.
2ja herbergja íbúð til leigu í
Heiðarholti 75.000 með hita og
rafmagni. Með/án húsgagna, laus
strax. S: 867 4242.
Skúr til leigu á góðum stað í
Keflavík CA 80 m2.
Sér bað, niðurföll, kaffistofa, lít-
il geymsla og innkeyrsluhurðar 2
stk. UPPLÝSINGAR Í 8985599 /
6911685. LEIGA 72.500.- per mán.
Laus 1. des.
Einbýlishús til leigu í Garði, 5
herbergi. Leiga pr. mán. 125 þús.
Laust 1. jan.
Uppl. í síma 896 2937.
Til leigu 2ja herbergja (60 fm)
íbúð í Garði.
Íbúðin er á góðum stað með sér-
inngangi, laus strax.
Uppl. shholm@islandia.is eða í
síma 777 4200 eftir kl. 20:00.
Íbúð í Reykjanesbæ til leigu.
2ja herbergja íbúð á góðum stað í
Reykjanesbæ til leigu. Stutt í skóla
og leikskóla. Leiga 75.000+hiti og
rafmagn á mánuði.Upplýsingar í
síma 869 6325.
Rúmgóð 3ja herbergja (2 stór
svefnherbergi) íbúð á Hringbraut
til leigu, laus 1. janúar,
Uppl. í s. 861 4646.
Til leigu Garði.
Góð 2ja herb. íbúð á 2. hæð til
leigu að Silfurtúni Garði. Sér inn-
gangur, langtímaleiga. Uppl. í síma
587 1188 frá 8-16.
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 14. - 21. des. nk.
• Bingó • Bridge • Gler-,
keramik- og leirnámskeið • Leik-
fimi • Línudans • Hádegismatur •
Síðdegiskaffi • Tölvuklúbbur FEBS
Föstudaginn 16. desember nk.
Léttur föstudagur kl. 14:00.
Jólahugvekja og tónlistaratriði frá
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Nánari upplýsing-
ar í síma 420 3400
www.vf.IS
Kirkjur og samkomur:
Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík)
Aðfangadagur. Aftansöngur kl. 18.
Jóladagur. Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11.
Gamlársdagur. Aftansöngur kl.
17. Meðhjálpari er Súsanna
Fróðadóttir.
Ytri-Njarðvíkurkirkja
Jólaball sunnudaginn 18. desember
kl. 11. Dansað í kringum jólatré og
jólasveinn sem á heima í fjallinu
Keili mætir í kirkjuna. Hann gef-
ur öllum börnum eitthvað gott til
að hafa með sér heim. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Aðfangadagur. Jólavaka kl. 23.30.
Helgileikur í umsjá fermingarbarna
og í lokin munu allir tendra kerta-
ljós þegar sungið verður „Heims
um ból“. Steinar M. Kristinsson
leikur á trompet.
Jóladagur. Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14.
Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Meðhjálpari er Ástríður
Helga Sigurðardóttir.
Kirkjuvogskirkja (Höfnum)
Jóladagur. Hátíðarguðsþjónusta
kl. 12.05. Meðhjálpari er Magnús
Bjarni Guðmundsson.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Jóladagur. Helgistund kl. 13.15.
Hlévangur Hjúkrunarheimili.
Jóladagur. Helgistund kl. 15.
Hátíðarsöngvar Bjarna Þorsteins-
sonar sungnir við aftansöng og
hátíðarguðsþjónustur. Kór Ytri-
Njarðvíkurkirkju syngur undir
stjórn Stefáns H. Kristinssonar
organista og sóknarprestur Baldur
Rafn Sigurðsson þjónar fyrir altari
og predikar við allar athafnir.
TIL SÖLU
Philips 37 tommu LCD sjónvarps-
tæki eins og hálfs árs gamalt með
full HD upplausn með digital tuner
og ubs-tengi þar sem hægt er að
spila videó af ubs pinna verð að-
eins krónur 120 þúsund staðgreitt.
Einnig til sölu 3ja ára Panasonic 32
tommu LCD sjónvarp analogtuner
1400 upplausn verð aðeins kr 45
þúsund staðgreitt.
Upplýsingar í síma 772 1456.
SÖRUR
Tilvalið á aðventunni og um há-
tíðirnar: 50 stk. Sörur á 3500 kr.
Upplýsingar í síma 865 6740.
Kærleiksveðja Helga.
Dömu- og herrapelsarnir fást hjá
Jakobi.
Sími 868 5557.
ÝMISLEGT
Búslóðaf lutningar og al lur
almennur flutningur. Er með 20
rúmmetra sendibíl/kassabíl með
lyftu. Uppl. í síma 860 3574 Siggi.
Tek að mér allskonar viðgerð-
ir á bílum, sláttuvélum. Er með
greiningartölvu til að bilanagreina
margar tegundir bíla. Vanur mað-
ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð!
Uppl. S: 864 3567.
ERUM MEÐ MIKIÐ Af fLOTTUM
OG ÓDÝRUM GJAfAvÖRUM
OPIÐ ALLA DAGA fRÁ 13-17
Svarta Pakkhúsið
Hafnargötu 2
ERUM KOMIN
Í JÓLASKAP!
MARDAL 9, INNRI NJARÐVÍK
SÍMI 421 3160 - 694-3160
vATSNES
ART GALLERÝ
Vatnesvegi 8 Keflavík í
desember verður Gallerýið
opið fimmtudag, föstu-
dag, laugardag og sunn-
dag frá kl 12-19.
Allir velkomnir
Reynir Katrínar, Óla
Ólafs og Hildur Harðar
AFMÆLI
60 ára
Hún Sirrý í Regattabúðinni verð-
ur sextug á morgun 16. des. Hún
tekur við kossum og faðmlögum í
búðinni allan afmælisdaginn.
Hún amma Sirrý sextug er
sætust og best vel aldur þann ber.
Hún standa mun vaktina í búðinni
þann dag
við syngjum klukkan 16
þér afmælislag.
Afmæliskveðjur barnabörnin.
Þessi fjörkjálfur á afmæli í dag!
Afmæliskveðjur frá Viktori Síkrit.
vÍKURfRÉTTIR Í SÍMANN
m.vf.is
Fríða Dís Guðmundsdóttir söngkona Klassart er mikið
jólabarn og þetta árið mun reyna
á hana í eldhúsinu. Hún og systir
hennar munu sjá um jólahaldið
sem fram fer í Sandgerði. Það sit-
ur enn í Fríðu þegar hún fékk eitt
sinn hálfa kartöflu í skóinn.
Fyrstu jólaminningarnar?
Í húsinu sem ég bjó í fyrstu níu
ár ævi minnar var langur gangur
frá svefnherbergjunum og fram
í eldhús. Ég er nokkuð viss á því
að fyrstu jólaminningarnar teng-
ist því að ég átti alltaf að fara fram
á gang á meðan mamma pakk-
aði inn gjöfunum til mín. Biðin
var oft löng en bæði ærslafull
og spennandi. Þegar ég var fjög-
urra ára fékk ég einu sinni hálfa
kartöflu í skóinn ásamt nammi,
kartaflan stendur ennþá í mér.
Jólahefðir hjá þér?
Hefðin hefur verið mjög afslöppuð
fyrir jólin hjá okkur í Sandgerði
fyrir mitt leyti þar sem mamma er
vön að sjá um allt og alla án þess
að maður megi nokkuð gera. En
í ár horfir þetta öðruvísi við því
hún er að fara í brjósklosaðgerð
rétt fyrir jól og við systir mín fáum
því að sjá um hana og heimilið á
meðan (þó aðallega að sjá til þess
að hún fari ekki of geist af stað).
Ertu dugleg í eldhús-
inu yfir hátíðirnar?
Ég hef verið ágætis hjálparkokk-
ur hingað til að ég held, en það
reynir kannski í fyrsta sinn á það
fyrir alvöru þessi jól. Mamma er
þó auðvitað búin að baka allar
sortir og gott ef hún er ekki bara
búin að elda hamborgarhrygg-
inn líka. Ég ætla þó að baka lak-
krístoppa fyrir kærastann minn
til að hala inn nokkrum stigum
þegar prófa- og músíkstússinu
er að mestu leyti lokið hjá mér.
Jólamyndin?
Við jólatréð, mátulega löng teikni-
mynd með íslensku tali sem fylgdi
eitt sinn með pylsupakka. Ég og
Særún systir mín horfum alltaf á
hana saman á aðfangadag, þá mega
jólin fyrst koma. Annars er ég
líka af Home Alone kynslóðinni.
Jólatónlistin?
Mér þykir skemmtilegast að hlusta
á íslenska jólatónlist. Uppáhalds
jólaplöturnar mínar eru Skemmti-
legustu lög Gáttaþefs með Ómari
Ragnarssyni, Desember með
Siggu Beinteins og platan sem
fór ekki úr spilaranum síðustu
jól er Majones Jól með Bogomil
Font, ákaflega skemmtileg
plata. Ég kvarta þó ekki ef ég
kemst í jólalög Spike Jones eða
Bing Crosby og aðrar perlur.
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
Á eins fjölbreyttum stöð-
um og þær eru margar.
Gefurðu mikið af jólagjöfum?
Nei svo sem ekki, bara þeim
allra nánustu. Jólakortin frá mér
munu þó vonandi gleðja fólkið
í kringum mig fyrst buddan er
svona úthverf og ómöguleg.
Ertu vanaföst um jólin, eitt-
hvað sem þú gerir alltaf?
Við systurnar hlaupum alltaf með
síðustu jólakortin á aðfangadag
ásamt því að horfa á jólamyndina
okkar áður en við förum í dressið.
Besta jólagjöf sem þú
hefur fengið?
Úff, þær eru ansi margar. Þegar
ég var eins árs fékk ég stórt bleikt
kerti í jólagjöf frá bróður pabba
og konu hans en kertið er í laginu
eins og jólatré. Það hefur alltaf
verið uppáhalds jólaskrautið mitt
og ég hef aldrei tímt að kveikja á
því nema einu sinni. Þannig bar
að garði að ég og mamma sætt-
umst á það ein jólin að nú skyld-
um við kveikja á kertinu, ég hef
ekki verið eldri en fimm eða sex
ára. Kveikiþráðurinn var rosalega
langur og þetta var mikil athöfn
fyrir mig. Þegar eldurinn á kveiki-
þráðnum nálgaðist kertavaxið
fékk ég næstum því taugaáfall og
fór að hágráta og blés á logann, þá
var bræðrum mínum skemmt.
Þorsteinn kærastinn minn gaf
mér líka fallega og hlýja úlpu
síðustu jól sem er kuldaskræf-
unni mjög kærkomin.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Heimsins besti hamborgarhryggur
að hætti mömmu og pabba, ef ég
er hjá tengdó er það dýrindis kalk-
únn sem er skemmtileg tilbreyting.
Eftirminnilegustu jólin?
Þau voru haldin gleðileg í Sand-
gerði. Ég fékk safndiska með
Jamiroquai og Michael Jackson
í jólagjöf og ég og Særún systir
mín skelltum þeim í tækið og
dönsuðum í hláturskasti um
gjörvalla stofuna, upp á stólum
og borðum eins og fífl, fjölskyld-
unni til mikillar ánægju. Fyrstu
jólin sem ég hélt úti á Flórída
hjá tengdó voru líka undarleg en
skemmtileg í sól og sumaryl.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Ég er ósköp nægjusöm og eins
klisjukennt og það nú hljómar þá
er ást og nærvera minna nánustu
meira en forréttindi. En ef fólk
vill sýna ást í gjöfum og er í stök-
ustu vandræðum með mig má það
hafa augun opin fyrir Sögunni af
Dimmalimm eftir Mugg. Heima-
tilbúnar gjafir eru alltaf í mjög
miklu uppáhaldi. Kerti, bækur,
hlý náttföt og góðir sokkar eru
líka uppskrift að góðum jólum.
JÓLA HVAÐ?
Fríða Dís Guðmundsdóttir
Afslöppuð
hefð fyrir
jólin
2011
Gleðilega hátíð
Jólalukka
SKAFMIÐA
LEIKUR VÍK
URFRÉTTA
OG VERSL
ANA
Á SUÐURN
ESJUM
Jólalukkan
Verslum heima!5000 vinningar