Ægir - 01.06.2014, Qupperneq 32
32
„Þetta er alveg hreint ágætt
fyrir svona karla eins og mig
sem eigum okkar báta skuld-
laust og þekkjum miðin, við lif-
um ágætlega á þessu. En mér
þykir ekki líklegt að nýliðar
sem þurfa að kaupa bát og
skulda hann að mestu og
þekkja ekki til ríði feitum hesti
frá þessu,“ segir Gísli Geir Sigur-
jónsson sem gerir út bát sinn
Herborgu til strandveiða frá
Hornafirði.
Gísli Geir var á heimleið með
fullfermi þegar Ægir náði sam-
bandi við hann, en á þessum
árstíma er róið út að Höfða um
50 sjómílna leið frá Hornafirði
og tekur stímið hvora leið um
tvo og hálfan tíma. „Þetta er
drjúgur spotti og töluverður
olíukostnaður við að sækja
svona langt, en veiðin er góð.
Við vorum hér þrír bátar og allir
á heimleið með fullfermi,“ segir
Gísli Geir.
Kerfið býður upp á bull og
vitleysu
Hann var í startholunum að
hefja strandveiðar um leið og
þær hófust í byrjun maí en segir
leiðindaveður á sínum slóðum
hafa gert að verkum að hann
beið aðeins með að róa. „Ég sá
enga ástæðu til að byrja strax,
ölduhæðin var mikil, tveir og
hálfur metri og bara vitleysa að
fara út,“ segir Gísli Geir. „Þetta
strandveiðikerfi býður upp á
bull og vitleysu, það eru allir að
keppast við að ná sínum hlut úr
pottinum áður en hann klárast
og róa því oft þó svo veðrið
bjóði ekki upp á það. Þetta er
innbyggt í kerfið og þessu þarf
að breyta.“
Hann segir að ástandið muni
ekki lagast fyrr en kvóti verði
settur á, en á það vilji stjórn-
málamenn ekki hlusta. Betra er
að mati Gísla Geirs að hafa kerf-
ið með þeim hætti að menn rói
og sæki sinn afla þegar gefur.
„Þetta er auðvitað sérstaklega
mikilvægt á þeim slóðum þar
sem langt þarf að sækja eins og
gildir um okkar svæði.“
Langt að sækja
Gísli Geir telur að allt að einn
þriðji hluti aflaverðmætis fari í
olíukostnað hjá bátum sem
gera út frá Hornafirði og sækja
á miðin kringum Höfða. Yfir
sumarið opnist þá á mið sem
ekki eru eins fjarlæg en þó þurfi
menn iðulega að sigla um 20
sjómílur og lengra yfir hásum-
arið til að komast í gjöful fiski-
mið.
„En strandveiðarnar fóru vel
af stað og veiðin hefur verið
góð, þannig að við erum bjart-
sýnir,“ segir Gísli Geir.
Gísli Geir Sigurjónsson gerir út á strandveiðar frá Hornafirði:
Langt á miðin
en aflinn er góður
Gott hljóð er í strandveiðimönnum þessa dagana.
S
tra
n
d
v
eiða
r