Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2008, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2008, Side 32
Þrjú vinnuslys samtímis Þijú vinnuslys urðu á sama hálf- tímanum í gærkvöldi, frá klukkan tíu mínútur yfir sex tfi tuttugu mínútur í sjö, Maður slasaðist alvarlega þegar hann féll á milli hæða í nýbyggingu við 'tk Klettagarða. Hann liggur á sjúkrahúsi og er ekki vitað nánar um líðan hans. Þá féll maður úr hárri tröppu við Fáfn- isnes á Seltjamamesi. Við Sóltún féll svo maður af vinnupalli. Þeir tveir síðarnefndu vom ekki alvarlega slasaðir en fóm báðir á slysadefid. Varðstjóri hjá lögreglu segir þetta óvenjulegt því ekkert í veðurlagi ;V eða aðstæðum hafi kallað á slíkt. Áfram ólykt á Akranesi Fiskvinnslan Laugafiskur fékk endurnýjað starfsleyfi hjá bæjar- stjórn Álaaness en í fundargerð bæjarins segjastyfirvöld skilja áhyggjur nágranna og bæjarbúa vegna ólyktar sem berst frá fýr- irtækinu. DV fjallaði um mál- ið á síðasta ári en þá gagnrýndu nágrannar harðlega fýluna sem ^ frá fyrirtækinu kemur. Þó er bent á að fyrirtækið skapi þijátíu störf og er litið tfi þess þegar því er gefið áframhaldandi rekstrarleyfi. Einnig er því gert að hlíta ströng- ustu skilyrðum varðandi hreins- un á úrgangi sem frá vinnslunni kemur. Bæjarráð samþykkti málið með sjö atlcvæðum og sat einn bæjarfulltrúi hjá. Forræðismál Veru tekið fyrir Forræðisdeila Veru Pálsdóttur ljósmyndara við ffanskan barns- föður hennar verður tekin fyrir hjá dómara í París 11. febrúar næst- komandi. „Þá líða tvær til þrjár vikur áður en niðurstaða fæst í málið, að því gefnu að ekki verði meiri seink- anir," segir Vera. * Dóttir Vem, Sóley, heimsótti föð- ur sinn í Frakklandi í nóvember en hefur ekki fengið að koma aftur til íslands. Vera kveðst bjartsýn á að fá dóttur sína til baka með aðstoð lög- fræðinga sem íslenska sendiráðið í París kom henni í samband við. Er borgin farin að rukka fólk um lausnargjald? FRÉTTASKOT 51 2 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir fréttaskot sem verðuraðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 ■ DAGBLAÐIÐ ViSIR STOFNAÐ 1910 Tveir af mönnunum fimm sem réðust á lögreglu störfuðu hjá JB byggingarfélagi: RAK ÞA SEM REÐUST w • • A LOGREGLUMENNINA SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON bladamadur skrifar: sigtryggumdv.is „Við munum aldrei líða það að starfsmenn á okkar vegum leggi stund á ofbeldi af nokkru tagi," segir Engil- bert Runólfsson, forstjóri JB bygging- arfélags. Tveir mannanna fimm sem gengu í skrokk á óeinkennisklædd- um lögregluþjónum á Laugaveginum, aðfaranótt föstudagsins, störfuðu hjá Engilbert. „Það var umsvifalaust tekin ákvörð- un um að segja þessum mönnum upp störfum. Þetta er hræðilegt mál og til þess fallið að koma óorði á aðra starfs- menn okkar. Við því verðum við að bregðast," segir Engilbert. Mennirnir tveir sem störfuðu fyrir Engilbert voru báðir handlangarar í múrverki. Tökum á málum „Ráðningarreglurnar verða endurskoðaðar," segir Engilbert Runólfsson. Eyðileggja fyrir hinum Engilbert ítrekar að hann hafi mjög góða reynslu af erlendu starfsfólki. Starfsmennirnir tveir sem réðust á lögreglumennina eru báðir ffá Lithá- en. Engfibert segir það svíða mest að örfáir einstaklingar geti eyðilagt íyrir heildinni með þessum hætti. „Það er hins vegar alveg ljóst að við þurfum að fara í saumana á ráðningarferlinu hjá okkur til þess að reyna að koma í veg fyrir að við ráðum tfi okkar saka- menn eða hættulegt fólk án þess að vita af því," segir hann. Hjá JB byggingarfélagi starfa um þijú hundruð manns, meirihlutinn af erlendu bergi brotinn. „Það verð- ur tekið á þessum málum í hvelli. Það er ekki hægt að reyna að bera ábyrgð á þrjú hundruð manns þannig að við þurfum bara að herða hjá okkur ráðn- ingarreglurnar." „Þetta er hræðilegt mál og tilþess fallið að koma óorði á aðra starfsmenn okkar." Lausir í dag Lögreglumennirnir voru við fíkniefnaeftirlit þegar þeir urðu fýr- ir árásinni. Fjórir lögreglumannanna þurftu á aðhlynningu að halda og voru tveir þeirra fluttir með sjúkrabíl á slysadeild. Árásarmennirnir fimm eru á aldrinum 19 til 25 ára gamlir. Þrír voru handteknir á staðnum og tveir til viðbótar voru handteknir á heimili sínu á laugardag. Mennirnir voru aliir úrskurðaðir í gæsluvarðhald sem rennur út í dag. Það kemur því fljótlega á daginn hvort gefnar verða út ákærur eða hvort lög- regla þarfnast meiri tíma til rannókn- arinnar. Lögreglan telur að árásin hafi verið tilefnislaus og mennimir hafi ekld tengst fíkniefnaeftirlitinu með beinum hætti. Skautað á Tjörninni Kalda veðrið hefur gert það að verkum að hægt er að leika sér á skautum á Tjörninni í Reykjavík. Það tækifæri nýtti þessi stúlka sér í gær og sveif eftir ísilagðri Tjörninni. DV MYND ÁSGEIR Hlynur Michelsen er ósáttur við borgaryfirvöld eftir hundsrán: Þarf að borga fyrir hund sem var rænt „Ég er mjög ósáttur við að sonur minn þurfi að borga rúmlega 40 þús- und krónur til að fá hundinn í hend- umar aftur," segir Hlynur Michel- sen. Marvin, sonur hans, á hundinn Mjölni sem rænt var í síðustu viku. Hundurinn Mjölnir er óskráður og því þarf hvort tveggja að greiða skráningar- og föngunargjald áður en hann fæst afhentur. Þetta er Hlyn- ur ósáttur við. Mjölni var rænt fyrir utan Fjöl- brautaskólann í Breiðholti á með- an Marvin skrapp þar inn. Mikil leit hófst en bar engan árangur í fýrstu. Þegar myndir úr eftirlitsvélum vom skoðaðar sást hvar honum var rænt. „Það sést hvar strákur kemur, bíð- ur eftir að fólk í kring fer, tekur hund- inn og gengur í burtu," segir Hlyn- Marvin og Mjölnir Hundinum Mjölni var rænt (síðustu viku. Nú þarf að borga tugi þúsunda til að leysa hann út. ur. Hann fékk síðan upphringingu frá konu eftir að sonur hennar kom heim með Mjölni, hundinn hafði hann fundið í nágrenninu. Marvin var ekki búinn að skrá hundinn eins og gera þarf innan við mánuði eftir að hundur fer inn á nýtt heimili. Mjölnir er orðinn sjö mán- aða og á því að vera skráður. „Það er skiljanlegt að hann þurfi að borga skráningargjaldið áður en hann fær hundinn aftur en að borga hinu opinbera rúmlega 40 þúsund krónur fyrir að fá hann heim er al- gjörlega óskiljanlegt, sérstaklega þar sem honum var rænt," segir Hlynur. Þær upplýsingar fengust hjá Dýra- eftirliti Reykjavíkurborgar að farið sé með ómerkta hunda á hundahótel. Ef í ljós kemur að hundurinn er óskráð- ur þarf að skrá hundinn og það kostar 15.400 krónur. Föngunargjald bætist ofan á það sem er 21.500 krónur. Mar- vin og Hlynur vilja þakka öllum þeim sem hjálpuðu tfi við leitina. Fasteignakaup æsa verðbólguna Kostnaður vegna eigin hús- næðis og verð á nokkmm mat- vöruflokkum, einna helst ávöxtum, grænmeti, brauði og komvömm, vom helstu áhrifaþættir í hækkun vísitölu neysluverðs nú í byrjun janúar. Verðbólga mælist nú 5,9 prósent. Vísitalan hækkaði um 1,3 pró- sent vegna eigin húsnæðis. Einnig hækkaði verð á bensíni og olíu nokkuð. Hækkaði vísitalan um 0,28 prósent frá fýrri mánuði. Sam- kvæmt upplýsingum frá Hagstofú íslands, lækkaði þó verð á fötum og skóm um 10,1 prósent, en vetr- arútsölur em nú víða hafnar. Ætla að mótmæla við Alþingishúsið Ungliðahreyfing Hjálparstarfs kirkjunnar sem kallar sig Breytendur hafa boðað mótmæli við Alþingis- húsið klukkan 12.45 í dag. Hreyfing- in vill vekja athygli á hlýnun jarðar og hvaða afleiðingar hún hefiir fyrir fátæk ríki á suðurhveli jarðar. Auk þess vilja meðlimir hreyfingarinnar viðra hugmyndir sínar til úrbóta. Al- þingi kemur saman í dag eftir jólafrí. Þingsetningin verður klukkan 13.30 og ætlar hreyfingin að afhenda þing- mönnum bækling um hlýnun jarðar. / / / / / / / / / / / / / / / / / / / Litlar santlokur 399 kr. + litid gosglas 100 kr. = 499

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.