Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 16.03.2016, Blaðsíða 31
The Royal Bank of Scotland mun á næstu misserum segja upp þúsund starfsmönnum samkvæmt heim- ildum Financial Times. Bankinn mun vélvæða 550 störf og flytja þrjú hundruð störf til Indlands til að draga úr launakostnaði. Í gær var greint frá því að 448 starfsmönnum á fjárfestingasviði yrði sagt upp vegna endurskipu- lagningar. Bankinn mun segja upp skrifstofustarfsmönnum og millistjórnendum á fyrirtækja- og stofnanasviði til þess að minnka deildina. Breska ríkið á 73 prósenta hlut í bankanum eftir efnahagshrunið árið 2008, og hefur George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands, ítrekað vilja breska ríkisins til að losa um eign sína í bankanum á hærra verði en núverandi gengi hlutabréfa. Í staðinn fyrir þessi 448 störf mun RBS skapa þrjú hundruð svipuð stöðugildi á Indlandi, þar sem bankinn er nú þegar með starfsemi, til að draga úr launakostnaði. Bank- inn mun svo fækka þeim störfum á komandi árum. Fyrir nokkrum dögum tilkynnti bankinn að fjárfestingaráðgjafasvið yrði minnkað og 550 ráðgjöfum sagt upp. Í staðinn munu tækni- nýjungar verða nýttar til þess að veita viðskiptavinum með minni viðskipti við bankann ráðgjöf. – sg RBS segir upp þúsund starfsmönnum Þrjú hundruð störf flytjast til Indlands þar sem launakostnaður er mun lægri en í Bretlandi. FréttaBlaðIð/aFP Lean Ísland er stærsta stjórnendaráðstefnan hér á landi. Þar færðu að heyra það helsta úr heimi stjórnunar hvort sem um er að ræða straumlínustjórnun, gæðastjórnun, breytingastjónrun eða ferlastýringu svo dæmi séu tekin. Skráning er hafin á: www.leanisland.is Hvort sem þú ert í þjónustu eða framleiðslu, stjórnandi eða sérfræðingur, byrjandi eða lengra komin, í banka eða opinbera geiranum, að þá finnur þú eitthvað við þitt hæfi á Lean Ísland ráðstefnunni og námskeiðum í Lean Ísland vikunni. Fyrirlesarar koma víða að, m.a. frá Goodyear Tire, Spotify, Nike, Christleton High School, QuizUp, LNS Saga, Arion banka og fleiri. Gull samstarfsaðilar: Silfur samstarfsaðilar: Betri stjórnun betri fyrirtæki Ráðstefna í Hörpu 6.apríl 2016 Veitingahúsnæði á Laugavegi til sölu Tilboð óskast Til sölu veitingarhúsnæði á Laugaveginum, alls 125fm með geymsluhúsnæði. Húsnæðið er í útleigu í dag en gæti losnað fljótlega. Áhugasamir hafi samband við Völu Hauksdóttur, aðstoðarmaður fasteignasala á netfangið vala@eignahusid.is eða í síma 690 6590 til að afla frekari upplýsinga. Endalaust ENDALAUST NET 1817 365.is markaðurinn 11M I Ð V I K U D A G U R 1 6 . M A R s 2 0 1 6 1 6 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 C 8 -0 D 1 0 1 8 C 8 -0 B D 4 1 8 C 8 -0 A 9 8 1 8 C 8 -0 9 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.