Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2008, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2Q08
Fréttir DV
tiy M r
DV
IFRÉTTIR
Afstýrðu miklu
tjóni í veðurham
Björgunarsveitín Þorbjöm
afstýrði tugmilljóna tjóni í gær
þegar meðlimir hennar börðust
í gegnum ófærð með súrefnis-
birgðir fyrir fiskeldið íslands-
bleikju utan við Grindavík.
Fréttavefur Víkurfrétta greindi
ffá þessu í gær. f hádeginu vom
súrefnisbirgðirnar nálægt því að
klárast þegar björgunarsveitar-
menn komu með súrefnisbirgð-
ir. Súrefnið áttí að berast fyrir
nokkmm dögum en afhending
þess hafði tafist. Hefði súrefnið
klárast hefði íslandsbleikja orðið
fyrir tugmilljóna tjóni. Fyrr um
daginn var skólahald fellt niður í
gmnnskóla Grindavíkur.
Rúðubrjótar
áSuðurlandi
Lögreglan á Selfossi hef-
ur í tvígang á síðastliðinni
viku fengið tilkynningar um
skemmdarverk á bílum. f
bæði skiptín var um að ræða
rúðubrot en á mánudaginn í
síðustu viku var brotín aftur-
rúða í rauðri Opel Vectra-bif-
reið. Eigandinn hafði skroppið
inn í hús í nokkrar mínútur en
þegar hann kom til baka var
búið að brjóta rúðuna með
gangstéttarhellu. Á laugardag-
inn var önnur rúða brotin en
í þetta skiptíð var um að ræða
gráa Renault Megane-bifr eið í
Hveragerði. Rúðan var brotin
með grjótí en engu var stolið
úr henni. Lögreglan biður þá
sem vita hver var að verki að
hafa samband í síma 480 1010.
Svifryksmælir
til Akureyrar
Til stendur að kaupa nýjan
svifryksmæli á Akureyri. For-
stöðumaður
umhverfismála
og deildarstjóri
framkvæmda-
deildar ætla að
skera upp herör
gegn svifryk-
inu og hyggjast
koma mælinum
í gagnið á fyrri
hluta þessa árs. Framkvæmda-
ráð Akureyrar fagnar því að fjár-
veiting hafi fengist hjá ríkinu og
vonast tíl þess að mælirinn muni
nýtast tíl þess að betur megi
skipuieggja markvissar aðgerðir
gegn mengun af þessu tagi.
Stórstjarnan og söngkonan Björk Guðmundsdóttir missti hiö viöfræga jafnaðargeð
sitt þegar hún réðst á nýsjálenska ljósmyndarann Glenn Jeffrey og reif utan af
honum bolinn. Þegar DV hafði samband við Glenn á Nýja-Sjálandi virtist hann
þreyttur eftir átökin við söngkonuna. Glenn tilkynnti lögreglunni um málið. Björk
hefur áður ráðist á blaðakonu og baðst þá afsökunar opinberlega.
Björk Guðmundsdóttir Reif
bol Glenns Jeffrey eftir að hann
tók myndir af henni á flugvelli í
Auckland á Nýja-Sjálandi.
gætí ekki tjáð sig við aðra fjölmiðla
um málið en staðfestí að hann hefði
tílkynnt málið tíl lögreglunnar í
Auckland á Nýja-Sjálandi þar sem
árásin áttí sér stað. Bolur Glenns
rifnaði við átökin og hlaut hann
skrámur eftír árás söngkonunnar
heimsfrægu sem er á tveggja ára
tónleikaferðlagi.
Tilefnislaus árás
Það var á sunnudagsmorgn-
inum, klukkan hálf átta að nýsjá-
lenskum tíma, sem Björkkom tíl ai-
þjóðaflugvallarins í Auckland. Hún
hugðist syngja á tónleikahátíðinni
Rifinn bolur Glenn Jeffrey, Ijósmyndara dagblaðsins Heralds á Nýja-Sjálandi, var
verulega brugðið eftir árás Bjarkar sem hann segir með öllu tilefnislausa.
Big Day Out on Friday. Glenn Jeffrey
ætlaði að taka myndir af henni fyr-
ir New Zealand Herald en aðstoð-
armaður hennar bað hann um að
gera það ekki.
Eftir að hann tók þrjár til fjór-
ar myndir af henni snerist hann á
hæli og hugðist fara í burtu. Þá seg-
ir hann að Björk hafi komið aftan
að honum, rifið niður bolinn sem
hann var í og féll hún við það tíl
jarðar. Sjálfur segist Glenn, sam-
kvæmt Herald, hafa heyrt aðstoð-
armann hennar kalla: „Ekki gera
þetta, B, ekki gera þetta."
Allt kom fyrir ekkert því bolur-
inn var rifinn og Björk lá í gólfinu.
Óviðunandi árás
Glenn segir í viðtali við Herald að
hann hafi ekki snert Björk eftir árás-
ina né sagt orð við hana á meðan á
atvikinu stóð. Einnig varaði Björk
ekki við atlögunni og sagði ekki orð
á meðan hún á að hafa ráðist á ljós-
myndarann sem hefur starfað sem
Kemur ekki til vinnu
Glenn verður frá vinnu í dag
vegna árásarinnar en ritstjórn
blaðsins var brugðið eftir atvikið
þegar hringt var inn á blaðið í gær-
morgun.
Árásin á Glenn er í annað skipt-
ið sem Björk skeytir skapi sínu á
blaðamönnum og ljósmyndurum
því árið 1996 réðst hún á fféttakonu
á flugvelli í Taílandi. Þá virðist að-
dragandinn hafa verið svipaður því
Björk réðst án fyrirvara á blaðakon-
una og hárreytti hana auk þess að
slá hana. Þá var hún nýkominn úr
löngu flugi. Árásin náðist á mynd-
band og vaktí heimsathygli á sínum
tíma. Fréttakonunni var verulega
brugðið en kærði ekki árásina á sín-
um tíma. Björk baðst í kjölfarið af-
sökunar á athæfinu opinberlega.
Ekki náðist í aðstoðamann Bjark-
ar í gær og enga afsökunarbeiðni
var að finna á opinberri heimasíðu
hennar.
V0.
Línudansndmskeið
8 kvölda línudansnámskeið
hefst miðvikudagskvöldið 16. janúar nk.
kl. 20.00 Byrjendur
kl. 20.45 Lengra komnir
s
(0
557 7703)
DANSHOLLIN
Drafnarfelli 2 111 Reykjavík
kod@komidogdansid.is
www.komidogdansid.is
Næstum þrjátíu fangar á Litla-Hrauni eru í framhaldsskólanámi:
Læra lífsleikni oq rafsuðu
29 fangar af Litla-Hrauni eru
skráðir til náms í Fjölbrautaskóla
Suðurlands á vorönn. Þessu til við-
bótar stunda tveir fangar fjarnám við
aðra skóla og tveir hafa sótt um leyfi
til að stunda fjarnám við Fjöltækni-
skóla íslands. Nokkrar skorður eru
þó settar við fjarnámi þar sem sá tími
sem fangar fá til að nota netið er tak-
markaður auk þess sem notkunin er
undir ströngu eftirliti kennslustjóra á
Litla-Hrauni.
Flestír nemendur leggja smnd á
nám í íslensku og íþróttum. Alls eru
20 menn skráðir í hvora námsgrein-
ina um sig. Fæstír eru hins vegar
skráðir í nám náttúrufræði, aðeins
tveir. Litlu fleiri leggja stund á nám
í hlífðargassuðu og rafsuðu, fimm
fangar ætla sér að læra slíka suðu.
Fangarnir leggja stund á nám í
Litla-Hraun Flestir læra íslensku og eru í íþróttum. Fæstir eru í náttúrufræði.
fleiri greinum. Fimmtán leggja stund
á fífsleikni og jafn margir á nám í
ensku. Litlu færri, eða þrettán, læra
dönsku og þrettán spænsku. Einn-
ig er boðið upp á nám í grunnteikn-
ingu, upplýsingatækni og fram-
kvæmdum og vinnuvernd. Litlu
máttí muna að rúmlega þrjátíu fang-
ar á Litla-Hrauni stunduðu nám á
vegum Fjölbrautaskóla Suðurlands á
vorönn. 31 hafði skráð sig til náms en
tveir hættu við.