Gerðir kirkjuþings - 2003, Blaðsíða 58
14. VIÐAUKI
Undirbúningur
Kirkjuþing 2002 fól Kirkjuráði að sjá um framkvæmd stefnumótunar
Þjóðkirkjunnar og skila tillögum fyrir Kirkjuþing 2003. Kirkjuráð skipaði starfshóp til
að fylgja eftir stefnumótunarferlinu. Þar eiga sæti sr. Anna Sigríður Pálsdóttir
kirkjuþingsmaður og Sigríður M. Jóhannsdóttir kirkjuráðsmaður, ásamt Halldóri
Reynissyni, sviðsstjóra fræðslu- og upplýsingamála. Undirbúningsnefhd á vegum
starfshópsins skipuðu svo Halldór Reynisson, Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari
og Guðmundur K. Magnússon prófessor. Steinunn A. Bjömsdóttir guðffæðingur var
ráðinn í hálft starf sem verkefhisstjóri í janúar. Ami Svanur Daníelsson, vefstjóri
Biskupsstofu, hefur starfað með hópnum og séð um uppbyggingu gagnagrunnsins.
Dr. Runólfur Smári Steinþórsson, dósent við Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla íslands, hefur verið faglegur ráðgjafí verkeffrisins og tekið þátt í ferlinu.
Vinnsluferli
Á vinnufundum í desember 2002 og janúar 2003 var undirbúið vinnuhefti fyrir
greiningu á styrkleikum, veikleikum, ógnunum, tækifærum og framtíðarsýn. Heftið
var sent öllum sóknamefhdum, prestum og ýmsum stofhunum og féiagasamtökum
innan kirkjunnar í febrúarbyrjun. Svör bámst allt til loka marsmánaðar og vora þau
flokkuð og túlkuð í apríl og maí.
Alls tóku 109 hópar þátt í greiningarvinnunni og skiluðu niðurstöðum.
Meirihluti svaranna var frá landsbyggðinni, eða 65, en 44 komu frá
höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendur vora alls 860, 500 frá landsbyggðinni, 360 frá
höfuðborgarsvæðinu. Yrðingar vora um 3000 og var hver einasta þeirra greind og
flokkuð. Þetta gaf meðal annars færi á tíðnimælingu á svörunum og möguleika á að
skoða afmarkaða þætti sérstaklega. Ekki er hægt að draga í efa að þessi svör veita
veigamiklar upplýsingar um fólkið í kirkjunni, um starfsmenn og sóknarböm,
sóknamefiidarfólk og kórfólk svo einhverjir svarenda séu nefndir.
Að auki vora metin svör frá prestastefhu 2002 þar sem um 120 prestar
og djáknar tóku þátt í greiningarvinnu. Kynning fór fram á héraðsfundum og
sérstökum kynningarfúndum um land allt, leikmannastefnu 2003 og prestastefnu
2003. Ef færi gafst vora fúndargestir beðnir að vinna frekar með niðurstöður
greiningarinnar og gefa ffekari hugmyndir um útfærslu á þeim. Undirbúningur að
skilgreiningu á hlutverki kirkjunnar var unninn á prófastafundi í Skálholti í mars
2003. Biskupafúndur gekk síðan frá tillögum um hlutverkslýsingu fyrir prestastefnu
2003 þar sem áfram var unnið með hlutverk Þjóðkirkjunnar og framtíðarsýn. Þar var
líka farið yfir helstu flokka greiningarinnar og settar fram hugmyndir um úrvinnslu í
samræmi við niðurstöður hennar.
Alls tóku rúmlega 1000 manns þátt í stefhumótunarferlinu og er þetta líklega
fjölmennasta stefhumótunarvinna sem farið hefúr fram á íslandi.
Síðsumars vora þræðir stefnumótunarvinnunnar dregnir saman og stefnuskjal
mótað. Starfshópur og undirbúningshópur komu að því ferli auk sviðsstjóra og fleira
starfsfólks á Biskupsstofu. Skjalið var kynnt Kirkjuráði í september.
Við ritun stefiiuskjals hefúr verið lögð áhersla á að byggja sem mest á
niðurstöðum greiningarinnar og viðbrögðum við henni. Með því var reynt að tryggja
að stefhumótun Þjóðkirkjunnar marki stefiiu sem allt það fólk sem tilheyrir kirkjunni
geti tileinkað sér og tekið undir.
56