Fréttablaðið - 16.03.2016, Side 44

Fréttablaðið - 16.03.2016, Side 44
„Um þessar mundir er ég að vinna að útskriftarverkefninu mínu í Listahá- skóla Íslands, ég er að hanna letur- fjölskyldu sem heitir Silk. Leturfjöl- skylda er safn af mismunandi stílum af sömu leturtýpunni, til dæmis feitletrað og skáletrað. Upprunalega letrið sem ég hannaði er fótaletur en ég er einnig að þróa það yfir í stein- skrift. Þegar letrið er tilbúið mun það vera til í 24 útgáfum og í fram- haldinu ætti fólk að geta notað letrið eins og önnur letur, til dæmis í Word og öðrum forritum,“ segir Rakel en það er  óhætt að segja að þessi unga hæfileikakona eigi framtíðina fyrir sér í hönnun. Guðmundur Úlfarsson og Mads Freund voru þeir fyrstu sem stofnuðu íslenska letursmiðju sem ber nafnið Or type og leit dagsins ljós árið 2013. Frá og með þeim tíma hafa vinsældir leturgerðar á Íslandi aukist til muna og fleiri íslensk letur litið dagsins ljós. „Mér finnst leturgerð mjög skemmtileg og eitthvað sem ég er alveg til í að halda áfram með. Or type er fyrsta íslenska letursmiðjan og ég lít mikið upp til þeirra, ég gæti alveg hugsað mér að hanna fleiri letur í framtíðinni,“ segir Rakel. Rakel leggur mikla áherslu á að sýna hvernig hægt sé að nota letrið á ýmsan hátt, hún hefur til dæmis opnað Instagram-síðu (@silktype) þar sem fólk getur fylgst með hönn- unarferlinu og séð hvernig hægt er að nota letrið á mismunandi hátt „Ég hef alls engan áhuga á að ein- angra mig og verkin mín, mér finnst mjög gaman að sýna það sem ég er að gera og fá viðbrögð frá fólki í kringum mig. Instagram er ótrúlega góður vettvangur til að sýna letrið og vinnuna í kringum það. Það myndast líka einhvers konar samfélög inni á Instagram þar sem fólk er að skoða hjá öðrum og skiptast á komment- um.“ Rakel skrifaði lokaritgerðina sína um myndletur, eða emoji, þar sem hún skoðar til dæmis hvernig emoji gerir samskipti persónulegri. Fólk hefur oft velt því fyrir sér hvort tákn í samskiptum geti valdið misskilningi en er það raunin? „Það sem ég fjalla um í lokaritgerð- inni minni er hversu margt sameigin- legt emoji-tákn eiga með líkamstján- ingu í samskiptum fólks og hvernig þau bæta stafræn samskipti og gera þau persónulegri á allan hátt. Emoji eru orðin órjúfanlegur hluti rafrænna samskipta. Táknin geta hjálpað fólki að tjá tilfinningar sínar og hafa óræða merkingu og það sama á við um lík- amstjáningu okkar,“ segir Rakel. Bros getur þýtt svo ótrúlega margt Rakel Tómasdóttir hefur haft í nógu að snúast frá því hún hóf nám í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands en hún starfar sem hönn- uður hjá tímaritinu Glamour. Hún er um þessar mundir að vinna að lokaverkefni sínu sem snýst um að hanna letur frá grunni. Hér má sjá leturfjölskylduna Silk. Rakel leggur áherslu á að sýna hvernig hægt sé að nota letrið á ýmsan hátt. Rakel Tómasdóttir, hönnuður hjá Glamour á Íslandi, hannar letur í lokaverkefni sínu við Listaháskóla Íslands. FRéTTabLaðið/ViLHeLm 19.800 kr. DÚNMJÚKT TVENNUTILBOÐ O&D dúnsæng – Stóri björn · 50% dúnn og 50% smáfiður Fullt verð: 19.900 kr. + Dúnkoddi – Stóri björn Fullt verð: 5.900 kr. Fullt verð samtals: 25.800 kr. FERMINGAR TVENNA NATURE’S COMFORT heilsurúm með classic botni og löppum Nature’s Comfort: • Svæðaskipt poka- gormakerfi • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar pr fm2 • Steyptar kantstyrkingar Stærð cm. M/ Classic Tilboðs- botni verð 80x200 86.900 65.175 90x200 92.900 69.675 100x200 99.900 74.925 120x200 119.900 89.925 140x200 138.900 104.175 160x200 149.900 112.425 180x200 164.900 123.675 PÁSKATILBOÐ 25% AFSLÁTTUR Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni. Aukahlutur á mynd: Helsinki höfuðgafl. Heilsu- og hægindalag í yfirdýnu Páskar 2016 Afgreiðslutími Rvk. Mán. til fös. kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–16 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafjörður Fyrir þínar bestu stundir Þú finnur nýja Páskabæklinginn okkar á www.dorma.is Guðrún Jóna Stefánsdóttir gudrunjona@frettabladid.is Endalaust ENDALAUS GSM 1817 365.is 1 6 . m a r s 2 0 1 6 m I Ð V I K U D a G U r28 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð Lífið 1 6 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 C 7 -F E 4 0 1 8 C 7 -F D 0 4 1 8 C 7 -F B C 8 1 8 C 7 -F A 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.