Ægir - 01.06.2014, Blaðsíða 20
20
Breytileiki í útbreiðslu og
stofnstærð einkennandi
Forstjóri Hafrannsóknastofnun-
ar fer í inngangi skýrslunnar yfir
sviðið hvað nytjastofnana varð-
ar og segir marga þeirra í
ágætu jafnvægi og að nýting
þeirra sé hófleg. Hann bendir á
vöxt veiðistofna gullkarfa og
ufsa sem dæmi um jákvæða
þróun. Síðan víkur Jóhann máli
að ýsustofninum þar sem
myndin er öllu dekkri sökum
slakrar nýliðunar um margra ára
skeið.
„Breytileiki í útbreiðslu og
stofnstærð einkennir mikilvæg-
ustu uppsjávarstofna við
landið. Kolmunnastofninn er nú
í góðum vexti eftir að hafa verið
í mikilli lægð á undanförnum
árum. Stofn íslenskrar sumar-
gotssíldar hefur mátt þola veru-
leg afföll síðastliðin ár, bæði
sökum sýkingarfaraldurs og
vegna súrefnisskorts í Kolgrafa-
firði veturinn 2012/2013. Þrátt
F
isk
istofn
a
r
Nytjastofnaskýrsla Hafrannsóknastofnunar:
Sterkur þorsk-
stofn en dökkt
útlit í ýsunni
„Samkvæmt stofnmati er viðmiðunarstofn þorsks nú metinn um
1106 þúsund tonn og hrygningarstofninn 411 þúsund tonn. Hrygn-
ingarstofninn er nú þrefalt stærri en þegar hann var í lágmarki
1992–1994 og viðmiðunarstofninn stærri en hann hefur verið
undanfarna þrjá áratugi. Síðasta áratug hefur veiðihlutfallið fallið
úr 34–40% í um 20% af viðmiðunarstofni árið 2013. Meðalstærð ár-
ganga 2005–2010, sem nú eru uppistaðan í stofninum, er um 140
milljónir þriggja ára nýliða sem er um 80% af meðalstærð árganga
tímabilsins 1955–2012. Allir árgangar frá 2010, nema árgangur
2011, eru minni en langtíma meðaltalið. Þrátt fyrir að nýliðun hafi
verið undir meðallagi á undangengnum áratug hefur þorskstofn-
inn styrkst verulega og er það fyrst og fremst vegna minni sóknar.
Með nýliðun síðustu ára er vart hægt að búast við meiri afrakstri úr
þorskstofninum en nú er og ef aflareglunni er fylgt eru líkur á að
afli haldist svipaður næstu árin,“ segir Jóhann Sigurjónsson for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar í nýrri skýrslu um nytjastofna og
aflahorfur. Þar er ráðlagður afli á þorski á næsta fiskveiðiári 218
þúsund tonn, nokkru minni en margir höfðu borið væntingar til.
Viðmiðunarstofn í þorski er nú stærri en hann hefur verið metinn síðustu þrjá áratugi. Hrygningarstofninn er
sömuleiðis stór. Hins vegar er nýliðun síðustu ára slök.