Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2008, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008
Fréttir DV
Meiri áhersla
á menntamál
Meðal sex samstarfslanda
Þróunarstoftiunar Islands eru 4
Afríkuríki; Malaví, Mósambík,
Namibía og Úganda. Þar að auki
veita íslendingar Mið-Ameríku-
ríkinu Níkaragva og Suður-Asíu-
þjóðinni Srí Lanka aðstoð.
Á síðustu árum hefur meg-
ináherslan færst frá sjávarút-
vegi yfir í félagsleg verkefni, til
dæmis menntamál sem fá nærri
fjórðung þess fjármagns sem
stofnunin ver til aðstoðar. Nærri
fimmtungi er áfram varið til fiski-
mála. Allt í allt veita fslendingar
1,4 milljörðum króna til þróun-
araðstoðar sem er þriðjungur af
opinberu fé sem varið er til þró-
unarmála.
Lenti næstum
í sjónum
Bílvelta varð skammt frá
Skarfaskeri á Vestfjörðum
um hádegisbilið í gær. Einn
maður var í bílnum og slapp
hann ómeiddur. Að sögn
lögreglunnar á Vestfjörðum
endaði bíllinn á hvolfi og lék
sjórinn um hann án þess þó
að hann færi í kaf. Ökumað-
urinn komst af sjálfsdáðum út
úr bílnum, en vegfarandi sem
átti leið hjá tilkynnti Neyð-
arlínunni um slysið. Að sögn
lögreglunnar á Vestfjörðum
hefði hæglega getað farið
verr. Fjögur umferðaróhöpp
voru túkynnt til lögreglunnar
á Vestfjörðum í síðustu viku.
Öll voru þau minniháttar og
sluppu ökumenn án meiðsla.
Kona kýldi
strætóbílstjóra
28 ára kona var á föstudaginn
dæmd tii að greiða 30 þúsund
krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir
að gefa strætisvagnabílstjóra
kjaftshögg. Atvikið átti sér stað
þann 19. janúar í fyrra en konan
brást ókvæða við þegar stræt-
óbílstjórinn virtist keyra í veg
fyrir bíl hennar. Strætisvagninn
stoppaði við
verslunarmið-
stöðina Fjörð
og konan fór
inn í vagninn.
j‘ Þarjóshúnúr
skálumreiði
sinnar yfir bíl-
stjórann. Bílstjórinn
reyndi þá að koma konunni út úr
vagninum en hún brást við með
því að gefa bflstjóranum hnefa-
högg í andlitið. Bflstjórinn hlaut
eymsli við nef, mar á kinn og
kinnbeini.
Brenndist við
flugeldafikt
Fimmtán ára drengur
brenndist í andliti er hann bar
eld að púðri sem hann hafði
tekið úr flugeldum. Slysið átti
sér stað í Hafnarfirði um helg-
ina en hann kom púðrinu fyrir
í dós og bar eld að með þeim
afleiðingum að blossinn náði f
andlit hans.
Pilturinn hlaut fyrsta og
annars stigs bruna á andliti
en hann brenndist einnig á
hálsi og fódeggjum. Lögreglan
vill koma þeim skilaboðum á
framfæri að foreldrar fylgist
með því að börn þeirra rífi
ekki í sundur flugelda.
Kauphöliin Síðasta vika var svört í
Kauphöllinni. Stór fjámálafyrirtæki
hafa fallið í verði um fjórðung.
*£SS&
Stór íjárfestingafélög hafa falliö um fjórðung í veröi á fyrstu tveimur vikum ársins.
Rússíbanareiöinni er ekki lokið, aö mati Boila Héðinssonar hagfræðings, en likast til
muni nýtt jafnvægi nást á fyrri hluta ársins. Edda Rós Karlsdóttir hjá Landsbankan-
um segir að óþarfi sé aö örvænta.
SVEIFLURNAR
HALDA AFRAM
SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON )
blaðamaður skrifar: sigtryggur^dv.is
Hlutabréf í FL Group og Exista hafa
lækkað um fjórðung á fyrstu tveim-
ur vikum ársins. Fast á hæla þeim
koma Icelandic Group hf. og Kaup-
þing. Icelandic Group og FL Group
lækkuðu hvort um sig um fimm og
hálft prósent í verði í gær.
„Það lítur út fyrir að hlutabréfa-
markaðurinn hafi enn ekki náð
jafnvægi og við gætum séð eitthvað
af hreyfingum bæði upp og niður
á næstunni," segir Bolli Héðinsson
hagfræðingur. Hann segir að erfitt
sé að spá fyrir um hvenær jafnvægi
náist en telur að það verði þó ekki
fyrr en að tveimur til þremur mán-
uðum liðnum. „Það styttist í það að
þessari rússfbanareið linni," segir
hann.
Batinn verður hægur
Bolli telur ólíklegt að nýtt jafit-
vægi á fjármálamarkaði verði í
sömu hæðum og á sfðasta ári.
„Kosturinn í stöðunni er sá að
meðal fyrirtækjanna sem hafa ver-
ið að lækka eru mörg traust og vel
rekin fyrirtæki sem eiga eftir að ná
sér á strik, jafnvel þótt batinn verði
hægur," segir BoUi og bendir á
að í þessu tilliti sé sígandi lukka
sennilega best.
Edda Rós Karlsdóttir, for-
stöðumaður greiningar-
deildar Landsbankans, tek-
ur undir með BoUa og telur
fulla ástæðu til þess að hafa
trú á íslenskum fyrirtækj-
um á hlutabréfamarkaði.
„Staðan er hins vegar sú
að íslensku bankamir
gh'ma við óspennandi
fjármögnunarkjör sem
hafa töluverð áhrif á
þessa þróun," segir
hún. „Að einhverju
leyti er þetta 1
leiðrétting á markaðnum.
Fyrirtækin eru náttúrulega
verðmetin út frá arðsemi og
vaxtarmöguleikum."
Seðlabankinn
grípur inn í
Seðlabanki Islands ákvað
í gær að rýmka reglur um
veðhæf verðbréf í viðskipt-
um fjármálafyrirtækja við
bankann. I tillcynningu segir
að með þessu sé samkeppn-
isstaða íslenskra banka gerð
áþekk því sem gerist í nágranna-
löndunum. „Ýmsir seðlabankar
hafa rýmkað mögulega lausafjár-
fyrirgreiðslu sína undanfarnar vik-
ur og mánuði," segir í tilkynningu
frá bankanum. BoUi telur líklegt
að Seðlabankinn sé með þessu að
reyna að liðka til í þeirri fjármála-
kreppu sem nú dynur á. „Hann
lætur í það skína að bankar og fjár-
málafyrirtæki eigi góðan bakhjarl
sem standi með þeim," seg-
ir BoUi. Hann telur
þó að þessi að
gerðSeðla-
bank-
OV 11.JANÚAR
IDV á föstudag var greint (tarlega frá
hremmingum eigenda fjárfestinga-
félagsins Gnúps. Komið var í veg fyrir
gjaldþrotfélagins sem tapaði miklu fé á
hlutabréfum í Kaupþingi og FL Group.
ans sé aðeins fyrirbyggjandi og
muni ekki hafa bein áhrif á fjár-
málamarkaðinn í and-
ránni.
Peningar og sálfræði
„Hins vegar snýst þessi
markaður að miklu leyti
um sálfræðina. Þegar bjart-
sýni ríkir og allir eru í góðu
skapi tekur fólk frekar lán
og fer í framkvæmdir," held-
ur BoUi áfram. Hann telur
að jafnvel þótt nú sé erfið-
ur tími í fjármálaviðskiptum
sé í rauninni ekki ástæða til
svartsýni. Edda Rós segir
að jafnvel þótt hin sálarlega
hlið á fjármálaviðskiptum sé
mikilvæg verði peningar ekid búnir
til aðeins með því að brosa.
Markaðurinn er hins vegar við-
kvæmur í andránni og þolir ekki
mikil áföll. „Það er til að mynda alls
ekki æskilegt ef krónan tekur upp
á því að falla á meðan ástandið er
svona," segir Edda Rós.
- -—f r
^ * ’ '
L
\—r~ —
^ \ ■ 3
Aldraðir fengu ekki að segja álit sitt á nýrri reglugerð um málefni aldraðra:
Oldungar hundsaðir
„Mér finnst vanta mikið inn í þetta
en reglugerðin kom því miður aldrei
til umsagnar hjá okkur," segir Margrét
Margeirsdóttir, formaður Félags eldri
borgara, um nýja reglugerð heflbrigð-
isráðuneytisins sem hefur í för með
sér að vistunarmat vegna hjúkrunar-
rýma færist frá sveitarfélögum til sér-
stakra vistunarmatsnefnda. Reglu-
gerðin var heldur ekki borin undir
fulltrúa Landssambands eldri borg-
ara á meðan hún var í vinnslu. „Mér
hefði þótt eðlilegt að hún hefði verið
send til umsagnar hjá þessum félög-
um sem vinna að hagsmunagæslu
aldraðra," segir Margrét.
Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneyt-
isstjóri heilbrigðisráðuneytisins, segir
að þar sem aðeins sé um formbreyt-
ingu á reglugerðinni að ræða en ekki
breytingar á innihaldi hennar hafi
ekki verið talin þörf á umsögn hags-
munafélaganna. Almenna reglan sé
hins vegar að óska eftir áliti.
Samkvæmt reglugerðinni flyst
gerð vistunarmats vegna hjúkrunar-
rýma frá þjónustuhópum aldraðra,
sem störfuðu á vegum sveitarfélaga,
til sérstakra vistunarmatsnefnda sem
heilbrigðisráðherra skipar og gegna
því hlutverki eingöngu að meta þörf
fólks fyrir vistun í hjúkrunarrými,
óháð aldri. Þjónustuhópamir eru um
40 talsins víðs vegar um landið. Vist-
unarmatsnefndimar verða hins veg-
ar mun færri, eða sjö talsins, og falla
starfssvæði þeirra að heilbrigðisum-
dæmum landsins. „Þetta em gríð-
arlegar breytingar," segir Margrét og
bendir á að matsferlinu fylgi gríðar-
legt skriffæði. „Ég veit ekki hversu
þjált þetta verður þegar umdæmin
em orðin þetta stór" segir hún.
Berglind segir að þessi breyting sé
í samræmi við nýlega lagabreytingu í
málefnum aldraðra. Henni sé ætlað
að auka samhæfingu og hámarka fag-
mennsku.
Sem fyrr munu stjómir stofnana
taka ákvörðun um hverjir vistaðir
em í hjúkrunarrýmum á viðkomandi
stofnun, en ákvörðunarvald þeirra
er þrengt frá því sem áður var þegar
rfldð greiðir fyrir rýmin. „Við erum að
reyna að draga fram þá sem em í al-
mestri neyð," segir Berglind. erla@dv.is
Breytt vistunarmat Frá áramótum sjá
sjö vistunarmatsnefndir um vistunarmat
í stað fjörutíu þjónustuhópa áður.