Víkurfréttir - 19.12.2013, Síða 63
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 19. desember 2013 63
lífinu. Æfingin er það mikilvægasta
af öllu, það er ekki nóg bara að
mæta. Keflavík hefur síðan haldið
fyrir sig sínum auka áherslum ef
svo mætti kalla. En það eru áherslur
sem eru í anda þeirrar hugmynda-
fræði sem Keflavík hefur. Í þessum
efnum er Keflavík með ákveðnar
æfingar sem stelpurnar læra
snemma og þróa svo með sér upp
alla flokkana.
Árangur ofar öllu
Hættan sem er að skapast í kvenna-
körfuboltanum í dag í Keflavík
er að stelpur eru að fara ungar í
meistaraflokk, allt að 16 ára gamlar.
Þær stúlkur æfa þá með meistara-
flokki og eru að spila með 1-2
öðrum flokkum í leiðinni. Fyrir
vikið þá eru þessar stelpur á færri
æfingum en spila meira af leikjum
og missa þar af leiðandi af kennslu
í grunnatriðum. Keflavík hefur
spornað við þessu með að bjóða
upp á aukaæfingar sem eru fastir
tímar í hverri viku. Á þessum auka-
æfingum er bara unnið í grunnat-
riðum. Keflavík byrjar fyrr að
leggja áherslu á árangur í keppni
en stefna ÍSÍ segir til um. Félag-
ið byrjar frá 11 ára aldri að leggja
áherslu á árangur í keppni, á meðan
stefna ÍSÍ segir að það eigi að gera
frá 15 ára aldri.
Eftir að krakkar mæta á æfingar hjá
körfuboltanum í Keflavík þá reyna
þjálfarar að halda þeim hjá sér og
reyna að passa að þeir fari ekki í
aðrar íþróttagreinar. Sérstaklega
þeim sem þykja efnilegir. Þjálfarar
hafa litla þolinmæði gagnvart því ef
iðkendur eru að æfa aðrar íþrótta-
greinar. Er það einfaldlega þannig
að þeir sem eru að æfa fleiri en eina
íþróttagrein eða í tónlistarnámi og
mæta þar af leiðandi ekki á allar
æfingar fá að spila minna en aðrir.
Þeir sem vilja æfa körfubolta sem
líkamsrækt eða til að rækta félags-
skapinn, er ekki boðið upp á slíkt.
Árangur er það sem skiptir öllu
og eru þjálfarar duglegir að láta þá
bestu spila mest á kostnað annarra
til þess eins að vinna leiki.
Þessi speki og hugmyndafræði er
þó að breytast. Yfirþjálfari yngri
flokka, Einar Einarsson er farinn að
leggja meiri áherslu á að þjálfarar
kenni iðkendum sínum og reyni að
skila sem hæfileikaríkustum ein-
staklingum frá sér eftir hvern vetur.
Von er til þess að skila sem flestum
einstaklingum frá yngri flokka
starfinu og upp í meistaraflokk.
Í dag er lið meistaraflokks kvenna
það yngsta í úrvalsdeildinni. Liðið
er í öðru sæti deildarinnar eftir að
hafa leitt mótið frá upphafi þess.
Nokkur enduruppbygging er
í gangi í Keflavík og eru nokkrir
sigursælustu yngri flokkar félagsins
frá upphafi væntanlegir í meistara-
flokk innan fárra ára. Ekkert lát
virðist því á frábæru gengi Kefla-
víkur ef áfram heldur sem horfir.
Í byrjun nýrrar aldar eða árið
2001 útnefndi KKÍ lið aldarinnar
í kvennakörfuboltanum. Þar áttu
Keflavíkurstelpur 2 leikmenn
af 5 í byrjunarliðinu og svo 4
til viðbótar af 7 á varamanna-
bekknum. Önnu Maríu Sveins-
dóttur hlotnaðist svo sá heiður að
fá titilinn leikmaður aldarinnar í
kvennakörfuboltanum á Íslandi.
Það er athyglisvert að skoða
viðurkenningar sem veittar eru
í mótslok, en þar hafa leikmenn
Keflavíkur látið til sín taka. Alls
12 sinnum hefur Keflavík átt leik-
mann ársins sem er met, en verð-
launin voru fyrst afhent árið 1982
og hafa því verið afhent alls 32
sinnum.
Þá hefur félagið 7 sinnum átt
besta unga leikmanninn sem er
met, verðlaunin voru afhent fyrst
árið 1994 og hafa verið veitt alls
18 sinnum.
ANNA MARÍA
LEIKMAÐUR
ALDARINNAR
Ótrúleg endurkoma
Íslandsmeistaranna
uGrindvíkingar sóttu magn-
aðan sigur gegn Skallagrími eftir
að leikurinn virtist svo gott sem
tapaður í hálfleik hjá Suðurnesja-
piltum. Borgnesingar sem léku á
heimavelli voru sjóðheitir í fyrri
hálfleik en munurinn var 18 stig
þegar liðin gengu til klefa í hálf-
leik og útlitið svart hjá Grind-
víkingum. Sverrir Þór Sverris-
son hefur látið nokkur vel valin
orð falla í klefanum í hálfleik en
Grindvíkingar hreinlega skelltu
í lás í vörninni þegar aftur var
flautað til leiks. Borgnesingar
skoruðu aðeins 23 í seinni hálf-
leik gegn varnarmúr Grindvík-
inga, á meðan Íslandsmeistar-
arnir sölluðu niður 53 stigum.
Lokatölur urðu 73-85 Grind-
víkingum í vil.
Sigur gegn Stjörn-
unni í síðasta leik
Nigel Moore
uNjarðvíkingar báru sigurorð af
Stjörnumönnum, 98-87 í Dom-
ino´s deild karla í körfubolta í
síðasta leik fyrir jólafrí. Leikur-
inn var jafn og spennandi lengst
af en Njarðvíkingar reyndust
sterkari í síðasta leikhluta. Elvar
Már Friðriksson lék afbragðsvel
hjá heimamönnum í Njarðvík en
hann skoraði 31 stig í leiknum.
Nigel Moore kvaddi Ljónagryfj-
una með skínandi góðum leik
en kappinn hnoðaði í tvennu,
21 stig og 12 fráköst. Það verður
eftirsjá af Nigel í Njarðvík en það
er ljóst að liðið er vel mannað
af bakvörðum og skortir kraft í
teiginn. Nigel mun ganga til liðs
við ÍR en þar er Njarðvíkingur-
inn Örvar Kristjánsson þjálfari.
Öruggur
Keflavíkursigur
uKeflvíkingar voru í stuði gegn
Snæfellingum um helgina og
unnu öruggan sigur í Domino´s
deild karla. Keflvíkingar lögðu
grunn að sigrinum með frá-
bærum fyrsta leikhluta þar sem
þeir náðu 20 stiga forystu, 34-14.
Að lokum fór það svo að Kefl-
víkingar lönduðu 103-77 sigri.
Keflvíkingurinn Rebekka Gísladóttir lék heldur betur
vel með liði sínu í bandaríska há-
skólafótboltanum í ár. Rebekka
sem er á síðasta ári við Embry
Riddle skólann í Daytona Flo-
rida, var valin í All-American
liðið 2013, sem er viðurkenning
fyrir góðan árangur í háskólafót-
boltanum í Bandaríkjunum.
Valin eru lið 1-3 og var Rebekka
valin í All-American lið númer tvö
af National Association of Inter-
collegiate Athletics - og valin í lið
númer eitt af þjálfurum deildar-
innar. Rebekka hefur sýnt ótrú-
legan árangur, en hún fór í brjósk-
losaðgerð í baki sumarið 2012 en
kom tvíelfd tilbaka. Rebekka hefur
verið einn af tveimur fyrirliðum
skólans þetta fótboltaár en hún
leikur sem varnarmaður hjá liðinu.
Rebekka í úrvalsliði í háskólaboltanum
Friðjón Einarsson nýr for-
maður Golfklúbbs Suðurnesja
Friðjón Einarsson er nýr for m a ð u r G ol f k lúbb s
Suðurnesja en aðalfundur
klúbbsins var haldinn 5. des.
sl. Hann tekur við af Sigurði
Garðarssyni sem lætur af emb-
ætti eftir fimm ár. Á fundinum
kom fram að rekstur GS hafi
verið í ágætum málum þó svo
að tekjur hafi dregist nokkuð
saman en þá gerðist það líka
gjaldamegin. Reksturinn var
því réttu megin við núllið og
hagnaður 2,5 milljónir kr.
„Ég vil þakka það traust og
þann heiður sem mér er sýndur
með þessu kjöri og ég lofa því
að ég mun gera mitt besta í því
að halda áfram því góða starfi
sem hér hefur verið unnið undir
forystu Sigurðar Garðarssonar,“
sagði Friðjón í tölvupósti sem
lesinn var upp á aðalfundinum.
Friðjón var ekki viðstaddur
þegar hann var kosinn á fund-
inum þar sem hann var hjá syni
sínum og eiginkonu í Reading í
Englandi. Sonur hans æfir knatt-
spyrnu með enska félaginu í
samnefndum bæ.
„Golfárið sem nú er að baki var
gott golfár að mörgu leyti, þar
sem starfsmenn og sjálfboða-
liðar GS stóðu fyrir meira en 50
skráðum golfviðburðum. Þar á
meðal voru a.m.k. 4 stórir golf-
viðburðir fyrir GSÍ eins og t.d.
KPMG bikarinn, Eimskips-
mótaröðin, Sveitakeppni GSÍ
1. deild kvenna og Íslandsmót
unglinga,“ sagði Sigurður Garð-
arsson, fráfarandi formaður GS
m.a. í skýrslu stjórnar. Hann
sagði félagsstarf í klúbbnum gott
og félagar væru duglegir að taka
þátt í sjálfboðastarfi sem fylgir
miklu mótahaldi.
Golfíþróttin hefur átt undir
högg að sækja meðal barna og
unglinga og GS hefur ekki farið
varhluta af því. Reynt hefur
verið að laða ungmenni á golf-
völlinn og á næsta ári verður til
að mynda ókeypis fyrir 14 ára og
yngri að ganga í klúbbinn.
Auk Sigurðar gengu Páll Ketils-
son, varaformaður og Heimir
Hjartarson, út úr stjórn og Gylfi
Kristinsson sem var í varastjórn
hætti einnig. Þeir komu með
Sigurði inn í stjórn fyrir fimm
árum síðan. Auk Friðjóns í for-
mannsembættið komu Jóhann
Páll Kristbjörnsson og Jón Ingi
Ægisson nýir inn í stjórn og
Guðmundur R. Hallgrímsson í
varastjórn.
GS verður 50 ára á næsta ári og
verður tímamótunum fagnað
með veglegum hætti.
Ný stjórn GS er þannig skipuð:
Friðjón Einarsson formaður
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jón Ingi Ægisson
Karitas Sigurvinsdóttir
Hafdís Ævarsdóttir
Davíð Viðarsson
Þröstur Ástþórsson
Varastjórn
Guðmundur Rúnar
Hallgrímsson
Örn Ævar Hjartarson
Hilmar Björgvinsson