Fréttablaðið - 16.03.2016, Qupperneq 44
„Um þessar mundir er ég að vinna að
útskriftarverkefninu mínu í Listahá-
skóla Íslands, ég er að hanna letur-
fjölskyldu sem heitir Silk. Leturfjöl-
skylda er safn af mismunandi stílum
af sömu leturtýpunni, til dæmis
feitletrað og skáletrað. Upprunalega
letrið sem ég hannaði er fótaletur en
ég er einnig að þróa það yfir í stein-
skrift. Þegar letrið er tilbúið mun
það vera til í 24 útgáfum og í fram-
haldinu ætti fólk að geta notað letrið
eins og önnur letur, til dæmis í Word
og öðrum forritum,“ segir Rakel en
það er óhætt að segja að þessi unga
hæfileikakona eigi framtíðina fyrir
sér í hönnun.
Guðmundur Úlfarsson og Mads
Freund voru þeir fyrstu sem stofnuðu
íslenska letursmiðju sem ber nafnið
Or type og leit dagsins ljós árið 2013.
Frá og með þeim tíma hafa vinsældir
leturgerðar á Íslandi aukist til muna
og fleiri íslensk letur litið dagsins ljós.
„Mér finnst leturgerð mjög
skemmtileg og eitthvað sem ég er
alveg til í að halda áfram með. Or
type er fyrsta íslenska letursmiðjan
og ég lít mikið upp til þeirra, ég gæti
alveg hugsað mér að hanna fleiri
letur í framtíðinni,“ segir Rakel.
Rakel leggur mikla áherslu á að
sýna hvernig hægt sé að nota letrið
á ýmsan hátt, hún hefur til dæmis
opnað Instagram-síðu (@silktype)
þar sem fólk getur fylgst með hönn-
unarferlinu og séð hvernig hægt er að
nota letrið á mismunandi hátt
„Ég hef alls engan áhuga á að ein-
angra mig og verkin mín, mér finnst
mjög gaman að sýna það sem ég
er að gera og fá viðbrögð frá fólki í
kringum mig. Instagram er ótrúlega
góður vettvangur til að sýna letrið og
vinnuna í kringum það. Það myndast
líka einhvers konar samfélög inni á
Instagram þar sem fólk er að skoða
hjá öðrum og skiptast á komment-
um.“
Rakel skrifaði lokaritgerðina sína
um myndletur, eða emoji, þar sem
hún skoðar til dæmis hvernig emoji
gerir samskipti persónulegri. Fólk
hefur oft velt því fyrir sér hvort tákn í
samskiptum geti valdið misskilningi
en er það raunin?
„Það sem ég fjalla um í lokaritgerð-
inni minni er hversu margt sameigin-
legt emoji-tákn eiga með líkamstján-
ingu í samskiptum fólks og hvernig
þau bæta stafræn samskipti og gera
þau persónulegri á allan hátt. Emoji
eru orðin órjúfanlegur hluti rafrænna
samskipta. Táknin geta hjálpað fólki
að tjá tilfinningar sínar og hafa óræða
merkingu og það sama á við um lík-
amstjáningu okkar,“ segir Rakel.
Bros getur þýtt
svo ótrúlega margt
Rakel Tómasdóttir hefur haft í nógu að snúast frá því hún hóf nám
í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands en hún starfar sem hönn-
uður hjá tímaritinu Glamour. Hún er um þessar mundir að vinna að
lokaverkefni sínu sem snýst um að hanna letur frá grunni.
Hér má sjá leturfjölskylduna Silk.
Rakel leggur áherslu á að sýna hvernig hægt sé að nota letrið á ýmsan hátt.
Rakel Tómasdóttir, hönnuður hjá Glamour á Íslandi, hannar letur í lokaverkefni sínu við Listaháskóla Íslands. FRéTTabLaðið/ViLHeLm
19.800 kr.
DÚNMJÚKT
TVENNUTILBOÐ
O&D dúnsæng – Stóri björn
· 50% dúnn og 50% smáfiður
Fullt verð: 19.900 kr.
+ Dúnkoddi – Stóri björn
Fullt verð: 5.900 kr.
Fullt verð samtals:
25.800 kr.
FERMINGAR
TVENNA
NATURE’S
COMFORT
heilsurúm með
classic botni og löppum
Nature’s Comfort:
• Svæðaskipt poka-
gormakerfi
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar pr fm2
• Steyptar kantstyrkingar
Stærð cm. M/ Classic Tilboðs-
botni verð
80x200 86.900 65.175
90x200 92.900 69.675
100x200 99.900 74.925
120x200 119.900 89.925
140x200 138.900 104.175
160x200 149.900 112.425
180x200 164.900 123.675
PÁSKATILBOÐ
25%
AFSLÁTTUR
Val um svart
eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á botni.
Aukahlutur á mynd:
Helsinki höfuðgafl.
Heilsu- og
hægindalag í yfirdýnu
Páskar 2016
Afgreiðslutími Rvk.
Mán. til fös. kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
Fyrir þínar
bestu stundir
Þú finnur nýja
Páskabæklinginn
okkar á
www.dorma.is
Guðrún Jóna
Stefánsdóttir
gudrunjona@frettabladid.is
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
1 6 . m a r s 2 0 1 6 m I Ð V I K U D a G U r28 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð
Lífið
1
6
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
C
7
-F
E
4
0
1
8
C
7
-F
D
0
4
1
8
C
7
-F
B
C
8
1
8
C
7
-F
A
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K