Fréttablaðið - 16.03.2016, Side 6

Fréttablaðið - 16.03.2016, Side 6
Vinnan hefur gengið þokkalega vel og menn hafa verið að ná samkomulagi um breiðar línur. Ólöf Nordal innan- ríkisráðherra Opinn fundur Félags atvinnurekenda TÍMAMÓT Í LÍFEYRISMÁLUM Á almennum vinnumarkaði var nýlega samið um að hækka framlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð úr 8% af launum í 11,5%. Ýmsar spurningar vakna tengdar þessari stóru breytingu. Dagskrá: Ljónið og íkorninn – er hægt að spara of mikið til elliáranna? Ásgeir Jónsson, forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands Mikið í húfi að mikið nýtist vel – allt að fimmtungur launa í þvingaðan lífeyrissparnað Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins Þátttakendur í pallborðsumræðum ásamt frummælendum eru Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða og Henný Hinz, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands. Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. Fundurinn er haldinn í fundarsal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Léttur morgunverður í boði. Skráning á vef FA, atvinnurekendur.is PI PA R\ TB W A Morgunverðarfundur föstudaginn 18. mars kl. 8:30–10:00 Kjaramál Samninganefndir Banda- lags háskólamanna (BHM) og Sam- bands íslenskra sveitarfélaga hafa fundað stíft síðan fyrir síðustu helgi, að því er Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, segir. Enn er haldið í vonina um að saman náist í viðræð- unum. „Það er verið að vinna úr tilboði sveitarfélaganna og skiptast á upp- lýsingum,“ segir Þórunn og bætir við að þau hjá BHM séu „hæfilega bjartsýn“ á framhaldið. „Við viljum auðvitað fara að sjá fyrir endann á þessu og vonandi verður það á næstu dögum, en það er með þetta eins og áður í samningaviðræðum, að þetta er ekki búið fyrr en það er búið.“ Um leið áréttar Þórunn að við- ræðurnar hafi engu að síður þokast áfram frá því í lok síðustu viku. „Við vonum að það beri einhvern árangur í þessari viku.“ Náist ekki saman á næstu dögum segir Þórunn ýmislegt hafa verið íhugað hjá samtökunum varðandi næstu skref. „En það hafa engar ákvarðanir verið teknar og við ein- beitum okkur að því núna, samn- inganefndir þessara BHM-félaga sem eftir eru, að vinna með tilboð sveitarfélaganna og sjá hvort það sé grundvöllur samnings. Það tekur tíma, þetta er mikil útfærsla og nákvæmnisvinna.“ Þórunn segir verkefnið nokkuð flókið vegna þess að í sumum til- vikum hafi þurft að gera grund vallar- breytingar á launakerfinu. „Og þá er betra að vanda sig bara.“ Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, tekur í svipaðan streng. Enn hafi ekki komið til umræðu í röðum hjúkrun- arfræðinga að boða til aðgerða til að þrýsta á um gerð kjarasamnings. „Við erum bara í viðræðum enn þá. Það gengur hægt, en það gengur samt,“ segir hann. Enn sem komið er hafa því sjúkra- liðar einir boðað til verkfallsaðgerða til að knýja á um samninga við sveit- arfélögin. Félagið samþykkti í byrjun vikunnar boðun verkfalls frá og með mánudeginum 4. apríl næstkomandi hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Boðað verkfall sjúkraliða nær til öldrunar- og heilbrigðis- og félags- þjónustu sveitarfélaga utan höfuð- borgarsvæðisins. olikr@frettabladid.is Þokast hjá BHM og hjúkrunarfræðingum Samninganefnd stéttarfélaga háskólamanna sem ósamið eiga við Samband íslenskra sveitarfélaga vinnur með síðasta tilboð til að sjá hvort þar sé grund- völlur nýs samnings. Viðræður hjúkrunarfræðinga halda líka áfram. Við einbeitum okkur að því núna [...] að vinna með tilboð sveitarfélaganna og sjá hvort það sé grund- völlur samn- ings. Þórunn Svein- bjarnardóttir, formaður BHM Einn maður lést þegar bílsprengja sprakk í Charlottenburg-hverfinu í Berlín í gærmorgun. Bíllinn var á ferð og stefndi á miðborgina þegar sprengjan sprakk. Talsmaður lögreglu segir að morðrannsókn sé hafin og talið er að sprengingin tengist skipulagðri glæpastarfsemi. Fréttablaðið/EPa alþingi Starfshópur heilbrigðis- ráðherra sem falið var það verkefni að kanna afglæpavæðingu fíkni- efna lýkur störfum innan skamms. Þetta kom fram í máli Ólafar Nor- dal innan ríkisráðherra við sérstaka umræðu á Alþingi í gær. „Mér skilst að sá hópur sé alveg á lokametrunum með að klára. Vinn- an hefur gengið þokkalega vel og menn hafa verið að ná samkomulagi um breiðar línur. Þegar þeirri vinnu lýkur tel ég alveg ljóst að það þarf að hefja samtal milli þessara tveggja ráðuneyta um það hvort það eigi að skoða breytingar á refsipólitíkinni,“ sagði Ólöf Nordal. Málið heyrir undir bæði heilbrigðisráðuneytið, sem ber ábyrgð á lögum um ávana- og fíkniefni, og innanríkisráðuneytið sem ber ábyrgð á almennum hegn- ingarlögum. Það var Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sem hóf umræðuna. Hún vakti athygli á því að það væri tvennt ólíkt að leyfa fíkniefni eða afglæpavæða það að hafa fíkniefni í fórum sínum. Hún vísaði í umræðu sem fór fram á vegum Snarrótarinnar fyrr í vetur þar sem ræðumönnum bar saman um að aðferðir sem notaðar eru í fíkniefnastríðinu beri engan árang- ur. „Í Hollandi hefur sala kanna- bisefna verið háð litlum takmörk- unum um margra ára skeið. En neysla þeirra er minni en í mörgum Evrópulöndum og neysla sterkra efna er minni en í mörgum Evrópu- sambandslöndum,“ sagði Valgerður. Hún benti líka á að reynsla Portúgala af breyttri löggjöf væri góð. – jhh Styttist í tillögur um fíkniefnamál Bílsprengja varð manni að bana 1 6 . m a r s 2 0 1 6 m i Ð V i K U D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 1 6 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 C 8 -0 3 3 0 1 8 C 8 -0 1 F 4 1 8 C 8 -0 0 B 8 1 8 C 7 -F F 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.