Fréttablaðið - 16.03.2016, Side 28
Stofnun um fjármálalæsi fer fyrir
hópi stofnana og fyrirtækja sem
standa fyrir viðburðum til að kynna
alþjóðlega fjármálalæsisviku 2016.
Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er
haldin á Íslandi en yfir 100 lönd í
öllum heimsálfum taka þátt í henni.
Breki Karlsson, forstöðumaður
Stofnunar um fjármálalæsi, heldur
utan um verkefnið hér á Íslandi.
„Við náum til barnanna í gegnum
skólana og svo erum við í samstarfi
við BarnaRÚV um Tíkallinn sem eru
tíu innslög um fjármál fyrir krakka.
Þar er ýmislegt í hagkerfinu útskýrt
fyrir krökkum, til dæmis hvernig
bankar virka, hvað Seðlabankinn
gerir og hvað verðbólga er. Svo eru
samtök fjármálafyrirtækja með
heimsóknir í skóla þar sem er verið
að leggja áherslu á eflingu fjármála-
læsis,“ segir Breki.
Stofnun um fjármálalæsi var
stofnuð 2005 og er því rúmlega tíu
ára. „Til að byrja með var orðið fjár-
málalæsi ekki til í íslenskri tungu.
Ég gerði rannsókn á fjármálalæsi
framhaldsskólanema og líklega var
það notað í fyrsta skipti þá. Ég þurfti
alltaf að útskýra hvað það þýddi og
meira að segja útskýra af hverju það
þurfti að efla fjármálalæsi.“
Breki minnir á að Íslendingar
töldu sig á árinu 2005 ekki þurfa að
læra neitt um fjármál. „Við vorum á
leiðinni að verða fjármálamiðstöð
alheimsins. Síðan breyttist það.
Snemma árs 2008 var ég beðinn
um að gera rannsókn á fjármálalæsi
Íslendinga fyrir menntamálaráðu-
neytið,“ segir Breki. Síðan þá hefur
hann gert rannsóknir á þriggja ára
fresti.
Breki hefur meðal annars komist
að þeirri niðurstöðu að það eru
tengsl milli viðhorfa og hegðunar,
fremur en milli þekkingar og hegð-
unar. „Leiðin til að bæta hegðun
fólks í fjármálum er að bæta viðhorf-
ið,“ segir Breki. Hann vill breyta við-
horfum fólks varðandi fjármálalæsi
með herferð og minnist smokkaher-
ferðar sem farið var í á níunda ára-
tugnum. „Allt í einu var það gert töff
að nota getnaðarvarnir. Hið sama
var gert með reykingar. Það náðist
mikill árangur í for varnar starfi
þegar menn fóru að beina sjónum
að viðhorfum um að það væri ekki
töff að reykja,“ segir Breki og vill
svipað átak tengt fjármálalæsi. „Vel
á minnst, smokka notkun. Þá sýna
mínar rannsóknir fram á að 2/3 for-
eldra tala við börnin sín um kynlíf
en einungis þriðjungur talar við þau
um fjármál,“ segir Breki og telur að
þarna þurfi að bæta úr.
Breki er viðskiptafræðingur að
mennt, lærði fyrst í Háskólanum í
Reykjavík en tók síðar framhalds-
nám í Viðskiptaháskólanum í
Kaupmannahöfn (CBS). Hann
lætur vel af dvölinni í Kaupmanna-
höfn. „Þetta er frábær staður og ég
fór út með fjölskylduna. Við vorum
með tvö börn á þeim tíma. Það var
skemmtilegur tími og okkur leið
svo vel að við ákváðum að skella í
þriðja barnið. Það er frábært að vera
í Kaupmannahöfn með fjölskyldu,“
segir Breki.
Frítímann nýtir Breki við lestur
og er virkur félagi í lestrarklúbbnum
Foreldrar tala
frekar við börn
um kynlíf en
Alþjóðlega fjármála-
læsisvikan fer núna fram
í þriðja sinn. Ráðast
þyrfti í átak fyrir fjár-
málalæsi eins og ráðist
hefur verið í átak fyrir
smokkanotkun og átak
gegn reykingum.
Krumma. „Ég stunda líka snjóbretti
af mikilli hörku,“ segir Breki en
bætir því við að hann sé nýbúinn að
detta illilega og enn að ná sér eftir
það. jonhakon@frettabladid.is
fjármál
www.mba.is
UPPLIFÐU MBA-NÁMIÐ Í KENNSLUSTUND
Föstudaginn 18. mars verður haldinn kynningarfundur MBA-námsins
í Háskóla Íslands. Fundurinn verður haldinn í stofu HT-101 á Háskólatorgi
kl. 12:10-12:50
Magnús Pálsson forstöðumaður MBA-námsins kynnir námið og
fyrirkomulag þess en einnig mun Ingvar Már Gíslason MBA 2016
og markaðsstjóri Norðlenska segja okkur frá reynslu sinni af náminu.
Eftir kynningarfundinn er gestum boðið í kennslustund í samningatækni
í MBA-náminu. Boðið verður upp á léttar hádegisveitingar.
Skráning fer fram á mba.is
Ingvar Már Gíslason,
markaðsstjóri Norðlenska
PI
PA
R\
TB
W
A
TAKTU FRUMKVÆÐI
AÐ EIGIN FRAMA
Afkoma knattspyrnuliða sem
spiluðu í tveimur efstu deildum
á Íslandi árið 2015 versnaði milli
ára. Í þinggerð ársþings KSÍ kemur
fram að afkoma liðanna 24 hafi
verið neikvæð um 53 milljónir
króna árið 2014 miðað við jákvæða
afkomu um 65 milljónir árið 2013.
„Þetta er þróun til þess að hafa
áhyggjur af,“ sagði Geir Þorsteins-
son, formaður KSÍ, í ávarpi sínu á
þinginu.
Heildartekjur félaganna jukust
um 60 milljónir króna og voru tæp-
lega 2,6 milljarðar króna. Heildarút-
gjöld félaganna hækkuðu á móti
um 130 milljónir króna á milli ára
og voru alls 2,65 milljarðar króna.
Þá kemur fram að KSÍ eigi von á
að fá um átta milljónir evra, um 1,1
milljarð króna, frá Knattspyrnu-
sambandi Evrópu, vegna þátttöku
karlalandsliðsins í Evrópumótinu
í knattspyrnu. Rekstraráætlun KSÍ
gerir ráð fyrir rúmlega 600 millj-
óna hagnaði á þessu ári. Af því eiga
um 300 milljónir króna að renna
til aðildarfélaga KSÍ en ekki liggur
fyrir með hvaða hætti greiðslunni
verður skipt milli félaganna. Auk
þess hækkar barna- og unglinga-
styrkur um þrjátíu prósent og
styrkur vegna leyfiskerfis hækkar
um fimmtán prósent.
Fyrir leyfisferli ársins 2014 fyrir
tvær efstu deildirnar voru teknar
upp viðmiðunarreglur um jákvæða
eiginfjárstöðu og að heildarskuldir
og skuldbindingar væru ekki hærri
en 50% af meðaltali rekstrartekna
undanfarinna þriggja ára. Af þeim
tólf félögum sem léku í efstu deild
karla árið 2015 stóðust sjö þessar
kröfur, tvö stóðust hvoruga kröf-
una, tvö ekki kröfu um hámarks-
skuldabyrði og eitt ekki kröfuna
um jákvætt eigið fé. Af tólf félögum
sem léku í fyrstu deild í fyrra stóð-
ust sex kröfurnar, tvö stóðust hvor-
uga kröfuna en fjögur ekki kröfuna
um jákvætt eigið fé. Heildarskuldir
félaganna 24 í árslok 2014 voru um
500 milljónir króna og hækkuðu
um fjörutíu milljónir króna á milli
ára. – ih
Afkoma íslenskra
knattspyrnuliða versnar
Stjarnan mætti skoska stórveldinu Celtic í forkeppni Meistaradeildar Evrópu
síðasta sumar. Þátttaka íslensku liðanna í Evrópukeppni getur verið afar ábatasöm.
fréttablaðið/andri Marínó
1 6 . m a r s 2 0 1 6 m I Ð V I K U D a G U r8 markaðurinn
1
6
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
C
7
-F
9
5
0
1
8
C
7
-F
8
1
4
1
8
C
7
-F
6
D
8
1
8
C
7
-F
5
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K