Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.2013, Side 35

Víkurfréttir - 19.12.2013, Side 35
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 19. desember 2013 35 Bestu jóla- og nýárskveðjur sendum við til ættingja og vina með þakklæti fyrir liðnar stundir. Heimilisfólk og starfsmenn Garðvangs. -póstkassinn Síðdegis föstu-daginn 1. apríl birtist skyndilega yfir 20 manna hópur einkennisklæddra m a n n a á v e g u m Fisk istofu ás amt lögreglu á sk rif- stofu Saltvers, að heimilum eigenda og stjórnenda og um borð í netabát fyrirtækisins sem var að leggja að bryggju með þorskafla dagsins. Lagt var hald á bókhald og tölvur gerðar upptækar, bæði fyrirtækis- og einkatölvur. Einnig var lagt hald á merkt heimilisbókhald auk skipsdagbóka og annarra gagna úr bátnum. Kæligeymslur voru innsiglaðar og starfsfólk yfir- heyrt. Ástæðan var rannsókn á nýtingu sjávarafla hjá Saltveri. Var þetta vægast sagt mjög óþægi- leg lífsreynsla sem líður seint eða aldrei úr minni. Langur tími Daginn eftir var tekið eitt sýni úr óunnum afla frá deginum áður. Þrjátíu og tveimur mánuðum (!) síðar felldi Fiskistofa úrskurð sinn á grundvelli þessa eina sýnis, hinn 1. mars 2013, og sektaði Saltver um tæpar 33 milljónir króna sem fyrirtækinu var gert að greiða án tafar. Ástæðan var það mat stofnunarinnar að fyrirtækið hefði meðhöndlað 93 tonn af sjávarafla sem ekki hefði verið löglega veginn og skráður á 15 mánaða tímabili. Saltver kærði þegar ákvörðunina til úrskurðarnefndar, enda hafði fyrir- tækið undir höndum niðurstöður úr nýtingarprufum frá óháðum sérfræðifyrirtækjum á þessu sviði, Matís ohf. og Sýni ehf. sem voru í engu samræmi við niðurstöðu í nýtingarprufu Fiskistofu. Málið fellt niður Á meðferðartímabilinu, áður en Fiskistofa felldi úrskurð sinn, var niðurstöðum Matís og Sýnis komið á framfæri við Fiskistofu en hún kaus að hafa þær að engu. Eftir skoðun úrskurðarnefndar á málsgögnum tók það hana aðeins nokkra daga að úrskurða um að málið skyldi fellt niður, þar sem það væri „ekki hafið yfir allan vafa að nýtingarprufa sem gerð var af starfmönnum Fiskistofu hinn 2. apríl 2011 gefi nákvæma mynd af meðalnýtingu í fiskvinnslu Salt- vers“. Eftir standa þó alvarlegar ásakanir um brot á landslögum og atvinnurógur í garð fyrirtækisins og starfsfólks þess. Rannsókn á fiski í dauðastirðnun Allir vita sem til þekkja í sjávarút- vegi að nýting þorsks er breytileg eftir árstíma, allt frá um 49 pró- sentum og upp í 54%. Í nýtingar- rannsókninni var nýtingarhlut- fallið 49,25%. Hefði það verið 50% eða hærra hefði málinu lokið án eftirkasta. Sýnið var tekið á þeim árstíma þegar þorskurinn er að hrygna eða ljúka hrygningu. Þá er líkamlegt ástand hans hvað lé- legast, fiskurinn magur, fituinni- hald lítið og fiskurinn viðkvæmur fyrir hnjaski. Þrátt fyrir þetta er nýtingarhlutfallið 49,25% innan eðlilegra og þekktra marka. Nær- tækara og eðlilegra hefði þó verið að taka f leir i sýni eins og t íðkast við fagleg vinnu- brögð færustu sér- fræðinga. Í kjölfar niðurstöðu Fiski- stofu leitaði Saltver til Matíss og Sýnis þar sem beðið var um sýnatökur og nýtingarrannsóknir í samræmi við vinnsluaðferðir Saltvers. Niður- staða Matíss var að sýnataka og mælingar Fiskistofu hefðu farið fram í apríl þegar hráefnið er við- kvæmt fyrir söltun vegna hrygn- ingartímabilsins. Jafnframt að Fiskistofa hefði notað of ferskt hrá- efni og að fiskurinn hefði verið enn í dauðastirðnun. Hjá Saltveri fer vinnsla aldrei fram meðan fiskur er í dauðastirðnun. Tvær nýtingarrannsóknir Sýni framkvæmdi tvær nýt- ingarrannsóknir í samræmi við vinnsluaðferðir Saltvers. Í fyrri tilrauninni var nýtingarhlutfallið 53,3% og 51%, í þeirri síðari. Af þessu má draga þá ályktun að rannsókn Fiskistofu hafi ekki getað verið í samræmi við vinnsluað- ferðir Saltvers. Mælingarnar leiddu jafnframt í ljós ákveðna nýtingu á þeim árstíma sem tilraunir voru framkvæmdar. Það var mat Sýnis að gera þyrfti fleiri nýtingarprufur til að fá vísbendingar um nýtingu í vinnsluhúsum, en kunnugir vita að hún breytist milli mánaða og ára og margir þættir hafa þar áhrif. Þeim sem vinna við rannsóknir á nýtingu fiskafurða er ljóst fiskur í dauðastirðnun nýtist verr heldur sá sem verkaður er annaðhvort fyrir eða eftir dauðastirðnun. Ekki sannleikanum samkvæmt Fiskistofa segir framkvæmd sýna- töku og rannsóknar stofnunar- innar á nýtingarhlutfalli hafa verið framkvæmda í samræmi við vinnsluaðferðir Saltvers. Það er alrangt. Enginn hjá Saltveri hafði neitt með framkvæmdina að gera. Að mati færustu sérfræðinga á nýtingu þorsks er 49,25 prósenta nýting aðeins möguleg ef þekking á kjöraðstæðum lélegrar nýtingar er höfð að leiðarljósi við nýtingar- tilraun, þar er, ef valinn er fiskur í aprílmánuði í dauðastirðnun til rannsóknar. Ósk um bætt vinnubrögð Alræði Fiskistofu er algert og Salt- ver gat ekkert gert nema lúta þeirra valdi með alvarlegar ásakanar um brot á landslögum og atvinnuróg í garð fyrirtækisins og starfsfólki þess á herðunum. Það verður að gera þá kröfu til opinberra eftirlits- stofnana að þær ræki hlutverk sitt þannig að fagleg vinnubrögð þeirra séu hafin yfir allan vafa. Að mínu mati var svo alls ekki í þessu máli. Ég vil að lokum þakka öllum þeim sem hafa liðsinnt okkur meðan á málinu stóð, ekki síst starfsfólkinu og öðrum sem vitað hafa allan tím- ann að aðgerðir Fiskistofu voru til- efnislausar og illa ígrundaðar. Þorsteinn Erlingsson framkvæmdastjóri og eigandi Saltvers Fiskistofa gegn Saltveri Þorsteinn Erlingsson framkvæmdastjóri og eigandi Saltvers skrifar: Næsta blað fimmtudaginn 2. janúar 2014

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.