Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2008, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
SAIMDKORN7
■ lónmundur Guðmarsson,
bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar,
er ekki mikið fyrir fundarhöld
þessa dagana. DV greindi frá
því í vikunni að hann hefði ekki
séð sér fært
að mæta
á árlegan
aðalfund
fulltrúaráðs
Sjálfstæðis-
félaganna
á Nesinu.
Þangað
komst hann
ekki því hann þurfti að fara með
veikan hund sinn til dýralæknis
og fundur snemma á laugar-
dagsmorgni hentaði bæjarstjór-
anum ekki.
■ Þetta er í annað sinn á
skömmum tíma sem lónmund-
ur Guðmarsson, bæjarstrjóri
Seltjarnarnesbæjar, á / erfiðleik-
um með að sitja fund. Nýver-
ið hélt Sjálfstæðisfélagið fund
um skipu-
lag hins
nýjaBygg-
garðasvæð-
is, vestast á
Nesinu, en
bæjarstjór-
inn sjálfur
lét sig hverfa
í hálfleik.
Það var einmitt í seinni hálfleik
sem umræður áttu að fara fram.
Sjálfstæðismenn í bænum eru
ekki par hrifnir af fjarvistum
Jónmundar því fundina vildu
þeir nota til umræðna við bæj-
arstjórann um ýmis mikilvæg
málefni.
■ REI-skýrsla stýrihópsins fjall-
ar mikið um óvandaða stjórn-
sýslu í aðdraganda sameiningar
REI og Geysis Green Energy og
álit hópsins er áfellisdómur yfir
þeim póli-
tískt ráðnu
fulltrúum
sem sátu í
stjórnum
Orkuveit-
unnar og
REI. Samráð
skorti algjör-
lega og óljóst
er hver gætti hagsmuna eigenda
Orkuveitunnar í öllu samein-
ingarferlinu. Staldra verður þó
við þennan dóm stýrihópsins og
velta fyrir sér þeirri fullyrðingu
að óvönduð stjórnsýsla sé orsök
hins mikla klúðurs sem úr varð.
Störf stýrihópsins í heild sinni
vekja einfaldlega þá spurningu
hversu vönduð stjórnsýsla það
er að stýrihópurinn var saman-
settur af kjörnum borgarfulltrú-
um. Fyrir vikið gerðu stjórn-
málamennirnir lítið annað en
rannsaka sín eigin störf, hversu
góð stjórnsýsla er það?
■ Flestir eru sammála um að
ófaglega hafi verið staðið að
REI-málinu. Meira að segja
hörðustu sjálfstæðismenn eru á
því að Vilhjálmur hafi misstigið
sig. Ofur-
bloggarinn
og sjálf-
stæðismað-
urinn Stef-
án Friðrik
Stefáns-
son er einn
þeirra: „Það
er ekki hægt
að segja annað en að REI-skýrsl-
an sé áfellisdómuryfir stjórn-
sýslu alls málsins og einkum
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni...
Frá upphafi skrifaði ég gegn
ákvörðunum þeirra sem héldu
á málinu. Það var illa unnið,
of hratt og flausturslega. Þetta
lyktar af spillingu og skýrslan
gefur fullt tilefni til þess að svo
hafi verið. Það sem er verst er
hvað stjórnmálamennirnir léku
eins og lítil börn með auðjöfr-
unum, vildu vera peð í mjög
Stóru Viðskiptatafli." batdur@dv.is
Alls eru sjö manns í gæsluvarðhaldi á Suðurnesjum en aldrei hafa jafnmargir verið í
haldi á sama tíma vegna svo stórra mála hingað til. Jóhann R. Benediktsson. lög-
reglustjóri Suðurnesja, segir góðan skrið á öllum rannsóknum. Nú síðast var Hol-
lendingur handtekinn fyrir að smygla rúmlega kílói af kókaíni til landsins.
VALUR GRETTISSON
blaðamadur skrifar: valur@dv.is
„Fjöldi málanna er farinn að reyna
á þolrifin í rannsóknardeildinni,"
segir Jóhann R. Benediktsson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum. Aldrei
hafa fleiri einstaklingar sætt gæslu-
varðhaldi á Suðurnesjum samtím-
is og nú. Alls eru sjö manns í varð-
haldi.
Þrjú málanna snúast um fíkni-
efnasmygl og það fjórða varðar Pól-
verja sem grunaður er um að hafa
ekið á lítinn strák og orðið honum
að bana í Keflavík á síðasta ári. Öll
málin eru á góðu skriði að sögn Jó-
hanns. Síðasti maðurinn sem var
handtekinn er Hollendingur sem
reyndi að smygla rúmu kílói af
kókaíni til landsins fyrr í vikunni.
Mörg fíkniefnamál
Það var í byrjun desember sem
ekið var á lítinn strák í Keflavík en
ökumaðurinn stakk af frá vettvangi.
Barnið lét lífið en lögreglunni tókst
að hafa hendur í hári Pólverja sem
var í kjölfarið hnepptur í gæsluvarð-
hald. Maðurinn hefur neitað sök
þrálátlega síðan hann var handtek-
inn en hann hefur setið í varðhaldi
núna í rúma tvo mánuði. Lögreglan
á Suðurnesjum hefur meðal annars
þurft að senda lífsýni til útlanda til
þess að fá úr því skorið hvort þau
séu úr baminu. Rannsóknin virðist
flókin en er langt komin að sögn Jó-
hanns.
E-töflur á flugstöð
Aðeins þremur vikum eftir að
ekið var á barnið stöðvaði tollgæsl-
an þýskan karlmann í Leifsstöð.
Maðurinn var illa til reika og vakti
athygli tollvarða. í kjölfarið leit-
uðu þeir á manninum og fúndu 23
þúsund e-töflur á honum. Talið er
að götuverðmæti efnanna sé á bil-
Pólverji í gæsluvarðhaldi
Þessi Pólverji er í gæsluvarð-
haldi grunaður um að hafa
ekið á lítið bam og orðið því
að bana.
inu 80 til 100 milljónir króna. Þetta
gerðist rétt fýrir áramótin og var tal-
ið að maðurinn tengdist skipulagðri
glæpastarfsemi. Magn e-taflnanna
er það næstmesta sem náðst hefur
hér á landi. Verði maðurinn dæmd-
ur má búast við því að hann fái ekki
minna en fimm ára fangelsisdóm.
Fjórir handteknir
Það var svo um miðjan janúar
sem þrír menn voru handteknir
vegna hraðsendingar sem innihélt
ríflega fimm kíló af amfetamíni og
kókaíni. Um er að ræða bræðurna
Ara og Jóhann Pál Gunnarssyni. Þá
var æskuvinur þeirra Tómas Krist-
jánsson einnig handtekinn. Þeir
voru strax hnepptir í gæsluvarð-
hald vegna málsins en um er að
ræða mesta magn fíkniefna sem
fundist hefur í póstsendingu hing-
að til lands. Tómas starfaði á Kefla-
víkurflugvelli en Jóhann Páll hjá
fjármálaráðuneytinu. Húsleit var
gerð hjá ráðuneytinu í kjölfarið og
mun það vera í fýrsta sinn sem slíkt
er gert hér á landi.
Handrukkari handtekinn
Viku eftir að þremenningarn-
ir voru hnepptir í gæsluvarðhald
var Annþór Karlsson handtekinn
í tengslum við málið. Hann er al-
ræmdur handrukkari og býr á Suð-
urnesjum. Talið er að hann sé einn
af höfuðpaurum málsins en hann
hefur setið af sér dóm vegna fíkni-
efnasmygls. Annþór var handtekinn
við Leifsstöð ásamt öðrum manni
„Menn eru að hamast
við að Ijúka málunum
tíl að vera viðbúnir að
mæta fleirum."
en sá tengdist ekki málinu. Annþór
var úrskurðaður í gæsluvarðhald til
15. febrúar en möguleiki er á að það
verði framlengt. Búið er að fram-
lengja gæsluvarðhald hinna þriggja
og hafa þeir setið í fangelsi í tæpan
mánuð.
Hollendingurinn fljúgandi
Svo var það á þriðjudaginn sem
Hollendingur kom fljúgandi til fs-
lands. Eftir nána skoðun tollgæsl-