Ægir - 01.06.2014, Qupperneq 11
11
„Mesta breytingin undanfar-
in ár er sú að netnotkun úti á
sjó hefur vaxið mjög. Í nær öll-
um skipum og bátum er GSM
router og í gegnum 3G kerfið
ná menn því ágætis netsam-
bandi víða. Þetta 3G kerfi er þó
langt í frá jafn langdrægt og
gamla NMT kerfið sem eitt sinn
var. Það kerfi datt út sem kunn-
ugt er og Síminn veðjaði á 3G.
Norðmenn fóru aðra leið, þeir
breyttu gamla NMT kerfinu yfir í
stafrænt net, svokallað Icenet.
Það virkar mjög vel, er mun
langdrægara en 3G, gömlu
NMT netin notuð áfram um
borð og sjómenn með háhraða
nettengingu jafnlangt og NMT
símakerfið náði,“ segir Guð-
mundur.
Æ fleiri munu fá sér
gervihnattakúlu
Hann bætir við að annar ann-
marki á kerfinu sé sá að notkun-
in sé enn sem komið er nokkuð
kostnaðarsöm, kerfið er dýrt og
menn fái stundum vænan
reikning eftir túrinn. Til að ná
netsambandi úti á sjó fjarri
landi þarf að setja VSAT gervi-
hnattakúlur um borð í skipin og
á langflestum stærri skipum séu
slíkar kúlur fyrir hendi. Það geri
sjómönnum kleift að nýta far-
tölvur í klefum sínum og einnig
er hægt að hringja í gegnum
VSAT kerfið. „Sjómenn geta
þannig, svo dæmi sé tekið,
stundað fjarnám úti á sjó eða í
raun gert flest sem þeir kjósa,“
segir Guðmundur. Hann kveðst
þess fullviss að þróunin verði sú
að umfang gervihnattakúlunn-
ar muni minnka og þannig
verði unnt að setja slíka fjar-
skiptakúlu upp á minni bátum
og jafnframt muni verð á bún-
aði og notkun lækka. „Það er
þróunin með flesta hluti, not-
endum mun því fjölga á kom-
andi árum,“ segir Guðmundur
að lokum.
Sónar sérhæfir sig í sölu og þjónustu á siglingatækjum.