Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2008, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2008, Blaðsíða 4
Fréttir DV 4 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 igjr ^tppr"^ DV FRÉTTIR £ I 10- Keyrði á og hljópíburtu Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu handtók í fyrrinótt karl- mann um tvítugt sem hafði misst stjórn á bifreið sinni við Nl- bensínstöðina í Artúnsbrekku. Tilkynnt var um óhappið rétt fyr- ir klukkan 3.30 og þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn á hlaupum frá bílnum. Lögreglu- menn eltu manninn uppi og handtóku þar sem grunur leikur á að hann hafi verið undir áhrif- um vímuefna. Biffeiðin skemmd- ist töluvert mikið en maðurinn slapp án meiðsla. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu. Þá hafði lögreglan hendur í hári annars manns en grunur leikur á að hann hafi ekið undir áhrifum vímuefna. Einn hraðakstur á klukkustund 89 ökumenn mega eiga von á að fá sektarmiða eftir að brot þeirra voru mynduð í Hval- fjarðargöngunum í síðustu viku. Vöktuð voru 5.700 öku- tæki ffá þriðjudegi til föstu- dags eða á tæplega 88 klukku- stundum. Því ók að meðaltaii tæplega einn bíll of hratt á hverri klukkustund. Meðal- hraði hinna brotlegu var tæp- lega 85 kílómetrar á klukku- stund en hámarkshraði er 70. Sá sem hraðast ók mældist á hundrað kílómetra hraða en tíu ökumenn óku á yflr 90. Sá sem hraðast ók má eiga von á því að þurfa borga 40 þúsund krónur í sekt. Heilbrigðisnám á Bifröst Kennsla í nýju meistaranámi í stjórnun heilbrigðisþjónustu hefst við Háskólann á Bifföst á föstudaginn. Námið er ætlað þeim sem vilja öðlast þekkingu á rekstri heilbrigðisþjónustu og fjallar bæði um opinberar stofn- anir og einkarekna þjónustu. Kennarar verða bæði inn- lendir og erlendir sérfræðing- ar í heilbrigðis- og rekstrarmál- um. Til þess að tryggja að námið standist alþjóðlegar kröfur og samanburð er námið sett upp í samstarfi við erlenda háskóla. Háhraði í dreifbýli Síminn hefur fengið til- raunaleyfi fyrir langdrægt 3G-farsímakerfi og opnast því möguleikar á háhraða- sambandi í dreifðari byggð- um. Helstu kostir þessa kerfis umfram hefðbundin langdræg GSM-kerfi eru þeir að drægni þess er allt að 50 prósent meiri og mögulegur gagnahraði í þessu nýja 3G-kerfi er allt að þúsundfaldur á við það sem býðst í langdrægum GSM- kerfúm. Síminn vinnur þessa dagana að uppsetningu á bún- aðinum á Suðurlandi og áætlar að hefja tilraunir í þessari viku. Fyrirtækið Tveir heimar sem hefur séð um matinn á Litla-Hrauni hefur sagt upp samningi sínum við fangelsið. Ástæðan er sú að fangar eru farnir að sjá um elda- mennskuna. Ingi Þór Jónsson segir að það hafi ekki verið auðvelt að segja samningn- um upp þar sem samstarfið hafi verið gott. Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður Litla-Hrauns, segir að ekki hafi verið ákveðið hvort samið verði við annað fyrirtæki. HÆTTA AÐ ELDA Hugmyndir eru uppi um að fækka göngum í fangelsinu enn frekar. hafi verið tekin ákvörðun um hvað verður gert þegar samningur fang- elsisins við Tvo heima rennur út eða hvort farið verði í útboð á veit- ingarekstrinum. Virkja einstaklingana íris Eik Ólafsdóttir, félagsráð- gjafi í fangelsinu við Lkla-Hraun, segir að eitt af markmiðunum með að láta fangana sjá um elda- mennsku sé að virkja einstakling- ana. „Þetta á að koma föngunum vel þegar út er komið. Á þeim gangi sem nú þegar er farinn af stað sjá fangarnir alveg um eldamennsk- una sjálfir, þeir sjá um innkaup og sjá um eldamennskuna. Þegar næsti gangur fer af stað um mán- aðamótin munu fangarnir fá þjálf- un í matreiðslu, að halda bókhald og hafa skipulag í innkaupum." fris segist ekki geta sagt til um hvaða matur sé vinsælastur meðal fanga á Litla-Hrauni. „Þeir sjá alveg um þetta sjálfir," segir Iris. EINAR ÞÓR SIGURÐSSON bladamadur skrlfar: „Við höfum sagt upp samningi okk- ar við Litla-Hraun," segir Ingi Þór Jónsson, einn eigenda fýrirtækis- ins Tveir heimar sem undanfarin sjö ár hefur þjónustað mötuneyt- ið að Litla-Hrauni. f haust tóku fangelsisyfirvöld á Litla-Hrauni þá ákvörðun að láta fangana á einum ganga fangelsisins sjá um elda- mennsku fýrir sig sjálfa. Þetta fyr- irkomulag hefur gengið það vel að fyrirhugað er að láta fanga á fleiri göngum fangelsisins sjá um elda- mennsku. Þetta þýðir að forsend- ur samningsins sem Tveir heim- ar gerðu við Litla-Hraun fyrir sjö árum eru brostnar. Uppsögnin tek- urgildi 1. apríl næstkomandi. Brostnar forsendur „Þetta samstarf okkar hefur gengið mjög vel og það var því ekki auðvelt að segja þessum samningi upp," segir Ingi Þór. Hann segir að ekki sé út- séð með það hvort fyrirtækið sækist eftir verkinu aftur. Það geti þó vel verið leiti fang- elsið eftir áframhald- andi samstarfi við Tvo heima. „Þessi samn- ingur sem gerður var fýrir sjö árum hljóð- aði upp á sjö ganga og alla fanga fangelsisins í mat. Núna er búið að skerða um einn gang og ef það á að fara að skerða um fleiri ganga eru forsendur samningsins brostnar," segir Ingi Þór og bæt- ir við: „Þetta eru hugmyndir sem varpað hefur verið fram. Við vitum ekki hvaða fyrirkomulag verður á þessu eða hvort þeir hyggist bjóða þetta út yfir höfuð. Þetta er í skoð- un hjá okkur þessa dagana." Vegna þeirrar skerðingar sem varð í haust þurfti að segja tveimur starfsmönnum fyrirtækisins upp. Haldi fyrirtækið áfram starfsemi sinni sé ljóst að nauðsynlegt sé að segja fleiri starfsmönnum upp. Núna starfa fjórir starfsmenn á veg um fyrirtækisins í fangelsinu en tveimur var sagt upp í haust. Fleiri gangar Margrét Frímannsdóttir, nýr forstöðumaður fangelsisins að Lida-Hrauni, segir að reynsla fang- elsisins af að láta fangana sjá um eldamennsku sé mjög góð. Þess vegna hafi verið ákveðið að bæta við öðrum gangi og því munu fangar á tveimur göngum af sjö sjá um eldamennskuna. í kjölfarið verði einnig farið að undirbúa fleiri ganga. Margrét segist ekki geta sagt til um hvað verði gert þegar samning- ur fangelsisins og Tveggja heima renn- urút. ítölu- vertlangan tíma áður en Tveir heimar komu með veitinga- rekstur í fangelsið hafi mat- urinn ver- ið eldaður í eldhúsi Lida- Hrauns. Mar- grét segir að ekki I II II Litla-Hraun Tveir lieimai hefur seð um matseld á Litla-Hrauni undanfarin sjö ár Fyrirtækið hefur nú sagt upp samningi sínum við fangelsið. ■ ■ ■ ■ ■! ar ALFREÐ GÍSLASON, LANDSLIÐSÞJÁLFARIÍSLANDS í HANDBOLTA DEBET OG KREDIT + „Hans helstu kostireru tvímcelalaust dugn- aður og ósérhlífni. Það er tveir afþeim þáttum sem hafa komið honum þang- að sem hann er í dag. Hann hefur einnigþá eiginleika aðgeta smitað út frá sér og rifið menn með sér. Alfreð er líka mikill húmoristi og dettur ýmislegt í hugsem léttir mönnum lífið. Hann er hugmyndaríkur og hefur í raun ótal kosti," segir Erlingur Kristj- ánsson, fyrrverandi samherji Alfreðs hjá KA. ■ „Alfreð er virkilega duglegur og ákveðinn og mjögfœr ísínufagi. Hann á auðvelt með að rifa menn upp efilla gengur. Hann er einnig mikill húmoristi og eins og hann getur verið þungur og alvarlegur, þá getur hann veriðjafn léttur og skemmtilegur," segir Júlíus Jónasson, landsliðs- þjálfari kvenna í handbolta ogfyrrverandi samherji Al- freðs í landsliðinu. ■ „Hann er mjögjylginn sér og hann nærþeim markmið- um sem hann setur sér," segir Sigurður Valur Sveinsson, stórskytta ogfyrrverandifélagi Alfreðs úr landsliðinu. „Hann er pcttþéttur náungi og mjög traustur. Hann er algjör nagli en það er stutt í húmorinn. Það hefur meðal annars gert hann að góðum þjálfara," segir Sigurður. „Alfreð er mikill skapmaður og stundum missa menn úl úr sér eittlwað sem þeirsjá eft- ir. Hfþað er eittlwað sem liann þolir illa, þá erþað efmenn eru ekki að standa sig. Þá ket- ur hann menn heyra það og blœs út. Þegar hann var liérá latuli lók hann að sér mikið af verkefnum ogslundttm ofmikið. l-.n hann er duglegur og vill gera hlutina Itundrað prósent," segir Erlingur. „Hann á það til að vera skapstór ogget- ttr virkilega látið menn heyra það. Ilann er nokkuð þrjóskur sem getur verið neikvœtt og jákvœlt. Hann á það til að vera Jrekur sem gelur stundum unniðá móti honum. Kostirnir eru samt tvimælalausl Jleiri en gallarnir," segir Júlíus. „Ilann lufurekki marga galla. Ilann lek- ur lífinu stundum ofalvarlega sem er einn af Játum göllum hans. Þeirsem Itafa þjálfun að at- vinntt verða stundum að vera skapstórir. Ilann er vissulega slundum þrjóskur en þrált fyrir það þekkir Itann stit mörk." segir Sigurður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.