Ægir - 01.06.2014, Page 15
15
Stærsta hvalasafn Evrópu verð-
ur opnað við Fiskislóð í Reykja-
vík um mánaðamótin júlí/
ágúst. Að baki verkefninu
standa Hörður Bender og fjár-
festingarsjóðurinn Landsbréf-
Icetourist fund. Ægir ræddi
stuttlega við Hörð um tilurð
safnsins.
„Hugmyndin að safninu á
sér eðlilegan aðdraganda
vegna uppgangs í ferðaþjón-
ustu og með auknum áhuga á
hvalaskoðun. Við sjáum þetta
sem tækifæri til að auka við
upplifun fyrir þá sem vilja meiri
upplýsingar og læra meira um
hvalina. Þar að auki er ekki alltaf
veður fyrir hvalaskoðun og
stundum er enga hvali að sjá,
sem rennir enn fleiri stoðum
undir þann grundvöll sem við
teljum vera fyrir safninu,“ segir
Hörður en stefnt er að samstarfi
við öll hvalaskoðunarfyrirtæki á
landinu.
Allir íslenskar hvalategundir
Að sögn Harðar voru fjárfestar
einhuga um að aðbúnaður og
aðstaða safnsins skyldi vera í
fremstu röð. „Það eru önnur
hvalasöfn í Evrópu. Eftir því sem
ég best veit þá er stærsta safnið
núna í Þýskalandi, norður af
Berlín, en þar eru þeir með um
10 líkön til sýnis. Við verðum
hins vegar með 23 líkön og
beinagrindur. Í safninu verða
allar íslenskar hvalategundir til
sýnis.“ Hörður bætir því við að
auk líkana verði gagnvirkar
stöðvar á safninu sem geri gest-
um kleift að afla sér upplýsinga
um hvalina og heimkynni
þeirra.
Sérfræðingar úr öllum áttum
Húsnæði safnsins við Fiskislóð
er um 1700 fermetrar að stærð
og er mikið lagt í hönnun þess.
Hörður segir líkönin vera rétt
ókomin, en þau eru hönnuð á
Íslandi og svo framleidd utan
landsteinanna. Undirbúningur
hefur gengið hratt og vel fyrir
sig og koma fremstu fagaðilar
úr ýmsum áttum að verkefninu.
Þá koma helstu sérfræðingar Ís-
lands í sjávarlíffræði að upp-
setningu safnsins auk sýn-
ingarteymisins sem setti á fót
hestagarðinn Fákasel við Ing-
ólfshvoll í Ölfusi, fyrr á þessu ári
við góðan orðstír. Fróðlegt
verður að fylgjast með opnun
safnins og viðtökum bæði er-
lendra ferðamanna og heima-
manna.
Stærsta hvalasafn
Evrópu opnar á Granda
Tölvuteikning sem sýnir hönnun safnsins. Húsnæðið við Fiskislóð er
um 1700 fermetrar að stærð og er mikið lagt í hönnun þess.
S
öfn