Ægir - 01.06.2014, Side 9
9
að fylgjast með öryggismálum.
Þá megi ekki heldur gleyma
þætti Siglingastofnunar Íslands
í að framfylgja þeim tillögum
sem nefndin hefur gert á
undanförnum árum.
Allar tilkynningar til
Rannsóknarnefndarinnar
Á vef Rannsóknarnefndar sam-
gönguslysa (www.rnsa.is) er
meðal annars að finna yfirlit um
tilkynningar sem nefndinni
hafa borist um slys á sjómönn-
um á síðustu árum. Athygli vek-
ur að langflestar tilkynningar,
eða um það bil fjórar af hverj-
um fimm, koma í gegnum
Sjúkratryggingar Íslands, en
einungis eitt af hverjum fimm
slysum er tilkynnt beint til
nefndarinnar. Ástæðuna fyrir
þessu segir Jón vera þá að
margar tilkynningar til Sjúkra-
trygginga séu vegna minnihátt-
ar mála sem menn telji ekki
eiga erindi við Rannsóknar-
nefndina. Hins vegar séu atvik-
in tilkynnt til Sjúkratrygginga til
að halda til haga hugsanlegum
bótarétti viðkomandi sjó-
manna. Hann segir að í þessu
felist ákveðinn misskilningur.
Rannsóknar nefnd in þurfi líka
að fá upplýsingar um öll þessi
mál til að hægt sé að vinna úr
þeim tölfræðilega og fá heildar-
yfirlit yfir þau atvik sem verða
um borð. „Þess vegna höfum
við hvatt menn til að senda
alltaf afrit á okkur þegar mál
eru send til Sjúkratrygginga.
Við metum það síðan sjálfstætt
hvort ástæða er til að skoða við-
komandi mál frekar, eða hvort
skráningin dugar. Tilkynning-
um til okkar fer smám saman
fjölgandi og í sumum tilfellum
gera Sjúkratryggingar kröfu um
að menn hafi sent tilkynningu
til okkar áður en mál eru af-
greidd hjá þeim.“
Hann segir að á heimasíðu
Rannsóknarnefndar samgöngu-
slysa sé hægt að fylgjast með
þeim málum sem berist
nefndinni og þeirri afgreiðslu
sem þau fá og segir hann fjöl-
marga nýta sér þetta eins og
aðsóknartölur á síðuna beri
glöggt vitni um.
Frá Patreksfirði í nóvember 2001 þegar Núpur BA 69 varð vélarvana og
rak upp í fjöru rétt vestan við þorpið. Skipverjar björguðust allir í land
heilir á húfi.
Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í
matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna
sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum.
Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og
markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem
tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf
meira í dag en í gær.
Rannsóknir
í þágu sjávarútvegs
Stefna Matís er að
... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni
Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins
... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta
flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi
... hafa hæft og ánægt starfsfólk
Gildi Matís
Frumkvæði
Sköpunarkraftur
Metnaður
Heilindi
Hlutverk Matís er að
... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs
... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu um-
hverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu
... bæta lýðheilsu
www.matis.is