Ægir - 01.06.2014, Page 18
18
„Afkastaaukning með nýja
búnaðinum verður um 30% og
því kemur framleiðsla okkar til
með að aukast á ársgrundvelli.
Eftir sem áður sérhæfum við
okkur í vinnslu á þorskafurðum
og í meginatriðum verður
framleitt fyrir sömu markaði og
áður,“ segir Ægir Jóhannsson,
frystihússtjóri Gjögurs á Greni-
vík en í lok apríl var tekinn í
notkun nýr vinnslubúnaður í
fyrstihúsinu. Um er að ræða
nýja flæðilínu með 8 snyrti-
stöðvum, vatnsskurðarvél og
pökkunarbúnað en línan öll
kemur frá fyrirtækinu Völku
ehf.
Vatnsskurðarvélin er hjartað
í vinnslulínunni en hún byggir á
myndgreiningartækni og með
vatnsskurði er unnt að ná mikilli
nákvæmni í bitaskurðinum á
fiskflökunum. Áður þurfti að
handskera flökin í bita en með
nýja búnaðinum er allt skorið Hnakkastykkjum raðað á færiband fyrir pökkun.
F
isk
v
in
n
sla
Ægir Jóhannsson, frystihússtjóri Gjögurs á Grenivík, við
vatnsskurðarvélina og myndgreiningarbúnaðinn frá Völku
ehf. Þessi tæki skera beingarðinn úr flökunum og skila
niðurskornum bitum af mikilli stærðarnákvæmni.