Fréttablaðið - 16.03.2016, Síða 20
Matvælavinnsluvélafyrirtækið
Martak stefnir á stórsókn utan
landsteinanna. „Við ætlum að efla
fyrirtækið til muna á næstu þremur
árum og leitum nú allra leiða til að
fá til okkar öflugt starfsfólk. Markað-
urinn kallar á lausnir sem við erum
með,“ segir Stefán Haukur Tryggva-
son, framkvæmdastjóri Martaks.
Stefán Haukur segir að efla þurfi
bæði tæknideild og framleiðslu og
leggja í framhaldinu aukna áherslu
á sölu og markaðssetningu. Til lengri
tíma setji menn sér engar skorður
varðandi mögulegan vöxt. „En við
stefnum á tvö til þreföldun á veltu
fyrirtækisins innan þriggja til fjög-
urra ára. Það er markmiðið. Tæki-
færin í þessum geira eru óþrjótandi,
verkefnin eru mörg sem eftir er að
leysa og fjöldi þátta sem við getum
nýtt úr kaldsjávarrækjunni yfir í
heitsjávarrækjuna.“
Ný pillunarvél á leið á markað
Stöðu fyrirtækisins hefur verið líkt
við þá sem Marel var í áður en kom
að útrás og vexti. Fyrirtækið hafi
byggt upp þekkingu og tækni í þjón-
ustu við kröfuharðan heimamarkað
og nú sé færi á að sækja fram.
„Við erum bara tvö fyrirtæki
í heiminum sem bjóðum upp á
heildar lausnir í rækjuiðnaði,“ segir
Stefán Haukur, þótt Martak sé
lítið miðað við keppinautinn, sem
sé um fimmtán hundruð manna
fyrirtæki. Fyrirtækið sjái þó íslenska
rækjuiðnaðinum alveg fyrir tækjum
til pillunar á rækju. Þá sýni prófanir
á nýrri pillunarvél, sem ekki hafi
verið endurhönnuð í nærri 60 ár
og Martak sé við að setja á mark-
að, að hún eyði allt að 58 prósent
minna rafmagni en eldri vélar. „Svo
gerum við ráð fyrir að hún minnki
vatnsnotkun um allt að 20 prósent.“
Martak starfar að langstærstum
hluta á markaði fyrir kaldsjávar-
rækju, en Stefán segir sóknarfæri
mikil þegar horft sé til heitsjávar-
rækju líka. „Kaldsjávariðnaðurinn er
í kring um 650 þúsund tonn á móti
eldis- og heitsjávarrækjunni sem
eru í kring um 7,4 milljónir tonna.
Svo er það sem menn átta sig ekki á,
að rækja er tuttugu prósent af öllu
sjávarfangi á alþjóðamarkaði. Það er
ótrúlegt magn.“
Risaverkefni í Sádi-Arabíu
Stefán Haukur segir ríka áherslu
lagða á rækjuna og þar ætli fyrir-
tækið sér að vera í fararbroddi.
„Þetta er auðvitað mikil þróunar-
vinna, sem er afar kostnaðarsöm,
en ef þú ætlar að vera með þá þarftu
að vera tilbúinn til að fjárfesta í
þróunarvinnunni.“
Hraður vöxtur kostar líka pen-
inga, en Stefán Haukur telur fyrir-
tækið nú þannig statt að vel verði
undir því staðið. Verkefnastaða sé
mjög góð og svo hafi nýlega verið
samið við Matís um samstarf til
að auka þekkingu við vinnslu sjávar-
afurða, svo sem við nýtingu hráefnis
sem til fellur og við að draga úr orku
og vatnsþörf, sem hjálpi fyrirtækinu.
„Þeir munu hjálpa okkur að finna
aukið fjármagn í þessa þróunar-
vinnu.“ Þar fyrir utan vinni fyrirtæk-
ið með styrkjakerfinu í Kanada og
eigi í samstarfi við stærstu fyrirtækin
í geiranum, svo sem Clear water,
Barry Group og Quinlan Broth ers.
Af ellefu rækjuverksmiðjum sem
eru í Kanada þjónustar Martak níu.
Um leið er ekki alveg hlaupið
að því að útvíkka starfsemina, því
vinnsla heitsjávarrækju er um margt
ólík kaldsjávarrækjunni. „Eldisrækj-
an er venjulega afgreidd í skelinni að
hluta,“ segir Stefán Haukur. Fyrir-
tækið sé hins vegar að feta þessa slóð
og vinni, í samstarfi við danskt fyrir-
tæki, að mjög stóru verkefni í Sádi-
Arabíu þar sem verið sé að setja upp
nýtt eldi sem með fullum afköstum
eigi að geta unnið 30 tonn af rækju á
klukkutíma. „Við erum einmitt búin
að skila tillögum að fyrsta hluta,
tveimur línum af sex.“ Vinnslan
sé hins vegar öðruvísi, allt hráefni
berist í körum og sé pakkað í kassa
sem kalli á sérstök þvottakerfi. „Við
sjáum um alla innmötun, flokkun
og pökkun á afurðinni í þessu verk-
efni en danska fyrirtækið Semi
Staal sér um allan þvott á körum og
kössum.“
Tvö tonn af próteini á tímann
Þá séu aðstæður víða þannig í
heiminum að vatn sé af skornum
skammti og þar þurfi lausnir sem
ekki endilega sé kallað eftir hér
heima. Þarna séu um leið sóknarfæri
í að nýta efni sem annars hverfi með
skolvatninu. „Rækjuiðnaður notar
mikið vatn, venjuleg rækjuverk-
smiðja, með kannski átta pillunar-
vélar, notar núna á bilinu 130 til 150
tonn af vatni á klukkustund.“ Fyrir-
tækið vinni hörðum höndum að
gerð hreinsibúnaðar sem líka hreinsi
prótein úr vatninu. Rannsókn, sem
gerð hafi verið með háskólanum
á Keili í fyrra, bendi til að ná megi
allt að tveimur prósentum af pró-
teinmassa úr frárennslisvatninu frá
rækjuvinnslunni. „Það þýðir eitt og
hálft til tvö tonn af próteinmassa á
klukkutíma.“ Magnið er töluvert,
en yrði komið slíkum búnaði á allar
verksmiðjur sem Martak þjónustar
í Kandada yrðu þar til um 360 tonn
af próteinmassa á dag.
Slíkt magn þýði að finna verði
því markað, en efnið segir Stefán
Haukur að geti nýst víða. „Þetta er
hægt að nýta beint inn í matvæla-
vinnslur, inn í heilsuiðnaðinn, lyfja-
iðnað, fæðubótarefni og þar fram
eftir götunum.“
Stefán Haukur segir þegar hafið
markvisst starf í átt að útvíkkun á
starfsemi fyrirtækisins, en það tók
meðal annars þátt í nýafstaðinni
sjávarútvegssýningu í Boston í
Bandaríkjunum, 6. til 8. mars. „Þar
hittum við eiginlega alla okkar við-
skiptavini og funduðum sérstak-
lega með Bandaríkjamönnum og
Kanadamönnum, auk funda til að
koma af stað verkefnum í fiskinum
í Kanada,“ segir hann, en þeir séu
nú að fara af stað í fiskveiðar á ný
eftir 28 ára hlé. „Og erum nú þegar
komnir með samninga við stærstu
kanadísku fyrirtækin um þróun
og hönnun á nýjum fiskvinnslum í
Kanada.“
Í stórfellda útrás með
tækni til rækjuvinnslu
Martak, íslenskt fyrirtæki sem meðal annars býður heildarlausnir í rækju-
vinnslu, stefnir á stórsókn utan landsteinanna eftir eigendaskipti í byrjun árs.
Sinna litlum markaði með lausnir sem henta fleirum. Vinna að hreinsitækni
fyrir skolvatn sem síar út próteinefni sem nýtast í margvíslegan matvælaiðnað.
Rækjuiðnaður notar
mikið vatn, venjuleg rækju-
verksmiðja, með kannski
átta pillunarvélar, notar
núna á bilinu 130 til 150
tonn af vatni á klukkustund.
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
525 2080 // sala@valitor.is // www.valitor.is
Posar sem henta
þínum rekstri
Söluaðilar geta leigt posabúnað sem uppfyllir
þeirra kröfur. Hægt er að velja um frístandandi
posa, þráðlausa og posa tengda afgreiðslukerfi.
Hvernig posi hentar þínum rekstri?
ÞÚ SÉRÐ UM SÖLUNA – VIÐ SJÁUM UM GREIÐSLUNA
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
6
-0
9
2
4
Stefán Haukur Tryggvason er framkvæmdastjóri
matvælavinnsluvélafyrirtækisins Martaks. Fyrirtækið
leitar nú fanga á stærri mörkuðum og þróar tækni til
að nýta betur hráefni og spara bæði vatn og orku.
FRéTTAblAðið/ANToN bRiNk
1 6 . m a r s 2 0 1 6 m I Ð V I K U D a G U r4 maRkaðuRinn
1
6
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
C
8
-0
8
2
0
1
8
C
8
-0
6
E
4
1
8
C
8
-0
5
A
8
1
8
C
8
-0
4
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K