Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.03.2016, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 16.03.2016, Qupperneq 10
Aðalfundur í Vátryggingafélagi Íslands hf verður haldinn 16. mars 2016 Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. boðar til aðalfundar í félaginu og verður hann haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, miðvikudaginn 16. mars 2016 og hefst hann stundvíslega kl. 16:00. Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 15:30 á aðalfundardegi. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Endanleg dagskrá frá stjórn er svohljóðandi: Einungis ef krafa kemur frá einhverjum fundarmanna verða atkvæðagreiðslur á aðalfundi skriflegar. Þó skal stjórnarkjör jafnan vera skriflegt ef tillögur koma fram um fleiri stjórnarmenn en kjósa skal. Stjórnarkjör fer fram skv. margfeldiskosningu en krafa um það kom frá hluthöfum sem hafa yfir að ráða meira en 10% hlutafjár, sbr. 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt og dagsett umboð. Aðilar sem eru eignaskráðir hluthafar í hlutaskrá skv. hlutaskrárkerfi félagsins þegar aðalfundur fer fram geta beitt réttindum sínum á aðalfundi. Aðalfundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann er löglega boðaður. Fundargögn verða afhent á fundarstað og eru þau á íslensku en hluthafafundurinn fer einnig fram á íslensku. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa og annað sem varðar aðalfundinn, svo sem ályktunartillögur stjórnar, (þ.á.m. um breytingar á samþykktum), upplýsingar um fram- bjóðendur til stjórnar, starfskjarastefnu, starfsreglur um kaupaukakerfi, umboðseyðu- blað og fleira, er að finna á vefsíðu félagsins: www.vis.is/fjarfestar. Reykjavík, 16. mars 2016 . Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2015. 2. Stjórnin leggur fram til afgreiðslu endurskoðaðan ársreikning félagsins fyrir hið liðna ár. 3. Ákvörðun um tillögu stjórnar um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á reikningsárinu og greiðslu arðs. 4. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum. 5. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. 6. Kosið í stjórn félagsins. 7. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu og starfsreglur um kaupaukakerfi. 8. Ákvörðun um þóknun til stjórnar og undirnefnda hennar. 9. Kosning endurskoðunarfélags í samræmi við lög um vátryggingastarfsemi. 10. Önnur mál löglega fram borin. Ofbeldi Engin áætlun virðist vera til í skólum ef ungmenni beitir annað ungmenni ofbeldi, til dæmis kyn­ ferðisofbeldi. Sautján ára stúlka átti, þegar hún var fjórtán ára, í sambandi við bekkjarbróður sinn sem hún sagði hafa beitt hana kyn­ ferðislegu ofbeldi í einrúmi en sýndi jafnframt óviðeigandi hegðun fyrir framan kennara og aðra nemendur. Fréttablaðið greindi frá því á mið­ vikudag að samkvæmt tölum Stíga­ móta segja fá börn frá kynferðislegri misnotkun í skóla sínum. Lilja Karen Kristófersdóttir sagði kennara frá ofbeldinu sem hún þurfti að þola í sambandinu og fékk í kjölfarið leyfi til að nýta sér þjón­ ustu Stígamóta, þrátt fyrir að vera unglingur. Hún þurfti þó áfram að umgangast drenginn. „Við vorum í sama skóla og í skólanum er aðeins einn bekkur í hverjum árgangi. Ég átti í vandræðum með að umgangast hann daglega og reyndi eftir öllum ráðum að komast hjá því.“ Þegar Lilja hafði reynt að fá áheyrn frá kennurum, sem virtust ráðalausir, leitaði hún til skólastýr­ unnar. „Skólastýran hafði ekki feng­ ið fregnir af málinu og kom strax í ljós að viðbragðsáætlun var ekki til staðar. Eftir fundinn var niður­ staðan sú að reynd yrði sáttameð­ ferð sem mér þótti ekki viðeigandi í mínu máli. Á  þeim tíma vissi ég ekki hvort það væru einhver önnur úrræði til staðar svo ég bakkaði út úr því á endanum.“ Lilja bókaði svo fund með skóla­ stjórnendum í desember á síðasta ári. Nú þegar nokkur misseri eru frá ofbeldinu getur hún horft á það í baksýnisspeglinum. „Ég ræddi við þau um hvernig það hefði átt að fara betur að mínu máli. Við vorum öll sammála um að það þarf skýr­ ari áætlanir þegar svona mál koma upp innan grunnskólanna. Einnig ræddi ég um mikilvægi kynfræðslu í grunnskólum landsins. Það er klárlega þörf á meiri umræðu og fræðslu um siðferði kynlífs eins og Samþykki er sexý og Fáðu já en það er alls ekki nóg. Það er gat þarna sem gleymist algjörlega og í því eru unglingadeildir grunnskólanna. Ég hef ítrekað að það þurfi meiri fræðslu um siðferði kynlífs. Það virðist ekki mega ræða neitt nema smokka, óléttur og kynsjúkdóma,“ segir Lilja. Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri við Norðlingaskóla, segir sára vöntun á sameiginlegum verklagsreglum frá Reykjavíkurborg. „Það er svo gott að fá utanaðkomandi aðila til að fara inn í svona mál. Ég held að það ein­ faldi og skýri alla hluti. Mér finnst skipta máli, með aukinni meðvitund fólks um þessi mál, að hafa ferla til þess að svona mál fari inn í.“ Málið reyndist skólanum og stjórnendum erfitt. „Þetta mál vakti okkur til mikillar umhugsunar hvað þetta varðar. Við erum komin með vinnulag í okkar húsi, en það er okkar innanhússleið. Það hefði verið frábært ef þessir ferlar hefðu verið til þegar þetta kom upp.“ snaeros@frettabladid.is Engir ferlar vegna kynferðisofbeldis til Ekki var gripið inn í þegar stúlka upplifði sig niðurlægða af kærasta sínum í skólanum. Hún þurfti að sitja áfram í bekk með honum þótt hún hafi sagt hann beita sig kynferðislegu ofbeldi. Var ráðlagt sáttameðferð. Skólastjóri kallar eftir verklagsferlum frá Reykjavíkurborg. 71% þolenda voru undir 18 ára aldri þegar þeir urðu fyrir kynferðisofbeldi samkvæmt ársskýrslu Stígamóta. Lilja Karen Kristófersdóttir berst nú fyrir því að verklag verði tekið upp og siðferði verði kennt í kynfræðslu svo það hendi ekki aftur sem kom fyrir hana. FréttabLaðið/SteFán 1 6 . m a r s 2 0 1 6 m i Ð V i K U d a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð 1 6 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 C 7 -E A 8 0 1 8 C 7 -E 9 4 4 1 8 C 7 -E 8 0 8 1 8 C 7 -E 6 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.