Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2008, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2008, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 Sport DV Antonio Sibierski leikmaður Wigan hefur neitað tilboði frá Lille. Hann vill ekki fara frá Wiganafturtil heimalandsins. Sibierski kom til Englands frá Lens árið 2003 og lék með Newcastle og Manchester City áður en hann fór tilWigan. Sibierski hóf ferilinn með Lille árið 1992 en tilboðið sem Lille kom með nú var ekki nógu spennandi.„Ég sagði einfaldlega nei um leiö og þeir höfðu samband. Fjölskyldu minni líðurvel á Englandi og ég er mjög ánægður með hlutina hjá Wigan." Sibierski hefur skorað fjögur mörk í deildinni, meðal annars sigurmarkið gegn Derby um síðustu helgi. KOMINN TÍMIA AÐ SKORA A NÝ Dirk Kuyt segir að aðrir leikmenn verði að fara að skora til að taka byrðina af ■ Gerrard og Torres. Liverpool gerðijafntefli við Middlesbrough um helgina og skoraðiTorres jöfnunarmarkið, sitt 17. marká tímabilinu. Steven Gerrard hefurskorað 12 mörk en fyrir utan þá tvo félaga stafar mörkum annarra liða ekki mikil ógn af Liverpool.„Við erum með marga sterka leikmenn og þeir verða að gera meira. Fernando og Stevie eru báðir frábærir fótboltamenn og hafa verið að standa sig mjög vel en aðrir þurfa að hjálpa til. Þegar maður er að spila fyrir Liverpool veit maður að pressan er mikil en þeim hefur tekist að skora þrátt fyrir pressuna og nú þarf restin að fýlgja." Kuyt hefur skorað sjö mörk en ekki náð að pota boltanum yfir marklínuna frá 24. nóvember. Hann, PeterCrouch og Andryi Voronin skoruðu aðeins eitt mark í desember en sjálfstraustið hefur ekkert yfirgefið kappann.„Ég ströggla núna en sjálfstraustið er enn mikið og ég veit að bráðum fara hlutirnir að snúast mér I hag." TERRY A UNDAN AÆTLUN Fyrirliði Chelsea, John Terry, er á batavegi eftir að hafa brotið bein f fæti. „Ég er kominn af hækjunum en ég erenn I styrktarumbúð- um til að styðja við ökklann. Beinið ergróið og vonandi verður hægt að taka styrktarum- búðirnaraf bráðum. Ég er mikið I sundlauginni að gera æfingar sem og að ganga. Vonandi verð ég kominn aftur á æfingar innan þriggja vikna. Ég er búinn að vera í gifsi núna f þrjár vikur og fóturinn hefurekki hreyfst neitt sfðan þá. Það verður gott og gaman að fara að sprikla á ný." Ekki er langt síðan breskir fjölmiölar sögðu Terry vera á eftir áætlun sem hann segir bull og vitleysu.„Ég held ég sé á undan áætlun ef eitthvað er. Það er pirrandi að lesa um svona hluti og maöur skilurekki alveg hvað er f gangi hjá þeim sem skrifaði þetta." VERÐUM AÐ HAFA TRÚAOKKUR Joleon Lescott varnarmaðurinn sterki hjá Everton segir að liðið verði að hafa ■ trú á því að geta lent í fjórða sæti. „í upphafi tfmabilsins vorum við ekki alltof bjartsýnir en núna erum við enn með eftir jólogþaðer allt hægt." Ef Everton myndi skáka grönnum sfnum í Liverpool yrði það mikið afrek.„Við skulum ekki gleyma okkur alveg en fótboltinn er óútreiknar- legur. Við þurfum að æfa vel á öllum æfingum og vinna sem flesta leiki. Ef við gætum tekið fram úr Liverpool yrði það massíft afrek en eins og er þá erum við að einbeita okkur að næsta leik en hver veit, með réttum úrslitum gæti okkur tekist að ná fjórða sætinu." íslenska landsliðið lagði það tékkneska annan leikinn í röð í gærkvöldi. Fimm marka sigur, 33-28, var það í þetta skiptið og spilamennska liðsins mun betri en í fyrri leiknum. Hannes Jón Jónsson fór á kostum í seinni hálfleik og skoraði sjö mörk, þar af nokkur mikilvæg þegar ísland lék manni færri. Allt reynt VarnarmaðurTékka reynir að stöðva Alexander Petterson með öllum mögulegum ráðum. TÓMAS ÞOR ÞÓRÐARSON bladamadur skrifar: tomas@dv.is ísland lagði Tékkland öðru sinni, 33- 28, þegar þjóðirnar mættust í Laug- ardalshöll í gærkvöldi og samanlagt 65-58. f íslenska liðið vantaði þá Rol- and Eradze og Arnór Adason sem eru meiddir og verða ekki með á Evrópu- mótinu í Noregi. Þá var Logi Geirsson borgaralega klæddur í gærkvöldi en hann tognaði á læri og var ekki með í leiknum. Það er óhætt að segja að leikur ís- lenska liðsins í fyrri hálfleik var ekki líkur þeim í gær og er það vel. Eins og vaninn virðist vera í Laugardalshöll hikstaði fsland á upphafsmínútunum og lentí 2-4 undir. Þá komust strák- amir í gang, settu fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 6-4. Þá kom aftur bakslag í leik fslands þar sem botninn datt úr sóknarleikn- um sem hafði verið mjög góður mín- úturnar á undan. Ekki nægilega stöð- ugur leikur og Tékkar jöfnuðu í 7-7. Jaiiesky Garcia fór mikinn í fyrri háif- leik og setti fjögur mörk á glæsileg- an hátt og Birkir fvar var í fínu formi í markinu eftir Noregsför með B-lands- liðinu. Meðal annars hélt Birkir mark- inu hreinu í tæpar tíu mínútur og lagði grunninn að þriggja marka forystu í hálfleik, 15-12. Sýning Hannesar Jóns Eftir að hvort lið skoraði sitt markið kom góður kafli hjá fslandi sem lagði grunninn að sigrinum. Guðjón Valur og Ásgeir Örn voru þá í miðjublokk- inni hjá íslandi og vömin mjög góð á þeim tíma. Góðri vörn fylgja hraða- upphlaup og eftir nokkur slfk var fs- land komið með sex marka forystu, 19-13. Tékkneska liðið komst aldrei nær íslandi en þrjú mörk eftir þetta en fékk besta tækifæri sitt á að jafna strax þá. fs- land var þá einum manni færri í langan tíma en upp reis Hannes Jón Jónsson sem bjargaði fslandi úr klípunni. Hann skoraði tvö mörk á þessum kafla, bæði með hinni víðfrægu yfirhandarfmtu og annað markið þegar fsland var tveimur mönnum færri. Hannes bætti á glæsilega innkomu sína út síðari hálfleikinn og fór gj örsam- lega á kostum. Hann skoraði sjö mörk, sex af þeim með snaggaralegum gegn- umbrotum sem Tékkamir réðu ekkert við og eitt mjög faliegt skot að utan. Síðasta kafla leiksins spilaði Alfreð Gíslason þeim Vigni Svavarssyni og Ás- geiri Emi í miðjublokkinni og það tókst einnig mjög vel. Tékkamir áttu fá svör við fljótri og hreyfanlegri vörn fslands sem gerði Hreiðari Levy daginn auð- veldari í markinu. Hreiðar var þó ekki sannfærandi annan leikinn í röð og var það eini dökki bletturinn á leik fslands. Það vantaði þó einnig upp á sóknarleik Vignis þótt hann hafi staðið sig mjög vel í vöminni. Lokatölur 33-28 og nú er að bíða og sjá hvaða veganesti þessir tveir sigrar gefa íslensku strákunum þegar allt fer á annan endann hér heima á fimmtu- daginn við upphaf Evrópumótsins. Var þreyttur eftir langt og strangt ferðalag Birkir ívar Guðmundsson mark- vörður íslands var að vonum þreytt- ur eftir langt og strangt ferðalag. Hann fór með B-landsliði fslands til Noregs á Posten Cup og var ekki kominn í Laug- ardalshöll fyrr en rétt rúmum klukku- tíma fyrir leik. „Ég er frekar þreyttur. Við lenntum í seinkun í Osló og síðan þurftum að svífa aðeins yfir því það var hálka á vellinum. síðan var allt fast á Reykja- nesbrautinni þannig við mættum hingað rúmlega hálf sjö. Þannig ég var bara alveg búinn i hálfleik, þá slökkn- aði bara á öllu." Birkir viðurkenndi að þetta hafi ekla verið besti undir- búningurinn sem hann hefði tekið fyrir leik. „Hann hefur einhvern tím- an verið skárri fyrir leild," sagði hann og glotti. „En þetta gekk allt í lagi. Við vomm að spila fi'nan bolta. Nú þarf bara að halda áfram að spila þessa agresívu vöm, við getum ekki staðið bara og beðið eftir þeim eins og við viljum stundum gera. Við höfum ein- faldlega ekki hæð og kraft í það. Ef við gemm það og tökum smá frumkvæði þá hef ég engar áhyggjur af mark- vörslu eða úrslitum í keppninni." Búinn að gera sömu hreyfingu síðanég var lOára Hannes Jón Jónsson skoraði sjö mörk í gær og átti flottan og fi'nan leik. Tékkarnir vissu vart hvað á sig stóð veðrið þegar Hannes plataði þá hvað eftir annað. Sumir Tékkana vor enn að snúast löngu eftir að leik var hætt. Hannes var eins og Birkir fvar í Noregi og var kominn rúmum klukku- tíma fyrir leik. „Þetta er kannski ekld besti undirbúningur fyrir leik en við emm búnir að vera í bolta alla helg- ina og þetta er bara þannig að menn em graðir og sjúkir í að spila og vera í kringum þetta þannig maður gleymir allri ferðaþreytu og þannig. Þetta henntaði mér vel, Tékkarnir em stórir og miklir og með Óla sem dregur alltaf mikið til sín, Guðjón Val sem getur farið inn úr horninu nánast hvar sem er og með þessa hrægamma á línunni þá henntaði mér vel að hafa mikið pláss og geta farið einn á einn. Vonandi getur maður nýtt þetta áfram. Ég er búinn að gera þessa hreyf- ingu síðan ég var 10 ára og alltaf var hlegið að mér og sagt að þetta myndi aldrei ganga til lengdar. En ef þetta virkar áffam þá held ég áfram að gera þessa hreyfingu." Förum bjartsýnir út Snorri Steinn Guðjónsson sagð- ist vera sáttur við leikinn í gær enda hafi hann verið mun betri en leikur- inn á sunnudag. „Fyrri hálflleikurinn f leiknum á sunnudaginn var slakur og kannski vomm við líka lengi í gang í þessum leik. En síðan spiluðum við fínan leik og auðvitað er eitthvað sem við getum bætt. Það er ekki spurning. Eg vona bara að við séum á réttri leið, á leiðinni upp og á fimmtudag- inn verðum við allir sem einn tilbúnir í slaginn. En fullt af jákvæðum punkt- um þó það sé alltaf eitthvað sem megi laga. Það er þannig bara alltaf í íþrótt- um. Núna er bara málið að fara yfir leikinn og laga þessi litíu atriði sem Aifreð finnur á vídeói." Snorri Steinn spilaði lengi vel með Hannesi í Val. Hann var ekki hrifinn af vamarleik Tékkana á Hannes enda fær sá síð- amefndi alltaf á sig mðning þegar Snorri stendur á móti sínum gamla félaga. „Þetta er bara vopn sem við get- um notað. Vonum bara að Svíam- ir fái ekki leikinn í hendurnar, en við erum búnir að missa Arnór út, hann var að spila vel en Hannes sýndi það í þessum leik að hann geti leyst skyttu- stöðuna og homið þannig við fömm bjartsýnir út.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.