Gerðir kirkjuþings - 2003, Qupperneq 43
II. Hluti: Grundvöllur og hlutverk
2.1 Grundvöllur
íslenska Þjóðkirkjan er evangelísk lútersk kirkja, hluti hinnar heilögu almennu kirkju
er biður, boðar og þjónar í nafni Jesú Krists um heim allan.
Kristin kirkja er fólk sem kallað er til samfélags við Guð og við hvert annað í trú, von
og kærleika. Andi Guðs knýr kirkjuna til að boða og vitna um Jesú Krist í orði og
verki. Kirkjan byggir á Biblíunni og vitnisburði hinna fyrstu kristnu um hinn
krossfesta og upprisna Jesú Krist og þeim lífsviðhorfum sem felast í þeim boðskap.
Kristin kirkja og fólkið í landinu hafa átt samleið ffá upphafi byggðar. Kristin trú og
siður eru samofin sögu þjóðarinnar og eru mótandi afl í samfélaginu. Þjóðkirkjan vill
miðla komandi kynslóðum hinum kristna arfi og vera vakandi fyrir nýjum tækifærum
og leiðum í starfi sínu sem helgast af bæn, boðun og þjónustu.
2.2 Hlutverk
Hlutverk Þjóðkirkjunnar er að boða og iðka kristna trú á þann veg að sérhver
einstaklingur er tekur á móti boðskapnum um Jesú Krist:
Játi trú á Guð, höfund alls lífs, og leiti leiðsagnar hans í lífinu
o finni þörf sína fyrir nærveru og gæsku Guðs
o beri virðingu fýrir sköpun Guðs
o virði helgi og gildi hverrar manneskju
o haldi í heiðri boðorð Guðs
Trúi á Jesú Krist sem frelsara ogfyrirmynd ogsýni þá trú í orði og verki
o setji traust sitt á Jesú Krist og orð hans
o beri umhyggju fýrir öðrum sem svar við elsku Guðs
o iðrist og fýrirgefi eins og Guð fýrirgefúr
o sýni umburðarlyndi og stuðli að réttlæti og friði í samskiptum við annað
fólk
Styrkist í trú, von og kærleika með hjálp heilags anda
o eigi samfélag við Guð í bæn, orði Guðs, skím og altarisgöngu
o kynnist krafti og gleði trúarinnar í samfélagi safnaðarins
o sýni örlæti og hjálpsemi sem svar við góðum gjöfúm Guðs
o eflist í von um eilíft líf með Guði
2.3 Þjóðkirkjan rækir hlutverk sitt með því að:
o boða, biðja og þjóna í helgihaldi,
o fræða um kristna trú og siðferðisgildi,
o sinna kærleiksþjónustu, hjálparstarfi og kristniboði innanlands og utan,
o starfa um land allt í söfnuðum þar sem fjölskyldur og einstaklingar eiga
athvarf á stundum gleði og sorgar,
o liðsinna hverjum þeim sem þarfnast stuðnings,
o standa vörð um kristna trúar- og menningararfleifð á íslandi,
o miðla af reynslu systurkirkna um heim allan.
41