Víkurfréttir - 15.12.2011, Page 38
38 FIMMTudagurInn 15. dESEMbEr 2011 • VÍKURFRÉTTIR
„Í þessu felast tækifæri fyrir ferðaþjónustuna og ekki síður almenning
að njóta betur þess sem svæðið hefur upp á að bjóða til náttúruskoð-
unar og útivistar. Þarna er að finna margar spennandi gönguleiðir og
áhugaverð náttúrusvæði. Þá eru ekki síður merkilegar þær sögulegu
minjar sem svæðið hefur að geyma,“ segir Ellert sem fyrir nokkru gerði
fjóra stutta og áhugaverða fræðsluþætti um gönguleiðir á Reykjanes-
skaga. Þættina er hægt að skoða á vef Víkurfrétta, vf.is.
Þær eru orðnar æði margar gönguferðirnar sem Ellert hefur farið
um Reykjanesskagann síðan vorið 2006. Hann segist eiga eftir að fara
margar í viðbót enda sé Reykjanesskaginn sannkölluð útivistarparadís
sem komi sífellt á óvart.
Brimið á Reykjanesi heillar marga.
Kvöld við Austurengjahver í Krýsuvík. Háhitasvæðin á Reykjanesskaga eru uppspretta óþrjótandi myndefnis.
Í Katlahrauni, austan við Grindavík, er að finna eina stórbrotnustu hraun-
myndun Reykjanesskagans.
Gönguhópur á ferð í hrikalegu landslagi Sveifluhálsins. Hálendislandslagið
þar dregur að margan göngugarpinn.
Lambafellsklofi
er feiknamikil
gjá í Lambafelli,
austan við
Trölladyngju.
Fellið hefur
hreinlega
klofnað í tvennt
og hægt er að
ganga í gegnum
gjána.
Ljósmyndir: Ellert Grétarsson,www. elg.is
Reykjanesskagi
-náttúruundur á heimsvísu