Ægir - 01.06.2014, Page 26
26
Minnum á öfluga þjónustu Ísfells og gott úrval af vörum til línuveiða. Hér fyrir ofan má sjá lítið brot af
þeim vörum og beitu sem Ísfell býður fyrir línuveiðar. Í vörulistanum á www.isfell.is er að finna ítarlegar
upplýsingar um allar vörur.
Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna!
Allt til línuveiða
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
www.isfell.is
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður
„Þessi nýja aðstaða er eins og
best verður á kosið á fiskmörk-
uðum í dag og markmið okkar
er að auka smám saman magn-
ið sem fer um markaðinn ári,“
segir Guðmundur Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs
Norðurlands á Dalvík sem tók
nú í vor í notkun 530 fermetra
húsnæði að Ránarbraut 1 sem
búið er kælirými, slægingarað-
stöðu og vélflokkun. Í fram-
haldi af kaupum fyrirtækisins
Valeska ehf. á Fiskmarkaði
Dalvíkur síðastliðið haust var
nafni markaðarins breytt í Fisk-
markað Norðurlands og nýtt
húsnæði fundið fyrir markað-
inn.
„Við notuðum vetrar-
mánuðina til að gera húsnæðið
klárt fyrir starfsemina en að-
staðan er önnur og mun betri
en áður. Stóra breytingin er líka
sú að nú bjóðum við upp á
slægingarþjónustu og vélflokk-
un sem ekki var til staðar áður
og það er liður í aukinni þjón-
ustu við viðskiptavini mark-
aðarins. Á ársgrundvelli hafa
farið um 2500 tonn af fiski í
gegnum markaðinn en okkar
markmið er í fyrstu að auka það
upp í 3000 tonn,“ segir Guð-
mundur.
Góð þjónusta skiptir máli
Fiskmarkaður Norðurlands sel-
ur allar aukfisktegundir af tog-
urum sem koma til löndunar
fyrir fiskvinnslu Samherja hf. og
ÚA á Akureyri. Yfir sumar-
mánuðina eru strandveiðibátar
mikilvægur viðskiptavinahópur
en Guðmundur segir bátana
flesta frá Dalvík og úr ná-
grannabyggðum. „Afli strand-
veiðibátanna hefur verið
þokkalegur það sem af er sumri
en þó náðist ekki heildaraflinn á
svæðinu í maí en mun senni-
lega nást í júní. Hér úti fyrir
Norðurlandi sækja línubátar á
haustmánuðum og þeir eru
okkur líka mikilvægir viðskipta-
vinir en fyrst og fremst koma
bátar til löndunar á þeim mark-
aði sem næstur er miðunum
hverju sinni. Engu að síður
skiptir miklu máli að bjóða
góða þjónustu líkt og við telj-
um okkur gera með þessari
nýju aðstöðu,“ segir Guðmund-
ur. En hvað með verðin?
„Þau eru mjög breytileg og
ráðast af nokkrum þáttum.
Stærsta breytan er framboðið
og þegar það er mikið þá geta
verðin tekið dýfu,“ segir Guð-
mundur. Sem kunnugt er hafa
heimildir í ýsu verið skornar
mikið niður og lítið fer af henni
um markaðinn en kaupenda-
hópurinn segir Guðmundur að
sé mjög fjölbreyttur. „Já okkar
viðskiptavinir má segja að séu
út um allt land,“ segir hann.
Fiskmarkaður Norðurlands á Dalvík:
Nýtt húsnæði og aukin þjónusta
Guðmundur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Norðurlands við ker með rígaþorski sem kom úr
strandveiðinni.
Hús Fiskmarkaðs Norðurlands
við Ránarbraut á Dalvík.
F
isk
m
a
rk
a
ðir