Ægir - 01.06.2014, Qupperneq 6
6
Síðustu vikur hafa borist fregnir af samningum íslenskra útgerðarfyrir-
tækja um nýsmíðar skipa, bæði uppsjávarskipa og ísfisktogara. Fjár-
festingin hleypur á hátt í 20 milljörðum króna, þ.e. þau verkefni sem
þegar hafa verið gerð opinber en líklegt verður að teljast að talsvert
meira sé í farvatninu enda þörfin orðin mjög mikil.
Öllum atvinnugreinum er nauðsynlegt að fjárfesta í atvinnutækj-
um á hverjum tíma. Saga sjávarútvegs á Íslandi endurspeglar þetta
mjög vel. Það urðu byltingarkenndar breytingar á sínum tíma þegar
skuttogararnir komu í sjávarplássin hringinn í kringum landið, sama er
að segja um tilkomu frystihúsanna. Að ekki sé minnst á frystitogarana
þó þar sé líka vert að gefa gaum hversu hátt hlutfall þess flota er eldri
ísfiskskip sem breytt var í frystiskip. Fjárfestingar í nýrri tækni, hugsun
og búnaði í fiskimjölsverksmiðjunum er enn eitt dæmið um þetta og á
síðari árum sú þróun sem hefur áhrif bæði í landvinnslu og skipastóln-
um að aukin áhersla er á framleiðslu ferskra fiskafurða. Allt snýst þetta
um eitt atriði sem öllu skiptir; þ.e. að framleiða betri vörur á hag-
kvæmari hátt en áður. Litið aftur í tímann hefur greinin verið mjög
kvik og fljót að tileinka sér nýjungar sem skýrist öðru fremur af því
hversu markaðsvædd hún er. Drifkraftur breytinganna er sá sem
mestu ræður, kaupandi afurðanna; hans viðhorf og vilji. Til að mæta
hans þörfum verður að finna hagkvæmustu leiðirnar að því að fram-
leiða þá vöru sem markaðurinn óskar eftir.
Fjallað er um þessa nýhöfnu fjárfestingaskriðu í skipastólnum hér í
blaðinu og vert er að taka undir með Kristjáni Vilhelmssyni, útgerðar-
stjóra Samherja hf., að þessar nýsmíðar hefðu þurft að vera komnar af
stað fyrir löngu. Kristján vekur athygli á hvernig komið var fyrir grein-
inni á þeim tíma þegar kvótakerfið var sett á. Þá varð ný hugsun að
koma til. Það tók sinn tíma að snúa frá óhagkvæmninni en nú virðist
komið að nýjum framfarakafla. Vissulega varð efnahagsáfall hér á
landi sem að einhverju marki hafði áhrif á áform fyrirtækja um endur-
nýjun skipanna. Hitt hefur þó ekki leynt sér innan greinarinnar að áhrif
af umræðu um grundvallarbreytingar stjórnvalda á kerfinu hafa verið
víðtæk og sett fjárfestingar til framtíðar á ís. Uppsöfnuð þörf er því
orðin mikil og kann mörgum sem með fylgjast nokkuð risavaxið þegar
ráðist er í á stuttum tíma svo miklar fjárfestingar sem raun ber vitni.
Horft til aldurs skipastólsins blandast hins vegar engum hugur um að
þau nýsmíðaverkefni sem búið er að semja eru ekki nema hluti af
brýnni þörf.
Áratuga gamlir ísfisktogarar munu víkja fyrir nýjum og sérhönnuð-
um skipum sem búin eru með tilliti til þarfa dagsins í dag. Það snýr
meðal annars að kælingu á aflanum og allri meðferð en þekking á
þeim mikilvæga þætti í öllu veiði- og vinnsluferli í sjávarútvegi hefur
stóraukist frá þeim tíma þegar gömlu ísfisktogararnir voru smíðaðir.
Annað atriði, ekki síður mikilvægt, er eldsneytisþátturinn í útgerðinni.
Eldsneytiskostnaður er orðinn mjög stór liður í útgerð skipa og skiptir
miklu að auka hagkvæmni til að mæta því, enda vart við því að búast
á komandi árum að stórfelldar lækkanir verði á eldneytisverði. Skipa-
stóllinn hefur líka mikið að segja í heildarútblæstri hér á landi og hvert
nýtt skip er mikilvægt innlegg til að draga úr losun á heimsvísu.
Margar jákvæðar hliðar eru því á því að fiskiskipaflotinn yngist þó já-
kvæðast sé að sjá fjárfestingu fara af krafti af stað á nýjan leik. At-
vinnugrein sem ekki fjárfestir til að endurnýja sig er í kyrrstöðu og
þannig vill enginn sjá sjávarútveginn á Íslandi.
Jóhann Ólafur Halldórsson ritstjóri skrifar
Tímabærar fjárfestingar
Út gef andi:
Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Rit stjórn:
Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Ak ur eyri.
Rit stjór i:
Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.)
Sími 515-5220. GSM 899-9865.
Net fang: johann@athygli.is
Aug lýs ing ar:
Inga Ágústsdóttir. Sími 515-5206.
GSM 898-8022. Net fang: inga@athygli.is
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Suðurlandsbraut 30. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Á skrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 5100 kr.
Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205
ÆG IR kem ur út 11 sinn um á ári.
Eft ir prent un og ívitn un er heim il,
sé heim ild ar get ið.
MAKING MODERN LIVING POSSIBLE
Danfoss hf. • Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími: 510 4100 • veffang: www.danfoss.is
Danfoss stjórnbúnaður fyrir íslenskan iðnað
Rofabúnaður • Mjúkræsar • Segullokar
Hitastillar • Hitanemar
Stjórnbúnaður með áratuga reynslu
við íslenskar aðstæður
Hitaliðar •
Þrýstiliðar • Þrýstistillar • Þrýstinemar
R
itstjórn
a
rp
istilll
www.icefish.is
Þriggja daga sýning
og verðlaunaafhending
Stærsta sjávarútvegssýningin í norðri!
Skipuleggjandi Alþjóðlegt tímaritOpinbert flugfélag/
Loftflutningar & hótelkeðja
Þar er fjallað um allar hliðar fiskveiða í atvinnuskyni, allt frá fiskileit og veiðum,
vinnslu og pökkun til markaðssetningar og dreifingar á fullunninni vöru til neytenda.
Nánari upplýsingar um alla þætti, hvort sem þú vilt sýna, koma í heimsókn eða vera kostandi,
veitir sýningarstjórn í síma +44 (0) 1329 825335 eða í netfanginu info@icefish.is
Opinber vörustjórnun Opinber íslensk útgáfa
Smáranum í Kópavogi dagana
25. - 27. september 20
14
11.
íslenska
Heimsækið vefsetur okkar: www.icefish.is
Mercator Media Ltd
The Old Mill, Lower Quay, Fareham
Hampshire PO16 0RA England
Tel: +44 (0)1329 825335
Fax: +44 (0) 1329 825330
info@icefish.is www.icefish.is