Víkurfréttir - 19.12.2013, Page 35
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 19. desember 2013 35
Bestu jóla- og nýárskveðjur
sendum við til ættingja og vina
með þakklæti fyrir liðnar stundir.
Heimilisfólk og starfsmenn
Garðvangs.
-póstkassinn
Síðdegis föstu-daginn 1. apríl
birtist skyndilega
yfir 20 manna hópur
einkennisklæddra
m a n n a á v e g u m
Fisk istofu ás amt
lögreglu á sk rif-
stofu Saltvers, að
heimilum eigenda og
stjórnenda og um borð í netabát
fyrirtækisins sem var að leggja að
bryggju með þorskafla dagsins.
Lagt var hald á bókhald og tölvur
gerðar upptækar, bæði fyrirtækis-
og einkatölvur. Einnig var lagt
hald á merkt heimilisbókhald auk
skipsdagbóka og annarra gagna
úr bátnum. Kæligeymslur voru
innsiglaðar og starfsfólk yfir-
heyrt. Ástæðan var rannsókn á
nýtingu sjávarafla hjá Saltveri.
Var þetta vægast sagt mjög óþægi-
leg lífsreynsla sem líður seint eða
aldrei úr minni.
Langur tími
Daginn eftir var tekið eitt sýni úr
óunnum afla frá deginum áður.
Þrjátíu og tveimur mánuðum (!)
síðar felldi Fiskistofa úrskurð sinn
á grundvelli þessa eina sýnis, hinn
1. mars 2013, og sektaði Saltver
um tæpar 33 milljónir króna sem
fyrirtækinu var gert að greiða
án tafar. Ástæðan var það mat
stofnunarinnar að fyrirtækið hefði
meðhöndlað 93 tonn af sjávarafla
sem ekki hefði verið löglega veginn
og skráður á 15 mánaða tímabili.
Saltver kærði þegar ákvörðunina til
úrskurðarnefndar, enda hafði fyrir-
tækið undir höndum niðurstöður
úr nýtingarprufum frá óháðum
sérfræðifyrirtækjum á þessu sviði,
Matís ohf. og Sýni ehf. sem voru
í engu samræmi við niðurstöðu í
nýtingarprufu Fiskistofu.
Málið fellt niður
Á meðferðartímabilinu, áður en
Fiskistofa felldi úrskurð sinn,
var niðurstöðum Matís og Sýnis
komið á framfæri við Fiskistofu
en hún kaus að hafa þær að engu.
Eftir skoðun úrskurðarnefndar á
málsgögnum tók það hana aðeins
nokkra daga að úrskurða um að
málið skyldi fellt niður, þar sem
það væri „ekki hafið yfir allan vafa
að nýtingarprufa sem gerð var af
starfmönnum Fiskistofu hinn 2.
apríl 2011 gefi nákvæma mynd af
meðalnýtingu í fiskvinnslu Salt-
vers“. Eftir standa þó alvarlegar
ásakanir um brot á landslögum og
atvinnurógur í garð fyrirtækisins
og starfsfólks þess.
Rannsókn á fiski í
dauðastirðnun
Allir vita sem til þekkja í sjávarút-
vegi að nýting þorsks er breytileg
eftir árstíma, allt frá um 49 pró-
sentum og upp í 54%. Í nýtingar-
rannsókninni var nýtingarhlut-
fallið 49,25%. Hefði það verið 50%
eða hærra hefði málinu lokið án
eftirkasta. Sýnið var tekið á þeim
árstíma þegar þorskurinn er að
hrygna eða ljúka hrygningu. Þá
er líkamlegt ástand hans hvað lé-
legast, fiskurinn magur, fituinni-
hald lítið og fiskurinn viðkvæmur
fyrir hnjaski. Þrátt fyrir þetta er
nýtingarhlutfallið 49,25% innan
eðlilegra og þekktra marka. Nær-
tækara og eðlilegra
hefði þó verið að
taka f leir i sýni
eins og t íðkast
við fagleg vinnu-
brögð færustu sér-
fræðinga. Í kjölfar
niðurstöðu Fiski-
stofu leitaði Saltver
til Matíss og Sýnis
þar sem beðið var um sýnatökur
og nýtingarrannsóknir í samræmi
við vinnsluaðferðir Saltvers. Niður-
staða Matíss var að sýnataka og
mælingar Fiskistofu hefðu farið
fram í apríl þegar hráefnið er við-
kvæmt fyrir söltun vegna hrygn-
ingartímabilsins. Jafnframt að
Fiskistofa hefði notað of ferskt hrá-
efni og að fiskurinn hefði verið enn
í dauðastirðnun. Hjá Saltveri fer
vinnsla aldrei fram meðan fiskur er
í dauðastirðnun.
Tvær nýtingarrannsóknir
Sýni framkvæmdi tvær nýt-
ingarrannsóknir í samræmi við
vinnsluaðferðir Saltvers. Í fyrri
tilrauninni var nýtingarhlutfallið
53,3% og 51%, í þeirri síðari. Af
þessu má draga þá ályktun að
rannsókn Fiskistofu hafi ekki getað
verið í samræmi við vinnsluað-
ferðir Saltvers. Mælingarnar leiddu
jafnframt í ljós ákveðna nýtingu á
þeim árstíma sem tilraunir voru
framkvæmdar. Það var mat Sýnis
að gera þyrfti fleiri nýtingarprufur
til að fá vísbendingar um nýtingu
í vinnsluhúsum, en kunnugir vita
að hún breytist milli mánaða og
ára og margir þættir hafa þar áhrif.
Þeim sem vinna við rannsóknir á
nýtingu fiskafurða er ljóst fiskur í
dauðastirðnun nýtist verr heldur sá
sem verkaður er annaðhvort fyrir
eða eftir dauðastirðnun.
Ekki sannleikanum
samkvæmt
Fiskistofa segir framkvæmd sýna-
töku og rannsóknar stofnunar-
innar á nýtingarhlutfalli hafa
verið framkvæmda í samræmi við
vinnsluaðferðir Saltvers. Það er
alrangt. Enginn hjá Saltveri hafði
neitt með framkvæmdina að gera.
Að mati færustu sérfræðinga á
nýtingu þorsks er 49,25 prósenta
nýting aðeins möguleg ef þekking
á kjöraðstæðum lélegrar nýtingar
er höfð að leiðarljósi við nýtingar-
tilraun, þar er, ef valinn er fiskur
í aprílmánuði í dauðastirðnun til
rannsóknar.
Ósk um bætt vinnubrögð
Alræði Fiskistofu er algert og Salt-
ver gat ekkert gert nema lúta þeirra
valdi með alvarlegar ásakanar um
brot á landslögum og atvinnuróg
í garð fyrirtækisins og starfsfólki
þess á herðunum. Það verður að
gera þá kröfu til opinberra eftirlits-
stofnana að þær ræki hlutverk sitt
þannig að fagleg vinnubrögð þeirra
séu hafin yfir allan vafa. Að mínu
mati var svo alls ekki í þessu máli.
Ég vil að lokum þakka öllum þeim
sem hafa liðsinnt okkur meðan á
málinu stóð, ekki síst starfsfólkinu
og öðrum sem vitað hafa allan tím-
ann að aðgerðir Fiskistofu voru til-
efnislausar og illa ígrundaðar.
Þorsteinn Erlingsson
framkvæmdastjóri og
eigandi Saltvers
Fiskistofa gegn Saltveri
Þorsteinn Erlingsson framkvæmdastjóri
og eigandi Saltvers skrifar:
Næsta blað fimmtudaginn 2. janúar 2014