Ægir - 01.06.2014, Page 30
30
við að taka þetta skref. Við höf-
um skoðað málið frá ýmsum
hliðum og niðurstaðan var sú
að kaupa nýtt skip.“ Sigurgeir
segir að þótt smíði á nýju skipi
sé mikil fjárfesting þá sé áhætt-
an við hana ekki eins mikil og
kunni að virðast. „Nýleg ísfisk-
skip eru ófáanleg, enda eru
tveggja ára skip oft talin betri
en ný vegna þess að þá er búið
að sníða af þeim ýmsa vankanta
sem vilja fylgja nýjum skipum.
Markaður fyrir slík skip er því
mjög góður og auðvelt að selja
nýtt skip ef það reynist
nauðsynlegt.“ Sigurgeir segir að
við ákvörðun um smíði nýja
skipsins hafi minni elds-
neytiskostnaður vegið þungt og
taki hönnun skipsins mið af því.
Búið að greiða upp
hagræðingarkostnaðinn
Kristján Vilhelmsson fram-
kvæmdastjóri útgerðarsviðs
Samherja segir að þar á bæ séu
þessi mál til skoðunar og að
það muni skýrast fljótlega hver
niðurstaðan verður. Aðspurður
hvers vegna þessi skriða fjár-
festinga fari af stað núna segir
Kristján: „Þegar kvótakerfið var
sett á 1983 var sjávarútvegur-
inn í rúst. Það sýna hagtölur frá
þessum tíma. Þá var farið í
gríðarlega hagræðingu sem
greinin sjálf kostaði. Veiðiheim-
ildum var þjappað saman og
tækjum fækkað þannig að þau
sem eftir voru gátu sótt og
unnið aflann á hagkvæmari
hátt. Væntanlega er greinin um
það bil að verða búin að greiða
upp þennan kostnað núna og
þá er hægt að fara að huga að
endurnýjun. Í raun er allt of
seint af stað farið í þessa endur-
nýjun. Við hefðum þurft að vera
búin að þessu fyrir löngu en
síðustu 4-5 ár hefur það frestast
vegna óvissu.“
Íslensk reynsla
Verkfræði- og ráðgjafafyrirtæk-
ið Navís hefur um árabil annast
hönnun og endurbætur á fiski-
skipum bæði fyrir íslenskar og
erlendar útgerðir. Hjörtur Emils-
son framkvæmdastjóri segir að
íslenski fiskiskipaflotinn sé
orðinn gamall og því mikil þörf
á endurnýjun. Þetta eigi sér-
staklega við um ísfisktogarana
en á síðustu árum hafi menn
byrjað að yngja upp uppsjávar-
flotann og þá aðallega með
kaupum á notuðum skipum frá
Noregi. Hjörtur segir mikilvægt
að við smíði nýrra skipa sé nýtt
sú mikla reynsla sem hafi safn-
ast upp hér á landi á liðnum ár-
um. Þetta eigi bæði við um
hönnun skipa og val á tækni-
búnaði en þar segir hann ís-
lensk fyrirtæki standa mjög
framarlega. „Mörg þessara fyrir-
tækja starfa nú í Sjávarút-
vegsklasanum við Reykjavíkur-
höfn en með tilkomu hans hafa
opnast margir nýir og
spennandi möguleikar sem
upplagt er að nýta nú þegar ís-
lenskar útgerðir hugsa sér til
hreyfings,“ segir Hjörtur Emils-
son.